Skessuhorn - 23.02.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 20224
Þegar þetta er ritað er mánudagskvöld. Ég hangi þó enn í vinnunni, á ein
hvers konar veðurvakt, en er að ljúka skrifum á þeim fréttum sem ekki geta
beðið, og leggja drög að leiðara. Úti er brostið á það sem kallað er ofsaveð
ur, eða öllu heldur mánudagsveður. Búið er að flagga rauðu viðbúnaðar
stigi á landinu. Víðáttumikil lægð er nú búin að æra litakóðakerfið sem
veðurfræðingar okkar hönnuðu að erlendri fyrirmynd fyrir nokkrum árum
og nota óspart í samstarfi við aðrar stofnanir sem vinna að almannaheill.
Litakóðakerfið á að vera svo einfalt að bæði ég og aðrir eigum að skilja það.
Enda er þetta ekki svo flókið. Ef við viljum ekki aka yfir á rauðu ljósi, hví
ættum við þá að fara út að nauðsynjalausu á rauðu flaggi ef okkur er bann
að það?
Þetta mun líklega vera í annað eða þriðja skiptið sem flaggað er rauða
spjaldinu. Á mannamáli þýðir rauð viðvörun að lengra er ekki hægt að
teygja sig í aðvörunarstigi. Hættulegt er að vera úti og við þessar aðstæður á
fólk því að halda sig heima, með alla glugga lokaða og helst breiða sængina
vel yfir höfuð. Vegum hefur verið lokað, ekki síst til að ofurhugar og þeir
allra fífldjörfustu æði ekki út í óvissuna, fari sér að voða eða þurfi að láta
leita að sér við vonlausar aðstæður. Á vef Veðurstofunnar er þessa stund
ina ákaflega skrautlegt pastellitað kort, en litasjatteringin á því eru notaðar
til að tákna mismunandi vindhraða. Fjólublátt og orange er til dæmis ör
ugglega tákn fyrir inniveður. Þessa stundina er þetta kort svo skrautlegt að
það líkist einna helst því að nútímalistamaður hafi snappað; misst úr máln
ingardollunum ofan á Íslandskortið. Látið litina einhvern veginn renna út í
hrærigraut en hlaupið svo frá öllu saman. Líklega farið undir sæng eins og
við hin eigum að gera og breitt yfir haus.
En þrátt fyrir allar hamfaraspár er ég nokkuð rólegur. Kannski af því ég
hef upplifað miklu verra veður en þetta sem nú er að hellast yfir og átti eftir
að verða raunin. Það versta sem ég hef upplifað var í febrúar 1981, í veðri
sem kennt er við Engihjalla í Kópavogi af því þar fuku bílar eins og lufs
ur um stæði. Þennan vetur var ég nemandi í Héraðsskólanum í Reykholti.
Milli húsa komu svo öflugir vindstrengir ofan úr Rauðsgilinu að í einni
slíkri hviðu hreinlega tókst ég á loft (þarf þó mikið til). Vissulega óþægileg
tilfinning en mér til happs varð ljósastaur á leið minni sem ég greip í, lík
lega sá eini á svæðinu og gat skriðið þaðan í húsaskjól. Vissulega ekki góð
minning, en engu að síður áminning um að bera virðingu fyrir náttúruöfl
unum. Í þá daga var ekki búið að finna upp nema tólf vindstig, enga metra
á sekúndu og alls ekki pastellitakerfi listamannsins sem snappaði.
Dagurinn, kvöldið og nóttin leið. Ég komst heim um kvöldið og beið
frétta af þessu hamfaraveðri. Vissulega var hvasst, allavega ef marka má
fréttamenn RÚV og Stöðvar 2 sem létu enn einu sinni etja sér út í að standa
úti á vegi og öskra fréttir í beinni. Ég tel einboðið að það séu einhverjir
innivinnandi fréttastjórar sem láta starfsmenn sína sínkt og heilagt fara út
í vond veður, jafnvel þótt veðuraðstæður séu með því móti að óráðlegt er
fyrir allt annað fólk að vera á ferðinni! Þessir blautu draumar fréttastjór
anna er rannsóknarefni út af fyrir sig.
