Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 2
Ég bý á þriðju hæð og
finn nánast alla skjálfta
sem mælast. Ég er bara
mjög hrædd við þetta
og þess vegna er ég
svona glöð.
Dijana Una Jankovic
Sumarsigling
Rólegt var yfir Reykjavíkurhöfn í gær þótt eldgos væri hafið á Reykjanesskaga. Seglskúta lá við festar og ungmenni sigldu um á lystibáti með regnbogafána
við hún. Inni í bænum halda Hinsegin dagar áfram með sinni fjölskrúðugu dagskrá og gleði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dijana Una Jankovic, starfs-
maður á bæjarskrifstofu
Grindavíkur, las fréttir í gær
og sá að eldgos væri hafið
og skjálftahrinunni líklega
lokið. Dijana er hrædd við
jarðskjálfta og ákvað því að
gleðjast, brunaði út í bakarí
og keypti marsípanköku
fyrir samstarfsfólk sitt – sem
gladdist með enda kakan
góð.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Dijana Una Jankovic,
star fsmaður á bæjarskrifstofu
Grindavíkur, fagnar að eldgos sé
hafið að nýju og skjálftahrinunni
sé þar með væntanlega lokið.
Um leið og Dijana sá fréttirnar
um að gos væri hafið brunaði hún
út í bakarí og keypti marsípan-
köku fyrir starfsmenn bæjarskrif-
stofunnar, með bleiku kremi.
„Ég er svo hrædd við jarðskjálfta
og þegar ég heyrði fréttirnar um
að gos væri byrjað fór ég og keypti
köku fyrir starfsfólkið hér á bæjar-
skrifstofunni,“ segir Dijana.
Forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, og forsetafrú, Eliza
Reid, voru stödd í Grindavík í gær
þar sem þau stoppuðu meðal ann-
ars á bæjarskrifstofunni og sýndu
Dijönu og öðrum bæjarbúum
stuðning enda hafa Grindvíkingar
verið svefnvana undanfarið í
skjálftahrinunni.
„Við fengum heimsókn frá for-
setanum og Elizu. Þau stoppuðu
hér á skrifstofunni og sýndu okkur
mikinn stuðning,“ segir Dijana sem
stólar á forsetahjónin í framtíðinni.
„Það er ljóst að þau verða að drífa
sig hingað aftur ef jarðskjálftarnir
byrja á ný því þá hætta þeir og
gosið byrjar,“ segir hún og hlær.
Dijana vinnur í afgreiðslunni á
bæjarskrifstofunni og býr í blokk í
Grindavík á þriðju hæð. Hún segir
að hver einasti skjálfti sem mælist
finnist heima hjá henni og það sé
allt annað en skemmtilegt. Hún er
frá fyrrum Júgóslavíu þar sem jarð-
skjálftar þekkjast varla.
„Það er ekki mikið um jarð-
skjálfta þar. Ég bý á þriðju hæð og
finn nánast alla skjálfta sem mæl-
ast. Ég er bara mjög hrædd við þetta
og þess vegna er ég svona glöð.“
Dijana brunaði á Víkurbrautina
þar sem hún stoppaði Hjá Höllu og
keypti dásamlega marsípanköku
sem starfsmenn bæjarskrifstofunn-
ar gæddu sér á og glöddust innilega
yfir því að þurfa ekki lengur að sofa
í jarðskjálftum og hristingi. n
Fagnaði lokum jarðskjálfta
og upphafi gossins með köku
Eldgosskaffi á bæjarskrifstofum Grindavíkur. Frá vinstri; Guðbjörg Eyjólfs-
dóttir, Dijana Una Jankovic og Fanný Þóra Erlingsdóttir.
MYND/ELLEN AGATA JÓNSDÓTTIR
gar@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Guðni Sigurðsson,
star fsmaður á samskiptasviði
Icelandair, segir að umferð um vef
félagsins hafi aukist verulega eftir
að tíðindin af gosinu í Meradölum
spurðust út í gær. Enn sé of snemmt
að segja til um hvort gosið skili sér í
aukningu í bókunum.
„Við sjáum þetta betur með tíð
og tíma. Þetta fer dálítið eftir því
hvernig umfjöllunin um gosið verð-
ur í erlendum miðlum og hvort fólk
sjái þetta sem spennandi atburð að
fylgjast með,“ segir Guðni.
Gengi hlutabréfa í Icelandair
hækkaði um 3,21 prósent í Kaup-
höll Íslands eftir að fréttir bárust af
eldgosinu í gær.
Ekki fengust upplýsingar frá flug-
félaginu Play í gær um hugsanleg
áhrif eldgossins á bókunarstöðu
félagsins. n
Margir skoðuðu
síðu Icelandair
Hlutabréf í Icelandair hækkuðu við
tíðindi af gosinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ragnarjon@frettabladid.is
VEÐUR Óvenju kalt hefur verið
í Drekagili við eldfjallið Öskju í
sumar en snjór hefur fallið þar sjö
daga í röð. Sigurður Erlingssonar
landvörður segir þetta ansi óvenju-
legt.
„Það kemur alltaf fyrir að snjói en
að það sé snjór í Öskju um mánaða-
mótin júlí og ágúst í heila viku, ég
man ekki eftir því,“ segir Sigurður
og bætir við: „hér byrjaði að snjóa
á föstudagskvöld og það hefur bara
ekki hætt síðan og þetta er ekki
einu sinni fyrsti snjór vetrarins, það
var 3. júlí,“ segir Sigurður og bætir
kíminn við að „þetta er samt þann-
ig að veturinn þetta sumarið er
búinn að vera tiltölulega mildur.“ n
Sjöundi dagur snjókomu í Drekagili
Óvenjukalt
hefur verið í
Drekagili undan-
farna daga.
MYND/AÐSEND
2 Fréttir 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