Skessuhorn - 23.02.2022, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 9
Skrifstofustjóra Reykhólahrepps
Dagur í lífi...
Nafn: Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Hús
freyja á Litlu Grund, gift Guð
mundi Ólafssyni og á fjögur börn,
Heklu, Tind, Ketil og Kristján.
Tvö barnabörn, Móa og Hjalti
og tvær ömmustelpur til viðbótar,
Ingibjörgu og Melkorku.
Starfsheiti/fyrirtæki: Skrifstofu
stjóri Reykhólahrepps.
Áhugamál: Hef gaman að matar
gerð og prjóna stundum í frístund
um.
Dagurinn: Föstudagurinn 18.
febrúar.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Ég vaknaði klukkan 7 og snús
aði til klukkan 7:18. Fór svo nið
ur þar sem húsbóndinn var tilbú
inn með töfluskammtinn, borðaði
morgunmat og fór í sturtu.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég ákvað að breyta til og fá mér
kæfubrauð og vatnsglas.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég var aðeins of sein,
mætti klukkan 8:06 og fór á bíln
um mínum.
Fyrstu verk í vinnunni? Fara yfir
verkefni dagsins með Ingibjörgu
Birnu sveitarstjóra.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Var í bankaafstemmingum.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Á
föstudögum er pylsudagur hjá okk
ur á skrifstofunni og dagurinn í
dag var engin undantekning. Að
þessu sinni kom ég með Air fryer
inn minn og voru pylsurnar eldaðar
í honum. Mjög gott!
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Reikna út rafmagnsgjaldið fyrir
Reykhólahöfn.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Það síðasta
sem ég gerði í vinnunni var að taka
til á skrifborðinu mínu, læsa og fór
heim kl. 14:45 (stytting vinnuvik
unnar).
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
tók til heima og svo kíkti vinkona
mín í heimsókn. Við fengum okkur
bubblur í tilefni dagsins og fögnuð
um ástinni.
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Á föstudögum borða ég bara
mat sem byrjar á P. Er alltaf með
pitsu á föstudögum sem ég elda
með mínum hundtrygga pitsuað
stoðarmanni, Silvíu systur minni.
Hvernig var kvöldið? Átti gott
kvöld, systir mín og mágur komu
í heimsókn ásamt ömmustelpun
um mínum. Besta vinkona mín
og dóttir hennar gistu hjá mér og
stóru strákarnir mínir sem eru bú
settir á Akranesi komu heim. Við
horfðum á Gísla Martein og höfð
um það notalegt.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór að
sofa um miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Ég slökkti ljósin og lagðist á kodd
ann. Hlustaði á Stellu Blómkvist og
Morðin í Háskólabíó.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Hvað ég er heppin að
vera umvafin skemmtilegu og góðu
fólki.
Eitthvað að lokum? Njóttu lífsins
á meðan þú getur.
Skólastjóri Auðarskóla
Laus er til umsóknar embætti skólastjóra Auðarskóla
í Dalabyggð sem er sameinaður leik-, grunn- og
tónlistarskóli. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1.
ágúst næstkomandi.
Skólastjóri ber faglega ábyrgð á starfsemi skólans og hefur
forystu um að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að og
eflir áhuga nemenda á námi og að þeir nái sem bestum
árangri á öllum sviðum skólastarfsins.
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022 og umsókn óskast
fyllt út á www.intellecta.is.
Upplýsingar veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) og
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Nánari upplýsingar um starfið má
lesa á www.intellecta.is.
Ásta Sjöfn ásamt eiginmanni, börnum og tengdasyni.
Í síðustu viku urðu þau tíma
mót hjá Guðmundi Arasyni öku
kennara í Borgarnesi þegar hann
fylgdi í ökupróf síðasta nemanda
sínum á ferlinum, eftir nær 55
ára starf við ökukennslu. Hinn
ungi ökumaður heitir Patrik
Dagur Sigurðsson og er lang
afabarn Guðmundar. Patrik
Dagur varð sautján ára daginn
eftir að ökuprófið var þreytt og
kvaðst aðspurður ætla á rúnt
inn þegar klukkan sló miðnætti.
