Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 32

Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Ég las nýverið að nýliðinn júlí- mánuður hefði verið afleitur hvað veðurfar varðar hér á höfuðborgar- svæðinu. Til marks um leiðinda- veðrið varð hámarkshiti í mánuð- inum hér tæpar 16 gráður og lítið sást til sólar. Ég hef áður kveinað á þessum vettvangi yfir íslensku veðri. En ekki í þessum pistli. Íslenskt veðurfar er nefnilega ekki svo slæmt. Eitt sinn fékk ég gott ráð sem getur nýst þegar lifað er við veðrið hér. Það er einhvern veginn svona: Þegar eitthvað amar að þá máttu vera viss um að einhver hefur það mun verra en þú. Um leið og maður hefur meðtekið þessa visku þá verður allt aðeins skárra. Íslenskt veðurfar er nefnilega ekki svo slæmt. Ég var nýverið í stuttu fríi í sunnanverðri Evrópu þar sem hitabylgja hefur legið yfir. Af þeim sökum einkenndist frí þetta af endalausri leit að kælingu, í sundlaug, skugga eða loftkældum rýmum og sífelldu vatnsþambi sem síðan gufaði upp í svita. Alls staðar var þessi alltumlykjandi steikjandi hitasvæla sem ómögu- legt var að flýja. Á einum tíma- punkti var ég farinn að hlakka til að verða aftur kalt og ég reyndi að ímynda mér tilfinninguna með trega. Ég verð að viðurkenna að slíkan söknuð hef ég hvorki fyrr né síðar upplifað. Vísindamenn spá því að þessi þróun muni aðeins aukast með þeim loftslagsbreytingum sem nú eiga sér stað. Hitabylgjur verða almennari og tíðni þeirra mun aukast verulega á næstu árum. Því er gott að vita næst þegar við ætlum að njóta íslensks sumars í júlí, í rigningu og beljandi roki, að einhvers staðar í heiminum er örugglega  kófsveittur miðaldra karl sem hlakkar til að verða aftur kalt. n Sumarhiti Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Skraut og fylgihlutir PRIDE 25-90% afsláttur af völdum vörum Skannaðu kóðann og skoðaðu tilboðin á byko.is Enn meirilækkunSUMAR MARKAÐS- DAGAR Fögnum fjölbreytileikanum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.