Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 26
Mafíósar af gamla skólanum deyja út Goðsagnakenndir kvik- myndakrimmar hafa safnast hratt til feðra sinna sum- arið 2022 og skörðin í röðum þeirra sem holdgervingar Sonny Corleone, Henry Hill, Paulie Walnuts og Paulie Cicero skilja eftir sig eru svo stór að segja má að komið sé að kveðjustund hjá kynslóð kvikmyndafauta af gamla skólanum. toti@frettabladid.is Öndvegisleikararnir Ray Liotta, James Caan, Paul Sorvino og Tony Sirico kvöddu þennan heim í sumar. Þrátt fyrir ýmsa mannkosti og óum- deilda leikhæfileika verður þeirra sjálfsagt lengst minnst fyrir að hafa, að því er virtist áreynslulítið, skráð sig á spjöld menningarsögunnar sem fulltrúar baneitraðrar karl- mennsku; samvisku- og siðlausra of beldisfauta í hinum sígildu The Godfather, Goodfellas og tíma- mót asjónvar psþátt unum The Sopranos. n Ray Liotta (1954–2022) Ray Liotta var 67 ára þegar hann varð bráðkvaddur þann 26. maí. Hann vakti fyrst athygli 1986 sem leiðindagaur sem gerði Melanie Griffith og Jeff Daniels lífið leitt í kvikmynd- inni Something Wild en hann átti ítrekað eftir að túlka ýmiss konar síkópata í framtíðinni. Hann lék hafnaboltakemp- una Sholess Joe Jackson á móti Kevin Costner í Field of Dreams 1989 en frammistaða hans sem gangsterinn Henry Hill í Goodfellas ári síðar yfirskyggir öll önnur afrek hans fyrr og síðar. Hann lokaði síðan glæpa- hringnum 2021 þegar hann lék í The Many Saints of Newark, kvikmyndaforleik The Sopr- anos, sem reyndist því miður eitt af hinstu verkum hans. Paul Sorvino (1939–2022) Hinn fjölhæfi Paul Sorvino var 83 ára þegar hann lést 25. júlí en auk þess að leika stundaði hann viðskipti, óperusöng og ritstörf. Hann lék einn- ig tveimur skjöldum og er þekktastur annars vegar fyrir túlkun sína á mafíuforingjanum Paulie Cicero í Goodfellas og rannsóknarlöggunni Phil Cerreta í sjónvarpsþáttunum Law&Order. Þá var hann ekki síður harður í horn að taka og hikaði ekki við að hóta því að drepa perra- framleiðandann Harvey Wein- stein þegar hann komst að því að sótrafturinn sá hafði áreitt Miru, dóttur hans, og síðan lagt sig fram um að eyðileggja leik- feril hennar eftir að hún varðist áreitni hans. „Hann fer í fangelsi, ó já. Þessi tíkarsonur. Eins gott fyrir hann vegna þess að ef það gerist ekki þá þarf hann að mæta mér. Og ég mun drepa þennan fjandans djöflamerg. Mjög einfalt.“ Að þessum fjórum mafíósum gengnum má segja að ákveðin kynslóð harðjaxla sé að hverfa. Bíóglæpafor- inginn Martin Scorsese er enn hress en hefur á skömmum tíma mátt horfa á eftir Ray Liotta og Paul Sorvino sem hann stýrði með góðum árangri í Goodfellas. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Tony Sirico (1942–2022) Anthony Sirico yngri var 79 ára þegar hann féll frá 8. júlí eftir langan glæpaferil bæði í raunveru- leikanum og kvikmyndum þar sem hann lék krimma í myndum á borð við Goodfellas, Mob Queen, Mighty Aphrodite, Love and Mo- ney, Fingers, Bullets over Broad- way, Gotti, Cop Land og síðast en ekki síst The Sopranos þar sem hann fór með himinskautum sem Paulie Walnuts, einn tryggasti skutil sveinn Tonys Soprano. Áður en Sirico lagði leiklistina fyrir sig hafði hann verið hand- tekinn 28 sinnum og hlotið nokkra dóma fyrir ýmsa glæpi; óspektir, árásir og rán svo eitthvað sé nefnt. 1971 var hann ákærður fyrir fjárkúgun, þvingun og ólöglegan vopnaburð og afplánaði í kjölfarið 20 mánuði af fjögurra ára dómi í hinu alræmda Sing Sing fangelsi. Heimatökin voru því hæg hjá Tony þegar kom að því að bregða sér í gervi glæpamanna en samstarfsfólk hans minnist hans þó sem gegnheils manns og alvöru töffara. Sönnum vini vina sinna og þannig hafa Jamie-Lynn Sigler og Robert Iler, sem voru á unglingsaldri þegar þau byrjuðu að leika börn Tony Soprano, sagt að þau hafi sloppið við allt áreiti á tökustað þar sem allir vissu að ef eitthvað yrði gert á þeirra hlut væri Tony Sirico að mæta. James Caan (1940–2022) James Caan var 82 ára þegar hann lést 6. júlí og sem Sonny Corleone, elsti sonur og erfða- prins glæpaveldis Don Corleone í meistaraverkinu The Godfather má hann teljast mesti stórlaxinn í þessum grimma hópi. Ferill hans var langur og brokkgengur og ef til vill nokkuð kaldhæðnislegt að hann átti marga miklu betri spretti en í Guðföðurnum 1972 enda skap- hundurinn og ruddinn Sonny Corleone ekkert sérstaklega á dýptina. Hins vegar lét hann skapið hlaupa með sig í gönur í síðasta sinn í einni af mörgum eftirminnilegum senum Guð- föðurins þar sem hann var sallaður niður í slíku kúlnaregni að annað eins hefur vart sést, 50 árum síðar. Skuggi Sonny Corleone lá því yfir öllum minningargreinunum um leikarann sem gerði þó einn- ig gott mót í til dæmis Misery (1990), Dogville (2003), jóla- gríninu Elf (2003) að ógleymdri einni bestu mynd leikstjórans Michaels Mann, Thief, frá 1980. 18 Lífið 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.