Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 26
Mafíósar af gamla
skólanum deyja út
Goðsagnakenndir kvik-
myndakrimmar hafa safnast
hratt til feðra sinna sum-
arið 2022 og skörðin í röðum
þeirra sem holdgervingar
Sonny Corleone, Henry Hill,
Paulie Walnuts og Paulie
Cicero skilja eftir sig eru svo
stór að segja má að komið sé
að kveðjustund hjá kynslóð
kvikmyndafauta af gamla
skólanum.
toti@frettabladid.is
Öndvegisleikararnir Ray Liotta,
James Caan, Paul Sorvino og Tony
Sirico kvöddu þennan heim í sumar.
Þrátt fyrir ýmsa mannkosti og óum-
deilda leikhæfileika verður þeirra
sjálfsagt lengst minnst fyrir að hafa,
að því er virtist áreynslulítið, skráð
sig á spjöld menningarsögunnar
sem fulltrúar baneitraðrar karl-
mennsku; samvisku- og siðlausra
of beldisfauta í hinum sígildu The
Godfather, Goodfellas og tíma-
mót asjónvar psþátt unum The
Sopranos. n
Ray Liotta (1954–2022)
Ray Liotta var 67 ára þegar
hann varð bráðkvaddur þann
26. maí. Hann vakti fyrst athygli
1986 sem leiðindagaur sem
gerði Melanie Griffith og Jeff
Daniels lífið leitt í kvikmynd-
inni Something Wild en hann
átti ítrekað eftir að túlka ýmiss
konar síkópata í framtíðinni.
Hann lék hafnaboltakemp-
una Sholess Joe Jackson á móti
Kevin Costner í Field of Dreams
1989 en frammistaða hans
sem gangsterinn Henry Hill í
Goodfellas ári síðar yfirskyggir
öll önnur afrek hans fyrr og
síðar. Hann lokaði síðan glæpa-
hringnum 2021 þegar hann lék
í The Many Saints of Newark,
kvikmyndaforleik The Sopr-
anos, sem reyndist því miður
eitt af hinstu verkum hans.
Paul Sorvino (1939–2022)
Hinn fjölhæfi Paul Sorvino var
83 ára þegar hann lést 25. júlí
en auk þess að leika stundaði
hann viðskipti, óperusöng
og ritstörf. Hann lék einn-
ig tveimur skjöldum og er
þekktastur annars vegar fyrir
túlkun sína á mafíuforingjanum
Paulie Cicero í Goodfellas
og rannsóknarlöggunni Phil
Cerreta í sjónvarpsþáttunum
Law&Order.
Þá var hann ekki síður harður
í horn að taka og hikaði ekki við
að hóta því að drepa perra-
framleiðandann Harvey Wein-
stein þegar hann komst að því
að sótrafturinn sá hafði áreitt
Miru, dóttur hans, og síðan lagt
sig fram um að eyðileggja leik-
feril hennar eftir að hún varðist
áreitni hans.
„Hann fer í fangelsi, ó já. Þessi
tíkarsonur. Eins gott fyrir hann
vegna þess að ef það gerist ekki
þá þarf hann að mæta mér. Og
ég mun drepa þennan fjandans
djöflamerg. Mjög einfalt.“
Að þessum
fjórum
mafíósum
gengnum
má segja
að ákveðin
kynslóð
harðjaxla
sé að
hverfa.
Bíóglæpafor-
inginn Martin
Scorsese er enn
hress en hefur
á skömmum
tíma mátt
horfa á eftir Ray
Liotta og Paul
Sorvino sem
hann stýrði með
góðum árangri í
Goodfellas.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Tony Sirico (1942–2022)
Anthony Sirico yngri var 79 ára
þegar hann féll frá 8. júlí eftir
langan glæpaferil bæði í raunveru-
leikanum og kvikmyndum þar
sem hann lék krimma í myndum á
borð við Goodfellas, Mob Queen,
Mighty Aphrodite, Love and Mo-
ney, Fingers, Bullets over Broad-
way, Gotti, Cop Land og síðast en
ekki síst The Sopranos þar sem
hann fór með himinskautum sem
Paulie Walnuts, einn tryggasti
skutil sveinn Tonys Soprano.
Áður en Sirico lagði leiklistina
fyrir sig hafði hann verið hand-
tekinn 28 sinnum og hlotið nokkra
dóma fyrir ýmsa glæpi; óspektir,
árásir og rán svo eitthvað sé
nefnt. 1971 var hann ákærður fyrir
fjárkúgun, þvingun og ólöglegan
vopnaburð og afplánaði í kjölfarið
20 mánuði af fjögurra ára dómi í
hinu alræmda Sing Sing fangelsi.
Heimatökin voru því hæg
hjá Tony þegar kom að því að
bregða sér í gervi glæpamanna
en samstarfsfólk hans minnist
hans þó sem gegnheils manns og
alvöru töffara. Sönnum vini vina
sinna og þannig hafa Jamie-Lynn
Sigler og Robert Iler, sem voru á
unglingsaldri þegar þau byrjuðu
að leika börn Tony Soprano, sagt
að þau hafi sloppið við allt áreiti
á tökustað þar sem allir vissu að
ef eitthvað yrði gert á þeirra hlut
væri Tony Sirico að mæta.
James Caan (1940–2022)
James Caan var 82 ára þegar
hann lést 6. júlí og sem Sonny
Corleone, elsti sonur og erfða-
prins glæpaveldis Don Corleone
í meistaraverkinu The Godfather
má hann teljast mesti stórlaxinn
í þessum grimma hópi.
Ferill hans var langur og
brokkgengur og ef til vill nokkuð
kaldhæðnislegt að hann átti
marga miklu betri spretti en í
Guðföðurnum 1972 enda skap-
hundurinn og ruddinn Sonny
Corleone ekkert sérstaklega
á dýptina. Hins vegar lét hann
skapið hlaupa með sig í gönur í
síðasta sinn í einni af mörgum
eftirminnilegum senum Guð-
föðurins þar sem hann var
sallaður niður í slíku kúlnaregni
að annað eins hefur vart sést, 50
árum síðar.
Skuggi Sonny Corleone lá því
yfir öllum minningargreinunum
um leikarann sem gerði þó einn-
ig gott mót í til dæmis Misery
(1990), Dogville (2003), jóla-
gríninu Elf (2003) að ógleymdri
einni bestu mynd leikstjórans
Michaels Mann, Thief, frá 1980.
18 Lífið 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR