Skessuhorn - 23.02.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 20226
Snjóflóð lokaði
Klofningsvegi
DALIR: Stórt snjóflóð féll á
mánudagsmorgun við Heina
berg á Skarðsströnd og lok
aði Klofningsvegi. Flóðið var
um 150 metra breitt á vegi og
um 2,2 metrar þar sem það var
dýpst. -arg
Rafrænar um-
sóknir á Íbúagátt
HVALFJ.SVEIT: Sveitarfé
lagið hefur tekið í notkun On
eLand Robot rafrænt umsókn
ar og afgreiðslukerfi fyrir um
sóknir um byggingaráform og
byggingarleyfi. Hönnuðir eða
eigendur geta nú með auðveld
um hætti sent inn rafrænar um
sóknir, tilnefnt byggingarstjóra
og iðnmeistara og þeir hin
ir sömu staðfest sig á verk. Allt
ferlið er rafrænt þar sem all
ar aðgerðir eru staðfestar með
rafrænum skilríkjum í farsíma.
-vaks
Á sjöunda hund-
rað með Covid
VESTURLAND: Lögreglan á
Vesturlandi birti á mánudaginn
tölur um fjölda fólks í einangr
un með Covid19 í landshlutan
um. Töluvert hafði fjölgað síð
an fyrir helgi, eða um 70 manns,
voru 616. Á Akranesi eru nú
353 með Covid19, í Borgar
byggð 100, í Stykkishólmi 57,
í Snæfellsbæ 40, í Grundarfirði
36 og 30 í Dalabyggð. -mm
Aukaferðir
Baldurs
STYKKISH: Að beiðni Vest
urbyggðar og Tálknafjarð
ar hafa verið settar á aukaferð
ir nokkra daga, frá Stykkis
hólmi kl. 9:00 og frá Brjáns
læk kl. 12:00. Næstu aukaferðir
verða miðvikudaginn 23. febr
úar, fimmtudaginn 24. febrúar,
sunnudaginn 27. febrúar, mið
vikudaginn 2. mars og fimmtu
daginn 3. mars. Seinni ferð
ofan greinda daga er samkvæmt
áætlun kl. 15:00 frá Stykkis
hólmi og kl. 18:00 frá Brjáns
læk. -mm
Fjöliðjan fær
bifreið með lyftu
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraness í síðustu viku var tek
ið fyrir erindi sviðsstjóra vel
ferðar og mannréttindasviðs
og forstöðumanns Fjöliðjunn
ar varðandi heimild til kaupa
eða til leigu á bifreið með
lyftu fyrir hjólastóla fyrir starf
semi Fjöliðjunnar. Bifreiðarn
ar sem eru til staðar í dag anna
ekki verkefnum og möguleg
staðgengilsbifreið sem er með
rampi en ekki lyftu er ekki nýt
anleg öllum þjónustuþegum þar
sem sumir hjólastólarnir eru
einfaldlega of þungir til að ýta
upp hjólastólarampinn. Bæjar
ráð samþykkti að ráðist verði
í að leigja sérútbúna bifreið
með lyftu fyrir hjólastóla fyrir
starfsemi Fjöliðjunnar en mál
ið mun koma að nýju til bæjar
ráðs þegar fyrir liggur mögulegt
leiguverð. -vaks
Vetrarhátíð um
miðjan mars
AKRANES: Á fundi menn
ingar og safnanefndar Akra
neskaupstaðar síðastliðinn
fimmtudag var ákveðið að
standa fyrir Vetrarhátíð dag
ana 17. til og með 20. mars
næstkomandi. Stofnanir Akra
neskaupstaðar og fyrirtæki
verða virkjuð til sjálfsprottinn
ar þátttöku og að glæða bæj
arbraginn lífi, segir í fundar
gerðinni. Þá fagnar menn
ingar og safnanefnd frum
kvæði samtakanna Hinseg
in Vesturlands á síðasta ári og
mun mælast til að stofnanir
bæjarins og fyrirtæki á Akra
nesi taki þátt í viðburði sam
takanna á komandi sumri með
sýnilegum hætti. -vaks
Lítið eitt minni
loðnukvóti en
upphaflega var
gefinn út
LANDIÐ: Hafrann
sóknastofnun lagði á föstu
daginn til að loðnuafli á ver
tíðinni verði ekki meiri en
869.600 tonn. Það þýð
ir 34.600 tonna lækkun ráð
gjafar frá þeirri sem gefin var
út 1. október 2021. Ráðgjöf
in byggir á samteknum niður
stöðum á mælingum á stærð
veiðistofns í haustleiðangri
og leiðöngrum sem fóru fram
frá 19. janúar til 14. febrúar.
