Skessuhorn - 23.02.2022, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 5
VERKEFNASTJÓRI BROTHÆTTRA BYGGÐA Í DALABYGGÐ
Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu samfélaga?
Við auglýsum eftir verkefnisstjóra til að leiða verkefni brothættra byggða í Dalabyggð. Verkefnið er
fjölbreytt og tengist byggðaþróun í víðum skilningi.
Verkefnið er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar,
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Dalabyggðar.
Um fullt starf er að ræða með starfsstöð í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og þarf viðkomandi að geta
hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar til eflingar byggðar og mannlífs í Dalabyggð
Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa
Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í byggðalaginu
Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í verkefninu, háskólamenntun er kostur
Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun
Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
Góð tölvu- og tæknifærni
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í mannlegum samskiptum
Verkefnisstjóri verður starfsmaður Samtak sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) sem vinnur að ýmiskonar
samstarfsverkefnum fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, auk þess að sinna stoðþjónustu hvað varðar
atvinnulíf, byggðaþróun, menningu og ferðaþjónustu. Hjá SSV eru 12 starfsmenn sem starfa um allt
Vesturland. Auk þess mun verkefnastjóri starfa náið með sveitarfélaginu Dalabyggð. Í Dalabyggð
búa um 660 manns, þar af um 40% í Búðardal. Sveitarfélagið nær frá Álftafirði á Snæfellsnesi til
Gilsfjarðar á mörkum Vestfjarða og býr yfir mikilli náttúrufegurð. Dalabyggð er friðsælt og rótgróið
samfélag, hlaðið sögu og menningu.
Umsóknarfrestur er til 7. mars 2022. Umsóknir skal senda á netfangið ssv@ssv.is
Nánari upplýsingar veita:
Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV - pall@ssv.is - 433-2310
Kristján Sturluson sveitarstjóri í Dalabyggð - sveitarstjori@dalir.is - 430-4700
Í Skessuhorni í síðustu viku var sagt
frá því að Akraneskaupstaður hefði
samþykkt að gera leigusamning við
Línuvélar ehf. um húsnæði fyr
ir Fjöliðjuna að Smiðjuvöllum 28
til þriggja ára. Skessuhorn heyrði í
Gísla Kristóferssyni, eiganda Línu
véla fyrir helgi, og segir hann að
þessa dagana séu þeir að innrétta
og breyta húsnæðinu en húsið var
upphaflega byggt af Skagaverki.
Húsið er samtals um tólf hundruð
og fimmtíu fermetrar að grunn
fleti og er að stærstu leyti á tveim
ur hæðum. Hluti af skjólstæðingum
Fjöliðjunnar verða með starfsemi í
austurendanum á jarðhæð hússins
en sá hluti er einn tíundi af stærð
hússins og er stefnt að því að starf
semin verði færð í húsið á næstu
dögum eða vikum. Gísli segir að
húsið sé hólfað niður og eru alls
14 möguleg rými eftir því hvernig
á það er litið. „Við eigum í samtali
við einn aðila af svæðinu um mögu
lega leigu á stærsta hluta hússins en
það er ekki frágengið. Þetta tekur
allt sinn tíma en við stefnum á að
ljúka samningum vonandi á allra
næstu dögum,“ segir Gísli.
vaks
Rithöfundarnir Einar Kárason og
Óttar Guðmundsson munu laugar
daginn 26. febrúar klukkan 14 ræða
meðal annars um Eyrbyggju og
Sturlungu eins og þeim einum er
lagið. Samkoman verður í Skildi í
Helgafellssveit.
Einar og Óttar hafa báðir, hvor
á sinn hátt, gert Íslendingasögurn
ar að umfjöllunarefni í bókverk
um sínum undanfarin misseri. Ein
ar, einn ástælasti höfunda lands
ins, hefur skrifað fjórar bækur
sem byggja á sögulegum viðburð
um þrettándu aldar. Bækurnar eru
Óvinafagnaður, Ofsi sem hlaut Ís
lensku bókmenntaverðlaunin,
Skáld og Skálmöld. Bækur Einars
hafa hlotið einróma lof og vak
ið áhuga fólks á þessu róstursama
tímabili Íslandssögunnar.
Óttar Guðmundsson geðlæknir
og rithöfundur hefur undanfarin ár
velt fyrir sér geðrænum vandamál
um í Íslendingasögunum á þrett
ándu öld. Bækur Óttars; Frygð og
fornar hetjur, Hetjur og hugarvíl
og Sturlunga geðlæknisins, fjalla á
einn eða annan hátt um geðvanda
mál sögupersóna í Íslendinga
sögunum og hvaða áhrif þau höfðu
á framgang sagnanna auk þess sem
Óttar gerir ástalíf höfuðpersónanna
að umfjöllunarefni í þeim. Helstu
sögupersónur Íslendingasagnanna
leggjast á bekkinn á geðlækninum.
Blásið er til sagnaskemmtunar
í Skildi á vegum Eyrbyggjasögu
félagsins í Helgafellssveit. Félagið
hefur undanfarið ár unnið að undir
búningi sýningar í félagsheimil
inu Skildi, byggða á Sögu Þórsnes
inga, Eyrbyggja og Álftfirðinga þar
sem sögusvið hennar er í næsta ná
grenni auk þess að teygja sig víðar
um Snæfellsnes. Sagan skipar sér í
hóp fimm bestu og margslungnustu
Íslendingasagnanna að mati fræði
manna. Margar sögur innan úr
heildarverkinu eru vinsælar t.a.m.
sagan um Berserkina sem hvert
skólabarn á Snæfellsnesi þekkir. Á
síðasta ári stóð félagið fyrir þremur
gönguferðum á söguslóðir sögunn
ar og var þátttaka góð. Námskeiðið
Undur Eyrbyggju með Torfa
Tuliniusi prófessor í miðaldabók
menntum í Háskóla Íslands var svo
haldið í tengslum við gönguferð
irnar og var góður rómur gerður
af námskeiðinu og þátttaka fra m
úr björtustu vonum. Á árinu er ætl
unin að brydda upp á enn frekari
dagskrá í tengslum við söguna í fé
lagsheimilinu á Skildi auk þess sem
Húsið á Smiðjuvöllum er um rúmlega tólf hundruð fermetrar að grunnfleti.
Ljósm. vaks
Fjöliðjan fer með hluta af sinni
starfsemi á Smiðjuvelli 28
Sagnaskemmtan í
Skildi í Helgafellssveit
unnið verður hörðum höndum að
undirbúningi Eyrbyggjusýningar
innar sjálfrar.
Allir eru hjartanlega velkomn
ir, aðgangseyrir 1000 kr. Kaffi
veitingar.
-fréttatilkynning
www.skessuhorn.is