En þá kem ég að því sem ég ætlaði að segja. Mér fannst veðrið síðasta
mánudag ekki hafa verið með þeim hætti að nota hefði átt rauða viðvör
un. Líklega er vandamálið það að appelsínugula viðvörunin er ekki nógu
víðtæk. Hún hefði átt að gilda fyrir allt landið síðasta mánudag og sér
fræðingarnir átt að spara þessa rauðu. Ég nefnilega óttast að ofnotkun
rauðra viðvarana leiði til þess að fólk hætti að taka mark á þeim. Þá fyrst
er hætta á ferðum, allavega þegar næsta Engihjallaveður brestur á. Hver
kannast ekki við ævintýrið Úlfur – úlfur?
Magnús Magnússon
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Eins og abstrakt listaverk
Framkvæmdir við nýtt fjörutíu
húsa hverfi á Húsafelli í Borgar
firði ganga vel að sögn Bergþórs
Kristleifssonar. Að jafnaði eru 20
26 starfsmenn sem koma að verk
efninu. Fjórtán hús hafa verið reist
og eru fimm nálægt því að verða
fokheld. Spurður hvenær megi bú
ast við því að fyrstu eigendur geti
flutt í sín hús segist Bergþór ekki
geta lofað neinu um það. „Við get
um vonandi afhent hús tilbúin til
innréttinga í næsta mánuði en það
er erfitt að segja nákvæmlega til um
það núna,“ svarar hann og bætir við
að bráðlega verði farið að smíða
fleiri grindur fyrir þær plötur sem
nú eru tilbúnar. „Svo verður farið
að steypa meira um leið og það vor
ar aðeins. Þetta er allt á fleygiferð,“
segir Bergþór ánægður.
arg/ Ljósm. Þórður Kristleifsson
Starfsfólk á Kaffi 59 í Grundarfirði
tók forskot á sæluna og bauð upp
á bollukaffi á sunnudaginn. Bollu
dagurinn sjálfur er ekki fyrr en
mánudaginn 28. febrúar og því ekki
seinna vænna en að skella í boll
ur. Grundfirðingar tóku framtak
inu vel og voru duglegir að mæta
og gæða sér á nýbökuðum bollum.
Eflaust verður þó enn betur tekið á
því við bolluát næsta mánudag.
tfk
Á dögunum uppgötvaðist að hluti
af vatni Laxár á Breið, ofan við Rif
í Snæfellsbæ, var ekki þar sem hún
átti að vera, en eftir töluverða snjó
komu síðustu daga hafði myndast
krapastífla í ánni fyrir ofan gömlu
brúna. Þar er varnargarður sem áin
rauf. Guðjón Hrannar Björnsson
hjá Vegagerðinni telur að um tí
undi hluti af ánni hafi runnið fram
hjá þessum varnargarði og hafði
myndast stórt lón fyrir norðan ána.
Síðast liðinn föstudag var fengin
grafa frá Stafnafelli í Snæfellsbæ
til að laga garðinn. Einhvern tíma
mun taka fyrir vatnið að sjatna en
þegar snjóa leysir kemur í ljós hvort
einhverjar aðrar skemmdir hafa
orðið. þa
Anna Guðrún Aðal-
steinsdóttir annar
eigandi Kaffi 59 er hér
kampakát með fullan
bakka af bollum fyrir
gesti.
Tóku forskot á bollu-sæluna
Hér má sjá hvar varnargarðurinn gaf sig. Talsvert neðar er brúin yfir ána.
Vatn rauf varnargarð við Laxá á Breið
Framkvæmdir ganga vel á Húsafelli