Skessuhorn - 23.02.2022, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 20222
Víða rafmagns-
truflanir
VESTURLAND: Á mánu
dagskvöld og fram á þriðjudag
var víða rafmagnslaust á Vestur
landi þegar djúp lægð gekk yfir
landið með tilheyrandi hvass
viðri og úrkomu. Um tíma á
mánudagskvöldið var straum
laust í Borgarfirði og á Snæfells
nesi og á sama tíma á norðan
verðri Hvalfjarðarströnd. Raf
magnsbilun varð einnig á
Landsnetinu og því straumlaust
frá Glerárskógi í Dölum. Á
þriðjudag var m.a. straumlaust í
Lundarreykjadal og á nokkrum
bæjum á ofanverðum Mýrun
um. -mm
Þriggja bíla
árekstur
RIF: Á tólfta tímanum á laugar
daginn varð þriggja bíla árekstur
við afleggjarann að Rifi á Snæ
fellsnesi. Tölvuverðar skemmd
ir urðu á tveimur bílum. Ekki
urðu slys á fólki. Skafrenningur
var á svæðinu og lítið skyggni.
-af
Erlendir ferða-
menn í vanda
BORGARFJ: Hringt var í
Neyðarlínuna rétt eftir kvöld
matarleytið á mánudaginn og
tilkynnt um bílveltu á þjóðveg
inum við Hraunfossa í Borgar
firði. Þar var um að ræða er
lenda ferðamenn, hjón með
fjögur börn sem höfðu komið
sér í vandræði, en þegar björg
unarsveit kom á staðinn kom í
ljós að ekki var um bílveltu að
ræða heldur einungis hræðslu
þeirra við að bíllinn myndi
velta. Vitlaust veður var á vett
vangi og var fólkið ferjað yfir í
björgunarsveitarbíl og komið í
skjól. -vaks
Bíll rann til
á annan
AKRANES: Í óveðrinu um
níuleytið á mánudagskvöldið
rann bifreið til og fauk á aðra
kyrrstæða bifreið í mikilli hálku
á bílastæði við Jaðarsbakka.
Öku maður slapp ómeiddur og
lítið tjón var á bifreiðunum.
-vaks
Fastir á
Bröttubrekku
DALABYGGÐ: Hringt var
í Neyðarlínuna seinni part
mánudags þar sem vegfar
andi hafði tilkynnt um erlenda
ferðamenn sem voru fastir á
ferð sinni í Bröttubrekku, en
gat ekki aðstoðað þá. Björg
unarsveit var kölluð út og sótti
fólkið en alls voru þrír í bílnum.
-vaks
Landinn hefur verið duglegur
samkvæmt fréttum að skella sér
suður á bóginn í vetur og forða
sér frá þessu skítaveðri sem hef-
ur verið duglegt að minna á sig
síðustu daga og vikur. Það er
því líklegt að þeir sem hafa hug
á því að skella sér í gott sumar-
frí erlendis næsta sumar séu á
fleygiferð þessa dagana á takka-
borðinu á tölvunni að panta sér
ferð. Svo eru það hinir sem velta
sér ekki mikið upp úr veðrinu
enda búum við á Íslandi og bíða
bara átekta. Svo er bara að vona
að veðrið hér heima verði bara
fínt í sumar og þá sérstaklega
þar sem maður sjálfur býr.
Á fimmtudag er gert ráð fyr-
ir norðan 13-18 m/s og éljum
en léttskýjuðu sunnan heiða.
Frost 1 til 8 stig. Lægir seinni-
partinn, styttir upp og herðir á
frosti. Á föstudag gengur í suð-
austan hvassviðri eða storm
með snjókomu, fyrst sunnan til.
Suðlægari og rigning eða slydda
á láglendi eftir hádegi, en lengst
af úrkomulítið norðaustanlands.
Hlýnandi veður, hiti um frost-
mark um kvöldið. Á laugardag
má búast við suðvestan strekk-
ingi og éljum, en bjart með köfl-
um á Norður- og Austurlandi.
Frost víða 0 til 5 stig. Á sunnu-
dag verður fremur hæg breyti-
leg átt og él á víð og dreif. Frost
1 til 6 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Á hvaða áratug var
besta tónlistin að þínu mati?“
Mjótt var á munum á fyrstu
þremur en 33% sögðu áratuginn
1960-1969 bestan, 30% sögðu
1970-1979 og 25% sögðu 1980-
1989. Aðeins 8% sögðu 1990-
1999 og áratugirnir 2000-2009
og 2010-2019 ráku lestina með
aðeins 2%.
Í næstu viku er spurt:
Hver af þessum dögum (í
næstu viku) er í mestu uppá-
haldi hjá þér?
Húsasmiðir hafa aldrei haft jafn
mikið að gera og þessa síðustu
daga og mánuði. Þeir þurfa oft
að vinna við alls kyns aðstæður
og ansi lengi þessa dagana. All-
ir húsasmiðir, nær og fjær, eru
Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Þýska fyrirtækið Baader hefur
eignast allt hlutafé í Skaginn 3X,
en samningur þess efnis var undir
ritaður á mánudaginn. Baader
keypti eins og kunnugt er 60%
hlutafjár í fyrirtækinu í lok árs
2020 eftir að fyrrum eigendur leit
uðu eftir fjárfestum til að styðja
við félagið og rekstrarfélög þess.
Baader hefur nú keypt eftirstand
andi 40% hlut af IÁhönnun, fyr
irtækis í eigu Ingólfs Árnasonar
frumkvöðuls og fjölskyldu hans.
