Skessuhorn - 23.02.2022, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 13
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur
ákveðið að auglýsa eftir áhugasöm
um samstarfsaðilum um skipulags
mál og uppbyggingu í Brákar
ey, svo sem með stofnun þróunar
félags, þar sem unnið verður úr
þeim hugmyndum og íbúafund
um sem haldnir hafa verið undan
farin ár. „Í slíkri uppbyggingu telur
byggðarráð mikilvægt að haldið sé
í sérkenni eyjunnar, þar sem meðal
annars sé litið til þess að varðveita
„Burstirnar þrjár“ og hugsanlega
fleiri byggingar sé það raunhæft
fyrir uppbyggingu svæðisins. Á
svæðinu skuli vera blönduð byggð,
með íbúðabyggð, menningar
tengdri starfsemi, léttum iðnaði,
útivist og frístundastarfsemi, í sátt
við núverandi starfsemi,“ segir í
bókun af fundi byggðarráðs síðast
liðinn fimmtudag.
„Byggðarráð hefur væntingar
um að hægt sé að líta til sambæri
legra verkefna sem hafa verið unn
in hér á landi og erlendis á aflögð
um iðnaðar og athafnasvæðum þar
sem uppbyggingin miðast við að
halda í sögu og menningu svæðis
ins og tengja við framtíðarsýn og
starfsemi sem tengist þörfum sam
tímans.“
mm
Sveitamarkaðurinn Ljómalind í
Borgarnesi fékk á dögunum hin virtu
Prestige Awards 2021/2022 verðlaun
fyrir að vera sveitamarkaður ársins.
Frá þessu er greint á heimasíðu fyr
irtækisins. „Það er með ótrúlegu
stolti sem við segjum frá því að við
unnum til verðlauna, en við erum að
fá viðurkenningu fyrir áralangt starf
og ótrauð höldum við áfram.“
Uppgangur Ljómalindar hefur
verið mikill undanfarin ár. Líkt og
margir vita býður Ljómalind upp á
matvörur og handverk úr héraði og
raunar af öllu Vesturlandi. Það er
matsnefnd sem tryggir að allar þær
vörur sem fara til sölu í versluninni
hverju sinni fá stimpilinn gæða
matur.
vaks
Stefna að blandaðri
byggð í Brákarey
Sveitamarkaðurinn
Ljómalind fær virt verðlaun
að hann vill að við Íslendingarnir
tveir verðum áfram í landinu og fær
um í veiðitúra með skipinu, en það
átti að fara til rækjuveiða. En það
var auðvitað ekkert inn í samkomu
laginu og eftir að við neituðum því
þá fengum við loks vegabréfin aftur
í hendur.“
Beindu vélbyssum
að okkur.
Á meðan skipverjar dvöldust í Dou
ala voru þeir með öryggisverði með
sér ef þeir þurftu að ferðast um
borgina. Eitt kvöldið þá nenntu þeir
ekki að bíða eftir lífvörðunum og
ákváðu að taka leigubíl heim á hót
elið. Á leiðinni var bifreiðin stöðv
uð af hermönnum með alvæpni.
Þeir rannsökuðu bílinn og sá sem
fór fyrir þeim sá myndavél sem við
vorum með og heimtaði að fá hana.
Ég gaf mig ekki og sagðist ekki af
henda honum vélina, en ég var
með í brjóstvasanum hjá mér miða
með nafni útgerðarmannsins sem
átti skipið og rétti honum miðann.
Hann virtist kannast við nafnið og
allt breyttist við það sem betur fór,
en spurði nú samt hvort að værum
með viskí í bílnum, ég sagði honum
að svo væri en hann fengi það ekki
heldur. Ég var alveg rólegur þrátt
fyrir allt. En á sama tíma beindi her
maður Kalynakof vélbyssu að gagn
auga vélstjórans. Vélstjórinn var
eðlilega skelfingu lostinn. En her
maðurinn bakkaði fljótlega frá og
þeir hleyptu okkur síðan áfram. Ég
held að þeir hafi bara verið að reyna
að ræna okkur með því að stöðva
bifreiðina.“
Eftir að heim til Íslands var kom
ið eftir þessa ævintýraför réði Ein
ar sig aftur á Skeiðfaxa en svo var
Sementsverksmiðjan seld og áhöfn
in missti því sjálfkrafa vinnuna. Þá
var haft samband við hann og hon
um boðið skipstjórastarf á skipinu
Bravo sem sigldi með fisk frá Íslandi
til Færeyja og Skotlands. Einar segir
að það hafi verið góður og skemmti
legur tími með góðum mannskap.
Var þar um borð í tvö ár. Fór svo á
fiskveiðiskipið Ernir um tíma.
Flutningaskipið Jaxlinn
Svo kom af kaflanum með flutn
ingaskipið Jaxlinn. Ragnar Magn
ús Traustason keypti skipið til vöru
flutninga til Vestfjarða. „Við fór
um út og sóttum skipið árið 2004.
