Skessuhorn - 23.02.2022, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 202214
Fram kemur í Húsnæðisáætlun
Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022
að umtalsverð eftirspurn hefur ver
ið eftir öllum tegundum íbúðar
húsnæðis í bæjarfélaginu og hef
ur Akraneskaupstaður átt í fullu
fangi við að mæta þeirri eftirspurn.
Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða
er í byggingu og framundan er út
hlutun eða sala á lóðum á Sements
reit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi
sem er að mæta betur uppsafn
aðri þörf. Eftirspurn er mikil eft
ir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
sem hefur ekki verið mætt og hefur
það haft þau áhrif að eftirspurn er
búin að færast til nágrannasveitar
félaganna. Akranes er því bæði að
þjóna innri vaxtarþörf sem er til
komin vegna eðlilegrar stækkunar
bæjarins sem og ytri vaxtarþörf sem
er tilkomin vegna skorts af öðrum
svæðum, sem og vegna sóknar í at
vinnumálum.
Samhliða uppbyggingu almennra
íbúða er unnið eftir aðgerðaráætl
un um uppbyggingu húsnæðis fyr
ir ákveðna hópa eins og fatlaða og
aldraða. Gert er ráð fyrir byggingu
fjögurra íbúðakjarna fyrir fatlaða á
næstu árum á Akranesi. Fyrsti bú
setukjarninn kemur til vegna til
flutnings á húsnæði fatlaðra innan
bæjarins en aðrir eru til að mæta
fyrirsjáanlegri þörf á næstu árum
fyrir íbúðir fatlaðra. Í uppbyggingu
fyrir aldraða er fjölbýlishús með
samtals 31 íbúð í samstarfi við
Leigufélag aldraða sem er ætlað að
mæta þörf fyrir öruggt leiguhús
næði fyrir eldri borgara. Það hús
er að rísa við Dalbraut 6, við hlið
þjónustumiðstöðvar aldraða á Dal
braut 4.
Skortur hefur verið á öruggu
leiguhúsnæði á Akranesi fyrir fólk
með lágar og millitekjur og hefur
verið ráðist í uppbyggingu í sam
starfi við Bjarg húsnæðisfélag á
24 íbúðum á Asparskógum 3. Þá
er fyrirhugað að selja hluta þeirra
eigna sem Akraneskaupstaður á
sem hafa verið félagslegar leigu
íbúðir og bjóða fólki önnur bú
setuúrræði. Skessuhorn heyrði í
nokkrum byggingafyrirtækjum á
Akranesi til að skoða stöðuna á
markaðinum, hver helstu verkefnin
hafi verið síðustu mánuði og hvern
ig verkefnastaðan liti út á þessu ári.
Eru að skoða það að
bæta við mannskap
Halldór Stefánsson er fram
kvæmdastjóri hjá Trésmiðjunni
Akri og hann segir að nóg af verk
efnum séu framundan. „Við erum í
rauninni farin að skrifa út verkefni
á næsta ári. Það er ótrúlegt hvað
hefur tikkað inn í boxin í janúar og
febrúar á þessu ári og það verður
mikið að gera á þessu ári.“
Halldór segir að Akur sé aðal
lega í því að byggja hús og selja,
bæði á heimamarkaðinum á Akra
nesi, í Hvalfjarðarsveit og víðar um
land. Hér heima eru þeir að klára
fjögurra íbúða raðhús við Akralund
2026 og verður þeim íbúðum skil
að eigendum næsta sumar. Síðan
er að hefjast bygging á fimm íbúða
raðhúsi við Álfalund 3442. „Við
byggjum húsin úr einingum hér í
trésmiðjunni og förum svo á stað
inn og reisum þær þar. Svo erum
við í ákveðinni þjónustu, bæði
við Elkem og Norðurál, og erum
einnig að sinna alls kyns verkefn
um.“
Alls eru stöðugildin 19 hjá Akri
og segir Halldór að þeir séu að
skoða alla möguleika í því að bæta
við mannskap en það gangi erfið
lega og það séu allir í þeirri stöðu.