Guðmundur kvaðst stoltur af
því að ungi maðurinn fór villu
laust í gegnum verklega hluta
prófsins og fékk einungis eina
villu á því bóklega, en þekkt er
að bókleg ökupróf nú til dags
geta verið svínslega erfið og
því eins gott að læra umferðar
reglurnar utan að. Guðmundi
til halds og trausts við kennsl
una með Patrik Degi var Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir, dótturdótt
ir Guðmundar, en sjálf hefur
hún öðlast kennsluréttindi og er
byrjuð að gera út á ökukennslu.
„Strákurinn var samstarfsverk
efni okkar Sigrúnar og gaman
að það skuli vera einn úr heima
ræktuninni sem er síðasti nem
andinn,“ segir Guðmundur og
hlær. Sigrún Sjöfn, sem býr nú í
Mosfellsbæ og starfar þar í lög
reglunni, segist jöfnum hönd
um bjóða upp á ökukennslu fyr
ir sunnan en einnig í Borgarnesi.
Þá er hún enn að spila í körfu
boltanum, æfir og keppir með
meistaraflokki Fjölnis í Grafar
voginum.
Langafabarnið var síðasti ökunemi Guðmundar
1.166 ökunemar
Guðmundur Arason hóf kennslu á
bíl árið 1967. Spurður kvaðst hann
giska á að hann hefði frá upphafi
kennt eitthvað um sex til átta
hundruð manns á bíl. Blaðamaður,
sem reyndar var einn af ökunem
um hans fyrir 42 árum, vildi þó
fá aðeins fá nákvæmari tölu. All
ar kennslubækur voru til staðar og
kom þá í ljós við talningu að fjöldi
ökunema var talsvert meiri, eða
1.166 ökunemar.
„Fyrstu nemarnir mínir í öku
kennslunni voru Trausti Jóhanns
son og Hilmar Helgason. Ég fékk
réttindin 1967 en þeir fara í gegn
um prófið sitt árið eftir. Ég tók
meirapróf aðeins sautján ára gam
all. Fékk undanþágu frá dóms
málaráðuneytinu til að taka það ári
eftir að ég tók bílpróf, en meira
prófsskírteinið fékk ég þó ekki af
hent fyrr en þegar ég varð tvítug
ur,“ segir Guðmundur, en hann er
fæddur árið 1940.
Á þriðja tug bíla
Líkt og aðrir ökukennarar í Borgar
nesi á þessum árum vann Guð
mundur alltaf fulla vinnu samhliða
ökukennslunni. Var skrifstofumað
ur hjá Vegagerðinni í Borgarnesi.
Spurður segist hann hafa átt ágætt
samstarf við aðra ökukennara, en
þeirra á meðal var Halldór Valdi
marsson fyrstu árin og síðar Krist
ján Björnsson og fleiri. „Ég var
alltaf mest að kenna í Borgarnesi
en fór einnig í skólana í héraðinu,
á Varmaland og í Reykholt, en þar
voru margir á bílprófsaldri með
an var og hét.“ Þegar Guðmundur
er spurður hversu marga bíla hann
hefur notað við kennsluna í gegn
um tíðina, segist hann hreinlega
ekki hafa tölu á þeim. „Þeir eru fjöl
margir. Fyrst var það Volkswagen
bjalla, en síðar voru það nokkrir
Volvo bílar, Toyota og Ford Focus
sem ég hef verið að kenna á. Þeir
eru örugglega á þriðja tuginn.“
Æfingaakstur
mesta framförin
Ökukennsla hefur tekið miklum
breytingum á þeim 55 árum sem
Guðmundur hefur verið að kenna.
Almennt segir hann að kennslan
hafi gengið vel, en auðvitað hef
ur hún ekki alltaf verið dans á rós
um. Fólk er jú misjafnlega mót
tækilegt fyrir akstri og bílum og
stundum féllu nemendur á öku
prófi, nokkrum sinnum eða jafn
vel oft. „Mestu framfarirnar urðu
þegar æfingaaksturinn var tekinn
upp. Það á við um ökukennslu eins
og annað að æfingin skapar alltaf
meistarann. Meiri og markvissari
æfingaakstur er einfaldlega að skila
nemendum betri ökumönnum út í
umferðina. Nú keyrir unga fólkið
þrisvar sinnum meira áður en það
fer eitt og óstutt út í umferðina.“
mm
Hér er Patrik Dagur, síðasti ökunemi Guðmundar, nýkominn úr ökuprófi. F.v. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Patrik Dagur
Sigurðsson og Guðmundur Arason.