Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Í fyrsta sinn verða allir fræðslu-
viðburðir Hinsegin daga teknir
saman í eina heild og úr verður
sérstök Regnbogaráðstefna Hin-
segin daga.
benediktboas@frettabladid.is
Ráðstefna Hinsegin daga byrjaði í gær og
heldur áfram í dag, annars vegar í Pride
Center, sem er staðsett á Geirsgötu 9, og
hins vegar á Borgarbókasafninu Grófinni.
Á dagskrá ráðstefnunnar er fjöldi
áhugaverðra og fræðandi fyrirlestra,
erinda, pallborða og fleira um fjölbreytt
málefni tengd hinsegin samfélaginu. Allir
dagskrárliðir ráðstefnunnar eru tákn-
málstúlkaðir.
Í gær var til dæmis fyrirlestur um
Trans fólk og afreksíþróttir sem hefur
verið í deiglunni undanfarið, Hinsegin í
heimabyggð og Hinsegin í tölvuleikjum.
Í dag verða fjórir viðburðir og hefjast þeir
klukkan 12.30 þar sem rætt verður um
Fjölástir og fjölbreytileikann. Ofbeldis-
forvarnarskólinn sér um Hatrið sem þú
hunsar er fordæmið sem þú setur! og
enskur fyrirlestur er á dagskrá um Hatrið
í heiminum áður en Hvað felst í jafnrétti
fyrir kvár? verður í lok dagskrár.
Gunnlaugur Bragi Björnsson, for-
maður Hinsegin daga, hafði í ansi mörg
horn að líta þegar Fréttablaðið sló á þráð-
inn til hans en hann segir að á þessum
tveimur stöðum sé búið að safna saman
allri fræðslu og viðburðum sem Hinsegin
dagar hafa lagt áherslu á í mörg ár í eina
heild.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við erum
að keyra þetta í þessu ráðstefnuformi og
gera þessu þar með hærra undir höfði
en að dreifa þessu hér og þar yfir alla
dagana.“
Gunnlaugur bendir á að mikið af
þessum fyrirlestrum og fræðslu komi
inn á borð Hinsegin daga og sé ekkert frá
þeim komið. „Mörg þessara erinda koma
til okkar. Við erum að sitja sem minnst
og hugsa um hvað sé áhugavert heldur
erum í samtölum við okkar fólk og mikið
af þessu kemur inn til okkar frá fólki sem
vill ræða um þessi atriði. Tölvuleikjahlut-
inn til dæmis kemur frá aðilum í þeim
geira sem vildu ræða þessi mál. Enda er
hinsegin fólk ekki algengt í tölvuleikjum.
Þarna skapast vettvangur þar sem
hægt er að kafa í hlutina og ræða þessi
mál.“
Miðbær Reykjavíkur er kjaftfullur
af erlendum ferðamönnum en Gunn-
laugur segir að margir komi sérstaklega
til Íslands til að taka þátt en Hinsegin
dagar halda ekki sérstaklega utan um
erlenda gesti. „Við vitum að það er mjög
stór hópur erlendra gesta sem kemur sér-
staklega hingað til lands til að taka þátt.
Við fáum mikið af fyrirspurnum erlendis
frá og einhverjir eru hérna fyrir tilviljun
og grípa tækifærið. En það er vonlaust að
giska á fjöldann.“
Aðspurður segist hann hafa gleðina í
hjartanu og þó það sé mikið að gera sé
ótrúlega gaman að vera til. „Púlsinn er
góður þótt hann sé hraður. Það var svo
gaman að vera í opnuninni og finna hvað
fólk var tilbúið að koma saman. Þetta
var mátuleg blanda af pólitík, aktífisma
og góðri gleði. Maður fann að þetta var
eitthvað sem fólk þurfti og við erum
lukkuleg.“ n
Öll fræðsla og viðburðir
á einum og sama stað
Hinsegin dagar voru settir í Bankastræti, þar var málaður regnbogi á götuna. Hátíðinni lýkur á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnlaugur
Bragi Björns-
son.
Hannes Finnsson Skálholtsbiskup
andaðist á þessum degi árið 1796.
Hannes fæddist í Reykholti í Borgar-
firði 8. maí árið 1739, sonur prests-
hjónanna þar, séra Finns Jónssonar,
sem síðar varð biskup í Skálholti, og
Guðríðar Gísladóttur.
