Skessuhorn - 23.02.2022, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 20228
Molakaffi og
meðlæti
GRUNDARFJ: „Molakaffi og
meðlæti“ er yfirskrift samveru
stunda á miðvikudögum í Sögu
miðstöðinni. Dagskrá er á milli
klukkan 14 og 16 en húsið opn
ar klukkan 13. Þar er mikið
spjallað og dagskrá getur verið
breytileg. Tónlistarskólanem
endur koma annað slagið, lista
menn líta við en fastur punkt
ur á hverjum hittingi eru ljós
myndir úr safni Bærings Cecils
sonar og að drekka saman kaffi.
-vaks
Ók undir áhrifum
HVALFJ.SVEIT: Síðasta
föstudagskvöld fór bíll út af
á Akrafjallsvegi á móts við
Garðavelli og fékk ökumað
ur bifreiðarinnar aðstoð við að
ýta henni aftur upp á veginn.
Sá hjálplegi lét síðan Neyðar
línuna vita og taldi að ökumað
ur væri ölvaður. Lögregla kom
á staðinn og handtók ökumann
inn sem er grunaður um ölv
unar og fíkniefnaakstur. Bíll
inn var skilinn eftir á vettvangi
en síðan sóttur af kranabíl. Mál
ökumannsins fór í hefðbundið
ferli og á hann von á kæru fyrir
athæfið. -vaks
Ók of hratt og
ekki með skír-
teini
SNÆFELLSNES: Ökumað
ur var tekinn á 132 km hraða
á föstudagskvöldið á Snæfells
nesvegi við Garða og var ekki
með ökuskírteinið með í för.
Hann fékk sekt upp á 130 þús
und krónur sem hann greiddi á
staðnum og tvo punkta í öku
ferilsskrána. Farþegi í bílnum
tók síðan við akstrinum og kom
þeim á leiðarenda. -vaks
Flautukonsert í
tvo tíma
AKRANES: Á þriðjudag í
liðinni viku var hringt í Neyðar
línuna og kvartað yfir hávaða
utan dyra á Hagaflöt á Akranesi.
Þegar lögregla kom á staðinn
kom í ljós að um bilaða flautu á
fjórhjóli var um að ræða. Hafði
hún látið í sér heyra í um tvær
klukkustundir. Eigandi hjóls
ins fór síðan með það í geymslu
og líklegast slökkti á flautunni í
leiðinni. -vaks
Endaði
á toppnum
BORGARFJ: Á laugardaginn
varð bílvelta þegar ökumaður
var að aka suður Holtavörðu
heiði á Biskupsbrekku á eft
ir öðrum bíl. Sá fór í gegnum
snjóskafl og blindaði ökumann
aftari bílsins sem missti stjórn á
honum. Bíllinn lenti á vegriði,
valt og endaði á toppnum. Ök
umaður slapp ómeiddur en far
þegi kenndi sér eymsla og voru
þeir fluttir á Akranes með við
komu á Heilsugæslunni í Borg
arnesi. Dráttarbíll kom frá
Borgarnesi og sótti bílinn sem
var á hvolfi á miðjum veginum.
-vaks
Ekið á naut
BORGARFJ: Föstudags
kvöldið síðasta var ekið á
naut á Hálsasveitarvegi við
Refsstaði. Tildrög óhapps
ins voru þau að nautgripur
komst út úr girðingu upp á
veg en rafmagn var farið af
girðingunni sem halda átti
skepnunum inni. Rétt eft
ir að bílar höfðu mæst hafði
nautið farið beint inn á ak
brautina, í veg fyrir annan
bílinn og lenti hann á naut
inu. Farþegar bílsins sluppu
ómeiddir, bifreiðin var
óökufær og talsvert skemmd
en aflífa þurfti nautið eftir
áreksturinn. -vaks
Aflatölur fyrir
Vesturland
Fyrir
12.-18. febrúar. Tölur (í
kílóum) frá Fiskistofu
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 611.800 kg.
Mestur afli: Hákon EA:
589.540 kg í einni löndun.
Arnarstapi: Engar landanir
á tímabilinu
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 759.474 kg.
Mestur afli: Kap II VE:
161.357 kg í sex löndunum.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 521.079 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
109.448 kg í fimm löndun
um.
Rif: 15 bátar.
Heildarlöndun: 1.033.344
kg.
Mestur afli: Bárður SH:
190.072 kg í sjö róðrum.
Stykkishólmur: 6 bátar.
Heildarlöndun: 90.056 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
63.414 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hákon EA – AKR:
589.540 kg. 18. febrúar.
2. Rifsnes SH – RIF: 96.422
kg. 13. febrúar.
3. Jökull ÞH – GRU:
89.154 kg. 13. febrúar.
4. Sigurborg SH – GRU:
81.607 kg. 13. febrúar.
5. Harðbakur EA – GRU:
80.643 kg. 13. febrúar.
-arg
Eyjólfur Ármannsson, ásamt öðr
um þingmönnum Flokks fólksins,
og þeim Bjarna Jónssyni (VG) og
Ásmundi Friðrikssyni (D) hafa flutt
þingsályktunartillögu á Alþingi
þar sem lagt er til að ríkið hefji
nú þegar undirbúning fyrir kaup á
nýrri Breiðafjarðarferju. Þar til ný
ferja komi taki Herjólfur III við
siglingum yfir fjörðinn.