Útgerðarfyrirtækin og aðrir
hagsmunaaðilar munu vænt
anlega getað andað léttar við
þessu tíðindi, þar sem allt eins
var búist við meiri skerðingu í
endanlegri úthlutun heimilda.
-mm
Mánudaginn 7. febrúar, þegar
óveður gekk yfir landið, voru
Grundfirðingar án læknis og
þurftu að treysta á að komast yfir
í nærliggjandi sveitarfélög til að
sækja heilbrigðisþjónustu. Þenn
an dag vildi svo illa til að nokkur
óhöpp eða vinnuslys urðu í bæn
um, þar af þurfti að flytja einn suð
ur með sjúkrabíl.
„Það sem við vorum sérstaklega
óhress með þennan dag var að alls
staðar voru björgunaraðilar, stofn
anir og fyrirtæki að undirbúa sig
fyrir rauða og appelsínugula við
vörun en læknir var þó ekki kominn
til okkar á mánudegi. Ég er fyrst og
fremst vonsvikin því það var vitað
af þessu óveðri með góðum fyr
irvara,“ segir Björg Ágústsdóttir
bæjar stjóri í Grundarfirði í samtali
við Skessuhorn.
Í Grundarfirði koma vaktlækn
ar á mánudögum og fara á föstu
dögum og um helgar þurfa bæjar
búar að treysta á læknavakt í Ólafs
vík. „Það er ekki fastur læknir hér
og það fylgja þessu fyrirkomulagi
margvísleg óþægindi. Fyrirkomu
lagið þýðir að við erum alltaf að
skipta um lækna, sem er ekki gott.
Sama fyrirkomulag er á öðrum
stöðum á Snæfellsnesi; í Ólafsvík
og að hluta til í Stykkishólmi. Að
stóla á læknaferðir á milli staða er
ekki alveg einfalt, því hér á okkar
svæði geta veður orðið mjög slæm,
eins og í Búlandshöfða og ekki alltaf
fært fyrir alla bíla hér á milli. Það
eiga heldur ekki allir bíla og það
eru ekki almenningssamgöngur á
þessu svæði. Þetta snýst ekki bara
um þann tíma sem fer í keyrslu á
milli bæjarfélaga, sem er ekki lang
ur við bestu aðstæður, heldur þá
staðreynd að stundum er bara ekki
hægt að fara á milli,“ segir Björg og
bætir því við að vegna óveðurs og
lokunar á Kjalarnesi viku seinna,
mánudaginn 14. febrúar, var einnig
læknislaust í Grundarfirði þann
dag. „Því er öryggi okkar að mínu
mati alls ekki nógu vel tryggt,“ seg
ir Björg. „Hér á Snæfellsnesi höf
um við sveitarstjórnarfólk átt fundi
og samtöl við Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, reglulega allt þetta
kjörtímabil um lausnir og tækifæri
til breytinga á þessu. Engin lausn sé
enn í sjónmáli,“ segir Björg.
arg
Í rokinu á mánudagskvöld losnaði
og fauk þakdúkur af húsi Héraðs
skólans í Reykholti, af þeim hluta
sem nú hýsir varaeintakasafn
Landsbókasafns Íslands. Að sögn
heimamanna er ekki talin hætta á
að regnvatn komist inn í húsið, en
undir dúknum er timbur og steypt
þakplata. Gengið verður í lagfær
ingar strax og veður gengur niður.
mm/ Ljósm. bhs
Grundfirðingar án
læknis í óveðrum
Þakdúkur fauk af gamla héraðsskólahúsinu