Hannes útskrifaðist sextán ára
úr Skálholtsskóla 1755 og hélt um
sumarið til guðfræðináms við Hafnar-
háskóla. Embættispróf í guðfræði tók
hann 1763.
Á þeim tólf árum, sem Hannes
dvaldist samfleytt í Kaupmannahöfn,
kynntist hann mörgum helstu fræði-
mönnum Danmerkur. Hannes sneri
heim í Skálholt til að aðstoða föður
sinn við ýmis fræðistörf árið 1767.
Hann hélt aftur til Kaupmannahafnar
1770 og dvaldi þar næstu árin við
störf í íslenskum fræðum.
Hannes var vígður aðstoðarbiskup
til Skálholts 1777. Séra Finnur lét af
embætti árið 1785 og var Hannes
þá einn biskup. Árið áður höfðu
Suðurlandsskjálftar lagt Skálholtsstað
meira og minna í rúst og átti að flytja
biskupsstólinn til Reykjavíkur. Hannes
keypti þá Skálholtsstað og fékk að
sitja þar áfram sem hann og gerði til
æviloka. Hannes dó hinn 4. ágúst 1796
í Skálholti eftir skyndileg veikindi.
Á síðustu æviárunum skrifaði hann
tvö merkustu rit sín: Um mannfækkun
af hallærum á Íslandi og Kvöldvökur. n
Þetta gerðist: 4. ágúst 1796
Hannes biskup ber beinin
Hannes var vígður aðstoðarbiskup til
Skálholts 1777. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Okkar elskulega,
Steinunn Vigfúsdóttir
(Una)
Skúlagötu 40a,
áður til heimilis á Seyðisfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans
í Kópavogi þann 20. júlí.
Bálför hefur farið fram.
Minningarathöfn auglýst síðar.
F. h. aðstandenda
Guðsteina Hreiðarsdóttir
Faðir okkar,
Gísli Arnór Víkingsson
sem lést mánudaginn 18. júlí verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 12. ágúst kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ögmundur Viðar Rúnarsson Ingibjörg Helga Gísladóttir
1704 Enskar og hollenskar sveitir hertaka Gíbraltar.
1796 Hannes Finnsson Skálholtsbiskup andast. Hann
er einn menntaðasti Íslendingur sinnar tíðar. Af
ritum hans má til dæmis nefna Um mannfækkun af
hallærum á Íslandi.
1903 Giuseppe Melchiorre Sarto verður Píus 10. páfi.
1907 Ungmennafélag Íslands stofnað og er fyrsti for-
maður þess Jóhannes Jósefsson.
1928 Ásta Jóhannesdóttir syndir frá Viðey til Reykjavíkur.
Sundið tekur tæpar tvær klukkustundir og er um
fjórir kílómetrar.
1944 Gestapómenn ryðjast
inn í fylgsni fjölskyldu
Önnu Frank og hand-
taka alla sem þar
hafast við.
1947 Hæstiréttur Japans er
stofnaður.
1972 Idi Amin tilkynnir að
allir asískir verkamenn
með bresk vegabréf
verði að hverfa frá
Úganda innan þriggja
mánaða.
1974 Italicus-sprengjan: Sprengja springur um borð í lest
á milli Flórens og Bologna. 12 látast.
1977 Orkustofnun Bandaríkjanna er stofnuð.
1977 Sprengjumaðurinn frá Gladsaxe sprengir sína fyrstu
sprengju í símaklefa í Kaupmannahöfn.
1979 Stokkhólmsmaraþonið er hlaupið í fyrsta skipti.
1984 Efri-Volta tekur upp nafnið Búrkína Fasó.
1993 Alríkisdómari dæmir tvo lögreglumenn frá Los
Angeles í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hafa
brotið á réttindum Rodneys King, eins og það var
orðað
1995 Króatíuher hefur Stormaðgerðina gegn
Króatíuserb um í Krajinahéraði.
1997 185.000 bílstjórar hjá United Parcel Service fara í
verkfall.
1998 Afríkustríðið mikla hefst í Kongó.
2006 17 hjálparstarfsmenn eru myrtir í bænum Muttur á
Srí Lanka.
2007 Phoenix, geimskipi NASA, er skotið á loft.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR