Fréttablaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 16
Sýnilegur hinseginleiki í
óperum er viðfangsefni
sumartónleikaraðarinnar
Söngljóðasúpa í Norræna
húsinu á fimmtudag.
starri@frettabladid.is
Sumartónleikaröðin Söngljóða-
súpa í Norræna húsinu heldur
áfram í dag en þá munu Íris Björk
Gunnarsdóttir óperusöngkona
og Matthildur Anna Gísladóttir
píanóleikari flytja aríur úr ýmsum
óperum með sýnilegum hinsegin-
leika. Auk þess mun Íris fjalla um
rannsókn sína á hinseginleika
á óperusviðinu á fræðandi og
skemmtilegan hátt.
„Hugmyndin að þessum tónleik-
um kviknaði fyrir nokkrum árum
þegar ég áttaði mig á því hvað
margar óperur eru einsleitar og
stereótýpur kynjanna sterkar. Þær
óperur sem ég þekkti þá voru allar
um gagnkynhneigt sískynja fólk
en ég þráði að sjá meiri fjölbreyti-
leika í óperuheiminum. Ég fór að
lesa mér til um efnið og sá þá að
engin samantekt á hinseginleika
á óperusviðinu var til. Því ákvað
ég að bæta þar úr og sótti um styrk
úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
fyrir verkefni mitt, Hinseginleiki á
óperusviðinu, sem ég fékk sumarið
2020,“ segir Íris Björk.
Tónleikaröðin er í samstarfi við
veitingastaðinn Sónó matseljur,
Norræna húsið, Reykjavíkurborg
og Óperudaga, en tónleikarnir eru
auk þess á dagskrá Hinsegin daga.
Hennar framlag til baráttunnar
Þegar Íris hélt áfram að þróa verk-
efnið sitt fann hún líka þörf fyrir
að flytja þessa tónlist hérlendis og
sýna þannig áhorfendum fjöl-
breytileikann í óperuheiminum.
„Það eru til svo ofboðslega fallegar
óperur sem segja sögur hinsegin
einstaklinga og ég hlakka til að
gera það einn daginn að veruleika
að flytja einhverja þeirra í heild
sinni hér á Íslandi. Tónleikarnir
eru mitt framlag til jafnréttisbar-
áttu hinsegin einstaklinga á mínu
sérsviði. Sýnileiki er lykillinn að
samþykki og á tónleikunum geri
ég hinseginleikann sýnilegan
gerandi það sem ég geri best, sem
er að syngja.“
Tónlistin á tónleikunum
spannar langt tímabil, allt frá 18.
öld til dagsins í dag. „Við munum
flytja aríur meðal annars eftir
Händel, Alban Berg, Paulu M.
Kimper og Ricky Ian Gordon. Allar
aríurnar eiga það sameiginlegt að
það er skýr sýnilegur hinsegin-
leiki í óperunum þar sem þær
koma fyrir. Matthildur var einn af
kennurum mínum í Listaháskóla
Íslands og þegar ég bar undir hana
að gera þessa tónleika með mér
var hún ekki lengi að svara játandi.
Hún kemur því inn í verkefnið sem
meðleikari á tónleikunum og ég er
meiri háttar heppin með það.“
Bregður sér í mörg hlutverk
Íris bregður sér í ólík hlutverk
á tónleikunum enda segist hún
hafa ákveðið að vera með alger-
lega opinn hug varðandi raddfag
þegar hún valdi tónlistina fyrir
tónleikana. „Því varð það þannig á
endanum að engin af þeim aríum
sem ég mun syngja eru skrifaðar
fyrir sóprönur, mitt venjulega
raddfag. Mér finnst sérstaklega
skemmtilegt að fá tækifæri til þess
að flytja tónlist sem ég myndi aldr-
ei annars syngja. Þannig mun ég til
dæmis syngja tenóraríuna úr einni
af mínum uppáhaldsóperum,
Peter Grimes eftir Benjamin
Britten. Ég bregð mér í hlutverk
nokkurra lesbía, geldingssöngvara,
ástsjúks unglingspilts, Gertrude
Stein og útskúfaðs sjómanns. Nær
allar aríurnar fjalla um ástina,
bæði óendurgoldna ást og fallegar
ástarsögur.“
Fjölbreyttari umfjöllunarefni
Íris hóf rannsóknina sumarið 2020
eins og fyrr segir og var hún gerð
undir handleiðslu kennara hennar,
Þóru Einarsdóttur óperusöng-
konu. „Ég fann á fimmta tug ópera
sem höfðu skýran hinseginleika og
enn fleiri þar sem skynja má hin-
seginleikann milli línanna. Þá stóð
til að halda tónleika í samstarfi við
Óperudaga og Hinsegin daga, sem
þurfti að fresta vegna heimsfarald-
ursins, en nú eru tónleikarnir
loksins að verða að veruleika.“
Hún segir niðurstöður rann-
sóknarinnar sýna skýrt að óperum
með sýnilega hinsegin ein-
staklinga fer fjölgandi með hverju
árinu. „Flestar þeirra fjalla um
fallegt samkynja ástarsamband
en líka eru til óperur sem fjalla um
kynleiðréttingarferli trans konu,
Stonewall-uppreisnina og ofbeldi
gegn hinsegin einstaklingum svo
eitthvað sé nefnt.“
Viðhorf margra samfélaga er
loksins að færast í átt að því að við
megum öll vera við sjálf að sögn
Írisar. „Það verður því spennandi
að fylgjast með þróun sýnileika
hinseginleikans á óperusviðinu á
komandi árum og margt bendir
til þess að umfjöllunarefni ópera
verði fjölbreyttari með hverju
árinu sem líður. Vonandi halda
ung tónskáld og óperutextaskáld
samtímans áfram að nota sköpun-
argáfu sína til þess að semja óperur
þar sem fjölbreytileiki mannlífsins
er sýnilegur, bæði í sögunum sem
sagðar eru og í þeim einstakling-
um sem þar stíga á svið.“
Spennandi dagskrá í boði
Tónleikarnir eru hluti af dagskrá
Hinsegin daga. Dagskrá þeirra
er fjölbreytt og er Íris spennt yfir
mörgum viðburðum. „Ég hlakka
alltaf til að fara í gönguna og geri
það að sjálfsögðu í ár eins og alltaf.
Það er úr mörgu að velja og ég ætla
að fara til dæmis á einhverja af
þeim fræðandi viðburðum sem eru
í boði. Jafnréttisbarátta hinsegin
einstaklinga stendur mér nærri
hjarta og ég trúi því staðfastlega að
með fræðslu verðum við öll vísari.
Sýnileiki er lykillinn að samþykki
Matthildur
Anna Gísladóttir
píanóleikari og
Íris Björk óperu-
söngkona koma
fram á tónleik-
unum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Fordómar verða til vegna fáfræði
og því er ánægjulegt að sjá hve
mikil fræðsla er í boði á Hinsegin
dögum í ár. Einnig er ég spennt
fyrir tónleikum sönghópsins
Viðlags og svo hljómar Rocky
Horror Sing-a-long líka fáránlega
skemmtilegt.
Innra með mér býr forfallinn
söngleikjanörd þó að óperurnar
eigi hug minn flesta daga.“
Mörg verkefni fram undan
Íris er búsett í Noregi þar sem hún
er í mastersnámi við Óperuhá-
skólann í Osló. „Ég er mjög ánægð í
náminu og er að fá heilmikið út úr
því. Við fáum að vera mikið á sviði
og þroskast sem listamenn. Síðasta
haust fluttum við Turn of the
Screw eftir Benjamin Britten og
ég var svo heppin að fá að syngja
aðalhlutverkið, Governess, sem er
eitt af mínum draumahlutverkum.
Næsta vor mun ég taka þátt í
útskriftarsýningu skólans í norsku
óperunni. Þá munum við flytja La
finta giardiniera eftir W. A. Mozart
ásamt KORK, útvarpshljómsveit
Noregs, og ég syng titilhlutverkið,
hana Sandrinu.“
Næsta sumar mun Íris halda
útskriftartónleika þar sem hún
velur eitt hlutverk, fær aðra
söngvara með sér og klippir saman
styttri útgáfu af einni óperu.
„Ég er ekki búin að velja hlutverk
enn en hallast að því að velja eitt-
hvað af óperum rannsóknarinnar.
Flestar af þessum óperum eru
skrifaðar á síðustu fimmtán árum
en ég hef sérstaklega gaman af
nútímatónlist og hlakka til að kafa
almennilega ofan í eitt af þessum
hlutverkum.“
Tónleikarnir hefjast kl. 19.30 í
Norræna húsinu. Hægt er að kaupa
súpu hjá Sónó matseljum kl. 18.
Miðasalan er á tix.is. n
Flestar þeirra fjalla
um fallegt sam-
kynja ástarsamband en
líka eru til óperur sem
fjalla um kynleiðrétt-
ingarferli trans konu,
Stonewall uppreisnina
og ofbeldi gegn hinsegin
einstaklingum svo
eitthvað sé nefnt.
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
ÚTSÖLULOK
50-70%
afsláttur
4 kynningarblað A L LT 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR