Breiðholtsblaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 6

Breiðholtsblaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 6
Þekkt er að virk þátttaka í félagsstarfi dregur úr einangrun, lífgar upp á daginn og getur sannar lega stuðlað að andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði og vellíðan. Á vegum Reykjavíkur­ borgar er starfrækt félagsstarf fyrir fullorðna á 17 stöðum vítt og breitt um borgina, þar af á þremur stöðum í Breiðholti; í Árskógum, Gerðubergi og Seljahlíð. Umsjón með félagsstarfinu hafa þau Anna Kristín í Árskógum, Álfhildur í Gerðubergi og Tómas Helgi í Selja­ hlíð. Segja þau félagsstarfið vera vettvang samfunda, félagslegra samskipta og skapandi athafna. Að leitast sé við að virkja frum­ kvæði og áhuga hvers og eins. Þau taka sérstaklega fram, að félagsstarfið sé opið öllum, að allir séu velkomnir. Þá segja þau heilsueflingu vera nokkurs konar leiðarstef í starfseminni. Það fylgi því mikil forvörn að taka þátt í félagsstarfi. „Gaman væri“, segja þau enn fremur „að félagsstarfið endurspeglaði hina fjölbreyttu íbúaflóru í Breiðholti“. Hægt er að kaupa hádegisverð á öllum þessum stöðum og kaffiveiting­ ar. Framboð er breytilegt milli staðanna þriggja og fólk getur farið á milli eftir áhuga og dagskrá hverju sinni. Anna Kristín segir ýmislegt vera í boði í félagsstarfinu Árskógum. „Við erum með smíðastofu með leiðbeinanda, leikfimi, samsöng, bridge, félagsvist, pílukast, pútt, handavinnu og margt fleira. Við leggjum mikið upp úr valdeflingu og hugmyndavinnu svo allir fái notið sín. Ef þú ert með hugmynd að einhverri tómstund, viðburði eða samveru að þá erum við sennilega með húsnæði fyrir það. Ég hvet fólk eindregið til að kíkja við og heilsa upp á okkur hér í félagsmiðstöðinni Árskógum“. segir Anna Kristín. Matjurtakassar til eigin ræktunar Álfhildur tekur í sama streng og Anna Kristín. „í félagsstarfi Fjöl­ skyldumiðstöðvar Gerðubergs er grunnmarkmiðið með félagsstarfinu að skapa fjölbreytilegt umhverfi og jákvæðan vettvang, þar sem flestir geta fundið farveg til frum­ kvæðis og sjálfstæðra athafna. Í félagsstarfinu er að finna hefðbund­ na og fasta dagskrárliði, eins og opna handavinnustofu, hreyfingu/ leikfimi, dans, myndlist, félagsvist bókband, kórstarf, sem og tilfallan­ di uppákomur og námskeið. Þess má geta, að nú er í undirbúningi bæði vorgleði og vorferðalag. Núna á vordögum getur fólk komið og fengið matjurtakassa til eigin ræktun ar sér að kostnaðarlausu. Um miðjan maí hefst alveg geggjað leikfimi­ og gönguprógramm hjá okkur, undir handleiðslu fagfólks, sem verður tvisvar í viku fram eftir sumri. Þá hafa sjálfstæðir hópar aðstöðu hér í Gerðubergi fyrir sín hugðarefni. Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi“. Gott start í kaffikarlahóp Tómas Helgi vill koma því á framfæri, að í Seljahlíð sé starfrækt gríðarlega vinsælt félagsstarf, sem er opið öllum Reykvíkingum, ekki bara íbúum og nágrönnum í Hjalla­ selinu. „Að sjálfsögðu eru allir vel­ komnir. Hjá okkur er góð virkni, má nefna leirmótun, leikfimi sem er fjórum sinnum í viku. Við höfum opna vinnustofu alla virka daga, þar sem er prjónað, málað, spilað og fleira. Við erum líka að leggja svolitla áherslu á að ná til karlanna, þeir eru oft tregari en konur að leita sér félagsskapar eftir starfslok. Við viljum svo gjarnan reyna að draga hinn „íslenska karlmann“ út úr skel sinni“ segir Tómas brosandi, „og við erum alveg komin með gott start í kaffikallahóp“. Að lokum segjast þau þre­ menning arnir hlakka til skemmti­ legs sumars í félagsstarfinu, þegar mannlífið fer að blómstra og Breiðholtið að skarta sínu fegursta. Álfhildur Hallgríms. 6 Breiðholtsblaðið MAÍ 2022 Augl‡singasími: 511 1188 Opið félagsstarf í Breiðholti á vegum borgarinnar Málþing um kosningar og lýðræði Nauðsyn að sem flestir nýti kosningarétt sinn. Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar stóð fyrir opnu málþingi á ensku í Gerðubergi laugardaginn 23. apríl sl. þar sem fjallað var um kosningar og lýðræði. Frummælendur á málþinginu voru Eliza Reid forsetafrú, Sabit Veselaj, Marion Poilvez, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir og Sabine Leskopf formaður fjölmenningarráðs. Tilgangur málþingsins var að minna á að Ísland sé lýðræðisríki þar sem borgarbúar velja sér fulltrúa til þess að fara með valdið fyrir sína hönd yfir tiltekið tímabil. Forsenda þess sé að fólk taki þátt í kosningum. Samfélagið sé eitthvað sem allir eiga að taka þátt í að móta og byggja upp. Margt fólk af erlendum uppruna býr í Breiðholti sem sumt kemur frá samfélögum þar sem lýðræði er með öðrum hætti en hér eða jafnvel ekkert. Á málþinginu var lögð áhersla á að ef ákveðnir hópar í samfélaginu noti ekki kosningarétt sé hætta á því að hagsmunir þeirra fái minni athygli en annarra. - leitast við að virkja frumkvæði og áhuga hvers og eins UMHVERFISVÆN ÍSLENSK HÖNNUN ERUM FLUTT Á KLAPPARSTÍG 29 ASWEGROW.IS Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is Súmba-dansleikfimi í Fjölskyldumiðsstöðinni Gerðubergi.

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.