„Þetta eru góðar fréttir fyrir fyrir
tækið og starfsmenn þess og fyrir
tækið verður nú betur í stakk búið
að takast á við skuldbindingar sín
ar og þær kröfur sem gerðar eru
til fyrirtækisins,“ segir Jeff Dav
is, stjórnarformaður Skaginn 3X, í
tilkynningu sem send var fjölmiðl
um síðasta mánudag.
Skaginn 3X verður nú að öllu
leyti hluti Baader samstæðunn
ar og hefst samþætting starfsemi
félaganna nú þegar og er reiknað
með að henni ljúki á næstu mánuð
um. Jeff Davis, sem gegnt hef
ur starfi stjórnarformanns, verður
áfram í því hlutverki og Guðjón
Ólafsson mun áfram gegna starfi
sem tímabundinn forstjóri.
mm
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð
ar síðastliðinn fimmtudag urðu
töluverðar umræður um byggingar
og skipulagsmál í Borgarnesi. Með
al annars var fjallað um „ramma
samning um samstarf við upp
byggingu íbúðahverfis í Bjargslandi
II,“ sem undirritaður var við hátíð
lega athöfn 11. mars 2021 við ný
stofnað fyrirtæki Slatta ehf. Slatti
ehf. er félag í eigu þriggja fyrir
tækja í Borgarbyggð; Steypustöðv
arinnar, Eiríks J Ingólfssonar og
Borgarverks. Fyrirtækið var stofn
að í þeim tilgangi að sinna gatna
Slatti vill hverfa frá slatta af
byggingaráformum sínum
gerð og byggja upp íbúðarhús
næði við göturnar sem í núgild
andi deiliskipulagi nefnast Sól
eyjarklettur, Fífuklettur og Birki
klettur í Bjargslandi II. Í samn
ingnum við Borgarbyggð var skil
greint að í fyrri áfanga verkefnisins
yrðu byggð sex fjölbýlishús við Sól
eyjarklett, með alls 30 íbúðum. Frá
því skrifað var undir samninginn
og til dagsins í dag er eitt fjölbýlis
húsanna risið, sökklar komnir að
tveimur að auki og byrjað á jarð
vegsskiptum á næstu lóðum. Tafir
hafa orðið á að hægt væri að bjóða
íbúðirnar til sölu þar sem fyrr
greind sex fjölbýlishús í fyrri áfanga
voru skilgreind á einni lóð. Unnið
er að skipulagsbreytingu til að lag
færa það. Í öðrum áfanga verkefnis
ins skyldi svo byggja um fjöru
tíu rað og einbýlishús við göturn
ar Fífuklett og Birkiklett, en Slatti
ehf. hefur nú lýst áhuga sínum á að
losa sig undan öðrum áfanga samn
ingsins.
Í bókun af fundi byggðarráðs
segir: „Fyrir liggur að Slatti ehf.
hefur óskað eftir því að endurskoða
samkomulag um uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis í Bjargslandi.
Sveitarstjóra er falið að leggja fram
tillögur að breytingum á sam
starfssamningi. Byggðarráð leggur
áherslu á að ekki verði frekari tafir
á uppbyggingu á svæðinu.“
Ekki kemur fram í bókun
byggðarráðs hver ástæða breyttra
forsenda er af hálfu Slatta ehf. Þór
dís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri
segir í samtali við Skessuhorn að
ástæðan sé einkum góð verkefna
staða fyrirtækjanna sem standa að
baki félaginu. Það sé í eðli sínu já
kvætt að fyrirtækin hafi nóg fyrir
stafni. Þórdís segir að nú sé unnið
að samningi við Slatta ehf. til að
unnt verði að gera upp verkefnið.
„Ég lít þannig á að í þessu felist
tækifæri, þótt vissulega hefði verið
ánægjulegt að geta lokið verkefninu
samkvæmt rammasamningnum við
Slatta ehf. Sveitarfélagið mun nú
ljúka við gerð skipulags fyrir ann
an áfanga verkefnisins og í leiðinni
skoða hvernig staðið verði að
gatnagerð og uppbyggingu íbúðar
húsnæðis á svæðinu. Við leggjum
áherslu á að lóðirnar verði tilbúnar
til byggingar sem fyrst enda mikil
eftirspurn eftir lóðum og húsnæði í
Borgarnesi.“
Á sama fundi byggðarráðs kom
fram að samþykkt var úthlutun
þriggja einbýlishúsalóða við göturn
ar Stöðulsholt og Stekkjar holt. Eft
ir úthlutun þeirra eru engar lausar
einbýlishúsalóðir í Borgarnesi. Því
samþykkti byggðar ráð einnig fyrir
sitt leyti að hefja vinnu við skipulag
nýrrar götu. Hin nýja gata hefur
ekki hlotið nafn, en verður Borg
arfjarðarmegin í Bjargslandinu í
beinu framhaldi af Fjólukletti, vest
an Kveldúlfshöfða. Þar yrðu allt
að 23 lóðir samkvæmt fyrstu hug
myndum um nýtt skipulag.
mm
Undir lok síðustu viku var unnið við jarðvegsskipti undir fleiri fjölbýlishús við
Sóleyjarklett. Eitt húsanna er risið og komnar botnplötur að næstu tveimur.
Ljósm. mm.
Athafnasvæði Skaginn 3X á Akranesi. Ljósm. mm.
Baader eignast allt hlutafé
í Skaginn 3X