„Alþingi ályktar að fela innviða
ráðherra að láta kaupa nýja ferju
sem verði notuð í reglulegum
ferjusiglingum á Breiðafirði. Ferj
an uppfylli nútímakröfur um ör
yggi og þægindi í farþegaflutning
um og geti sinnt vöruflutningum
fyrir atvinnulíf og íbúa á Vestfjörð
um og við Breiðafjörð. Kannaðir
verði möguleikar á að ferjan verði
knúin með endurnýjanlegum orku
gjöfum. Vegagerðin hafi virkt sam
ráð við sveitarfélög á Vesturlandi
og Vestfjörðum um hvaða kröfur
ferjan skuli uppfylla. Þar til ný ferja
verður tekin í notkun skuli nýta
skipið Herjólf III, skráningarnúmer
2164, í reglulegum ferjusiglingum
á Breiðafirði. Eins fljótt og auðið
er, og eigi síðar en í júní 2022, skuli
hefja framkvæmdir á hafnarmann
virkjum á ferjuleið til að tryggja að
Herjólfur III geti tekið við ferju
siglingum sem fyrst,“ segir orðrétt
í fyrstu grein tillögunnar.
mm
Vegagerðin hefur óskað eftir til
boðum í nýbyggingu Vestfjarða
vegar í Þorskafirði á um 10,4
km kafla og um 0,2 km kafla á
Djúpadalsvegi. Eins og fram
kemur í útboðinu er um að ræða
áframhald af þverun Þorskafjarð
ar sem unnið er við núna. Þá er
eftir að bjóða út þveranir Djúpa
fjarðar og Gufufjarðar til að ljúka
við þennan hluta Vestfjarðavegar.
Gert er ráð fyrir að leggja há
spennustreng og ídráttarrör fyrir
ljósleiðara meðfram veginum. Til
að viðhalda sem best staðbundn
um gróðri á vinnusvæðinu eru
fyrirmæli í útboðsgögnum um að
taka upp gróðurtorfur úr vegstæði
og af skeringarsvæðum og setja
þær aftur við lok frágangs. Sam
kvæmt útboðsgögnum skal verk
inu að fullu lokið 15. október
2023. vaks
Á síðustu árum hefur hættan á
gróðureldum aukist talsvert hér á
landi m.a. vegna breytinga í veður
fari, vaxandi gróðursældar, minnk
andi búfjárbeitar og fleiri þátta.
Samkvæmt tölfræði Húsnæðis og
mannvirkjastofnunar (HMS) eru
gróðureldar orðnir stór áhættu
þáttur í náttúrunni hér á landi,
enda geta þeir valdið miklu eigna
og manntjóni og geta skaðað mik
ilvæga innviði.
Mikil hætta um
seinustu áramót
Á suðvesturhorni landsins var varað
sérstaklega við hættu á gróðureld
um í kringum síðustu áramót sök
um veðurfars og fólk beðið um að
fara með gát við notkun flugelda
og meðferð elds. Þrátt fyrir slík
ar aðvaranir hafa útköll aldrei ver
ið fleiri vegna gróðurelda um ára
mótin, en samtals voru 84 útköll á
innan við sólarhring á suðvestur
horni landsins. Ljóst er að mik
ið álag var á slökkviliðum um ára
mótin og mátti litlu muna að stór
tjón hefði orðið en margir af þeim
eldum sem kviknuðu voru rétt
við hús og var mikið um brennur
sem ekki var leyfi fyrir. „Við höf
um ekki séð þennan fjölda útkalla
áður á þessum tíma,“ er haft eftir
Lárusi Kristni Guðmundssyni sem
er settur varaslökkviliðsstjóri hjá
Brunavörnum Árnessýslu. Svip
aða sögu er að segja hér af Vestur
landi, en á síðasta ári var barist við
gróður elda á nokkrum stöðum í
landshlutanum.
Þörf á fleiri
slökkviskjólum
Á vegum HMS er að störfum starfs
hópur um varnir gegn gróðureld
um. Er hann skipaður fulltrúum
frá Almannavarnadeild ríkislög
reglustjóra, Félagi slökkviliðsstjóra,
Húsnæðis og mannvirkjastofn
un, Landssambandi slökkviliðs og
sjúkraflutningamanna, Lögreglu
stjórafélagi Íslands, Sambandi ís
lenskra sveitarfélaga, Skipulags
stofnun, Skógræktinni, Veðurstofu
Íslands og Verkís. Hópurinn hef
ur meðal annars það hlutverk að
vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum
gegn gróðureldum. „Í ljósi atburða
um áramótin áréttar starfshópurinn
mikilvægi þess að stjórnvöld beiti
sér fyrir því að tryggja slökkvilið
um og Landhelgisgæslunni aðgengi
að slökkviskjólum sem lykilbúnað
til að takast á við gróðurelda hvar
sem er á landinu. Í dag er einung
is til ein slökkviskjóla sem keypt
var frá Kanada í fyrra þegar eldri
skjóla eyðilagðist við slökkvistörf í
Heiðmörk síðastliðið vor og hefði
því lítið mátt út af bregða til að illa
færi. Að mati starfshópsins og mið
að við fyrirliggjandi gögn um aukna
gróður eldahættu hér á landi er
nokkuð ljóst að efla þarf viðbúnað
við gróðureldum með því að tryggja
aðgengi að fleiri en einni slökkvi
skjólu svo viðbragsaðilar séu í stakk
búnir að bregðast við gróðurelda
vánni,“ segir í tilkynningu. mm
Leggja til nýja Breiðafjarðarferju
og að Herjólfur taki við
Yfirlitsmynd yfir vegarkaflann sem er í útboðinu. Ljósm. af vef Reykhólahrepps.
Leiðin Þórisstaðir
- Hallsteinsnes boðin út
Tæplega 200 skráðir
gróðureldar á síðasta ári
Barist við eld í þéttum skógi við sumarhúsahverfi í Borgarhreppi fyrir nokkrum
árum. Ljósm. úr safni/mm.