Skipið var eingöngu í flutning
um til Vestfjarða. Fórum á flestar
Vestfjarðahafnir. Vorum síðan í
skemmtilegum verkefnum eins og
að ferja efni til staða eins og Að
alvíkur og út í Æðey. Þetta var
skemmtilegt ævintýri og stóð í tæp
þrjú ár þar til skipið var selt til Dan
merkur.“
Siglt um öll
heimsins höf
Eftir þetta ákvað Einar að fara í
land. Vann þá m.a. í söludeildinni
hjá Samskip í þrjú ár. En þá kom
símtal frá aðila í Noregi sem rak fyr
irtækið Silver Sea sem hafði aðset
ur þar í landi en Samskip átti helm
ingshlut í þessu fyrirtæki. Spurt
var hvort hann væri til í að taka við
skipi sem hann var nýlega búinn
að kaupa. Einar sló til og var með
frystiskip á vegum fyrirtækisins í
tæp þrjú ár sem hét Silver River. „Á
þeim tíma náði ég mér í lóðsréttindi
og náði mér einnig í réttindi til þess
að stýra olíuflutningaskipum en þau
réttindi tók ég í Gdansk í Póllandi,
sem var þriggja vikna námskeið. Ég
færði mig síðan yfir til annars fyrir
tækis sem tilheyrði sömu eigendum
og hét Seatank Cartering og sigldi
olíu og frystiskipum á vegum fyr
irtækisins m.a. til Afríku um Mið
jarðarhafið, Rússlands og Litháen.
Ég var samfellt í siglingum í heilt ár
án þess að koma til Íslands. Þetta var
að sjálfsögðu erfiður tími fyrir mig
og fjölskylduna sem bjó á Íslandi.
En ég ákvað að hafa þetta svona.
Síðan fæ ég hringingu frá Sam
skipum um að það vanti skipstjóra
á Helgafellið. Ég sló til og hef ver
ið skipstjóri á skipinu síðustu fimm
árin.“
Áfengisbanni komið á
Einar segir að það hafi að mörgu
leyti verið erfitt að taka við skip
inu, því hann vildi gera veigamikl
ar breytingar hjá áhöfninni. Ein
var sú að hann setti á algert áfeng
isbann um borð líkt og hann hafði
gert á öðrum skipum sem hann hef
ur stýrt hér heima og í Noregi. Það
hefur því miður verið töluvert um
óreglu hjá áhöfnum skipa í gegnum
tíðina. Þeir sem ekki sættu sig við
þessar nýju reglur lét hann fara. Ein
ar segist hafa orðið fyrir erfiðri lífs
reynslu árið 2001 þegar einn góður
vinur hans og skipsfélagi hafi ölvað
ur hent sér í sjóinn þegar skipið lá
við bryggju hér á landi. Náðst hefði
að bjarga honum upp úr sjónum og
koma honum undir læknishendur
en því miður lést hann skömmu síð
ar. „Þetta hafði mikil áhrif á mig og
ákvað ég eftir þetta að hætta alveg að
drekka og hefur ekki farið dropi ofan
í mig síðan. Ég fer ekki ofan af því
að þetta er ein besta ákvörðun sem
ég hef tekið. Það voru engin stór
vandamál hjá mér með áfengi en
mér leið bara svo miklu betur eftir
að ég hætti þessu.“
Einar hefur verið farsæll skipstjóri
og yfirleitt heppinn með áhafnir.
Hann segir að í áhöfn Helgafells
ins séu ellefu menn. Það er ákveðinn
rúntur tekinn frá Íslandi. Eftir
lestun í Vestmannaeyjum er komið
við í Runavík í Færeyjum og endað
í Álasundi í Noregi. Hver túr tekur
um tvær vikur. Yfirleitt tekur áhöfn
in tvo túra og tekur tvo í frí í aðra
tvo túra.
„En Covid ástandið fer illa með
okkur. Við þurfum að fara í kovid
próf í hvert skipti sem við förum út
og þegar við komum heim aftur og
megum ekki fara frá borði erlendis.
Þannig að við erum í algjörri ein
angrun. Þetta reynir á og er orðið
afskaplega þreytandi.“
Fjölskyldan
og áhugamálin
Eiginkona Einars er Sigríður Ólafs
dóttir sem hann kynntist þegar
hann var á vertíð á Höfn í Horna
firði sumarið 1978 og eiga þau tvær
dætur; Margréti sem býr á Akur
eyri ásamt eiginmanni sínum Jóni
Ingvari Þorsteinssyni og Írisi Dögg
sem býr í Hafnarfirði ásamt eigin
manni sínum Birni Stefánssyni leik
ara og tónlistarmanni. Barnabörnin
eru orðin sjö.
En það er ekki hægt að ljúka
spjallinu öðruvísi en að ræða áhuga
málin sem eru fótbolti og golf. Í
boltanum er það að sjálfsögðu ÍA og
svo Manchester United. „Ég er svo
sem ekkert rosalega góður í golfi,
en ég hef gaman að þessu; útiveran,
hreyfingin og félagsskapurinn gefur
mér mikið. Svo var það stóra stundin
þegar ég fór loksins á Old Trafford
síðastliðið haust og sá mína menn
vinna Crystal Palace 1:0 og sjálfur
Ronaldo skoraði sigurmarkið. Það
var frábær upplifun að koma þarna
og upplifa stemninguna á vellin
um. Þetta var örugglega ekki síðasta
skiptið sem ég fer á þennan völl.“
Það er við hæfi að Einar, eða
Nenni eins og hann er yfirleitt kall
aður, endi á þann hátt sem hann
endar á þegar hann er að tjá gleði
sína, eða bræði, yfir gengi Manche
ster United. Ekki síst þegar hann er
að svara skotum frá vinum sínum
um gengi liðsins á samfélagsmiðlin
um Facebook. Svo er hann duglegur
að deila myndum og myndbrotum
af ferðum Helgafellsins og lífinu um
borð og loksetningin er ætíð; „það er
gaman að segja frá því.“ se
Einar Vignir og Sigríður í hópi Skagamanna á leið á tónleika með Fleetwood Mac
í Berlín.
Á Old Trafford.