Skessuhorn - 23.02.2022, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Alls voru 110 nemendur braut
skráðir frá Háskólanum á Bifröst
á laugardaginn, 48 nemendur með
bakkalárgráðu og 62 nemendur
með meistaragráðu. Þá luku tve
ir háskólagátt á Bifröst og voru
því samtals 112 nemendur braut
skráðir. Brautskráningin fór fram
á háskólahátíð í Hriflu, hátíðarsal
Háskólans á Bifröst, þeirri fyrstu
sem farið hefur fram með hefð
bundnu sniði um þó nokkurt skeið
sökum heimsfaraldursins.
Að vanda afhentu deildarforset
ar nemendum skírteini sín, Stefan
Wendt, að hálfu viðskiptadeildar,
Elín H. Jónsdóttir, að hálfu laga
deildar og Njörður Sigurjónsson,
að hálfu félagsvísindadeildar. Í
lok athafnarinnar ávarpaði rektor
Margrét Jónsdóttir Njarðvík hina
brautskráðu. Hvatti rektor hinn
nýja Bifrastarárgang m.a. til þess,
að láta muna um sig og verða leið
togar í eigin lífi. Einnig hvatti hún
þau til að nýta menntun sína vel.
Nýja prófgráðan geti bæði vaxið
og rykfallið í höndum þeirra.
Þá kom í máli rektors einnig fram
að fjöldi doktorsmenntaðra starfs
manna við Háskólann á Bifröst hafi
tvöfaldast á undanförnum tveimur
árum. Samfara því hafi rannsókna
virkni aukist svo um munar. Nem
endafjöldi hafi jafnframt aldrei ver
ið meiri við háskólann. Á yfirstand
andi haustönn luku, eins og áður
segir, 110 háskólanámi. Af 48 nem
um í grunnnámi brautskráðust tíu
úr félagsvísindadeild, sex úr laga
deild og 32 úr viðskiptadeild, en af
þeim 62 sem voru í meistaranámi,
brautskráðust fimm úr félagsvís
indadeild, fjórir úr lagadeild og 53
úr viðskiptadeild.
Sem kunnugt er hljóta efstu
nemendur í annars vegar grunn
námi og hins vegar meistaranámi
sín hvor útskriftarverðlaun fyr
ir framúrskarandi námsárangur.
Að þessu sinni hrepptu hnossið
Heiðrún Jónsdóttir og Axel Ingi
Þeir hafa ekki látið kuldann og
vetrarveðrið á sig fá ferðamennirn
ir sem hafa verið að fara í ferðir
með Láka tours undanfarna daga
frá Ólafsvík. Láki tours hóf hvala
skoðunarferðir aftur í síðustu viku
og hefur verið nóg af hvölum á
Breiðafirði, ef marka má frétt á
heimasíðu Láka tours. Greinilegt
er að ferðamönnum fer jafnt og
þétt fjölgandi á landinu og verður
spennandi að sjá hvernig þessi grein
mun þróast á næstu misserum. Á
myndinni er hvalaskoðunarbátur
inn Íris á leið út í skoðunarferð frá
Ólafsvík. mm
112 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst
Árnason í félagsvísindadeild og
Valdís Ósk Óladóttir og Heiðdís
Rósa Sigurjónsdóttir í lagadeild.
Hins vegar hlutu fjórir nemend
ur úr viðskiptadeild útskriftarverð
laun, einn úr grunnnámi og þrír úr
meistaranámi eða; Alexandra Mjöll
Jóhönnudóttir, Kristinn Vignis
son, Jónína Rut Matthíasdótt
ir og Katrín Valdís Hjartardóttir,
en þannig háttar til, að Kristinn,
Jónína Rut og Katrín Valdís luku
öll meistaranámi með hnífjafnar
einkunnir. Hæstu meðaleinkunn
á haustönn hlaut svo Kristín Jak
obsdóttir, félagsvísindadeild, með
9,1 í meðaleinkunn. Í lagadeild var
Pétur Birgisson efstur, með 8,6 í
meðaleinkunn og í félagsvísinda
deild var það Einar Freyr Elínar
son sem var efstur með 8,9.
Ávarp fyrir hönd útskrifaðra
grunnnema flutti Vera Dögg
Petru dóttir félagsvísindadeild, El
mar Guðlaugsson fyrir lagadeild
og Alma Katrín Einarsdóttir fyr
ir viðskiptadeild. Ávarp fyrir hönd
útskrifaðra meistaranema flutti
Marlena Rzepnicka.
Sólveig Hallsteinsdóttir, verk
efna stjóri nemendaskrár, leiddi
útskriftarathöfnina. Karlakórinn
Söngbræður söng fyrir gesti við
undirleik Birgis Þórissonar. Stjórn
andi kórsins er Viðar Guðmunds
son. mm/bifrost.is
Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor skólans ávarpaði útskriftarhópinn og aðra
gesti.
Hvalaskoðun hafin
að nýju frá Ólafsvík