„Það er búið að vera nóg að gera
síðustu ár hjá okkur, verkefnum
fækkaði mikið eftir bankahrunið
2008 og þá sérstaklega í sambandi
við húsbyggingar, en síðan árið
2014 er búið að vera góður gang
ur í þessu hjá okkur og reksturinn
gengur alveg ágætlega. Trésmiðj
an Akur hefur alla tíð verið lánsamt
með starfsfólkið sitt og eru mörg
hver búin að vinna tugi ára hjá
fyrir tækinu, þar af eru tvö búin að
vinna lengur en fjörutíu ár. En sem
betur fer er alltaf ákveðin endur
nýjun í gangi og er ánægjulegt að
segja frá því að nú eru sex húsa
smíðanemar í vinnu hjá okkur.“
Verkefnastaðan á þessu
ári mjög góð
Heimir Einarsson hjá Sjamma ehf.
segir að þeir séu ansi sáttir með
veturinn, næg verkefni hafa verið
í gangi en alls vinna í heildina 25
starfsmenn hjá Sjamma ehf. Hver
eru svona helstu verkefnin sem þið
hafið verið að vinna við í vetur?
„Helstu verkefnin hafa verið á leik
skólanum á Asparskógum, fjölbýli á
Asparskógum 17 og svo Dalbraut
6 fyrir BM Vallá þar sem Leigufé
lag aldraða er að byggja. Við höfum
verið með fína verkefnastöðu í vet
ur, bæði byggingar sem við höfum
verið að reisa sjálfir og selja og eins
höfum við verið í útboðsverkum og
þess háttar. Svo erum við að þjón
usta BM Vallá eins og áður.“
Í hverju eruð þið helst? „Nán
ast í öllu þannig lagað, við höfum
verið að byggja parhús, raðhús og
fjölbýli. Svo höfum við átt í góðu
samstarfi við BMVallá varð
andi uppsetningu forsteyptra ein
inga. Einnig höfum við verið í út
boðsverkum, til dæmis byggðum
við starfsstöð fyrir Veitur upp í
Lækjarflóa ásamt góðum hópi öfl
ugra verktaka af Skaganum og núna
erum við að vinna við uppsetningu
burðarvirkis á nýjum leikskóla að
Asparskógum.“
Sjammi hefur verið að auglýsa
eftir starfsmönnum, hvernig geng
ur sú leit? „Já, það er rétt, við búum
sem betur fer að því að vera með
gríðarlega öflugan hóp starfsmanna
með mikla reynslu og þekkingu en
við höfum verið að vonast til að
geta fjölgað í hópnum og hefur það
gengið ágætlega. Einnig höfum við
fengið öfluga nema til okkar sem
hafa síðan ílengst hjá okkur og ætl
um við að halda því áfram.“
Heimir segir að hann sé mjög
bjartsýnn á framhaldið og að þetta
líti vel út eins og staðan er núna.
„Verkefnastaðan á þessu ári er
mjög góð, við sjáum alveg fram á
næg verkefni út þetta ár og eitt
hvað fram á það næsta. Það er búið
að vera mikill uppgangur síðustu ár
og mikið að gerast á Akranesi. Þá
er mikill gangur í sveitarfélaginu,
Akraneskaupstaður er að koma
með mörg verkefni í útboð og svo
höfum við einnig verið duglegir að
skapa okkar eigin verkefni.“
Mikið að gera
Bræðurnir Sturla og Fannar Magn
ússynir eru eigendur SF Smiða.
Fyrirtækið er frekar ungt, hóf starf
semi árið 2017 en alls eru starfs
menn 23. En hver hafa helstu verk
efnin verið í vetur? „Við höfum ver
ið á Sjúkrahúsinu að vinna við nýju
skurðstofuna og einnig unnið að al
gerum endurbótum sem hafa átt sér
stað á A og B deild sjúkrahússins.
Þeim er að ljúka núna í mars/apr
íl en þær hafa staðið yfir frá því í
júní í fyrra. Þá hefur mikið ver
ið að gera í Brekkubæjarskóla eft
ir brunann, verkefni við endurbæt
ur og viðhald. Við höfum verið að
vinna í blokkinni upp á Asparskóg
um 18 á vegum Uppbyggingar og
þá höfum við mikið verið að vinna í
Akraborg á Kalmansvöllum. Einnig
er vinna hjá okkur fyrir Brynju Ör
yrkjabandalag þar sem við höfum
verið að endurnýja nokkrar íbúðir
fyrir þá á Akranesi og í Borgarnesi
en langflest verkefni SF smiða eru á
Akranesi og nágrenni.“
Hvað gerið þið ykkur helst út
fyrir að vera? Við erum mikið í
viðhaldi, í tryggingatjónum og í
endurbótum á gömlu húsnæði. Þá
erum við einnig í nýbyggingum og
vinnu í nýjum húsum fyrir fólk.“
Sturla og Fannar segja að eins og
hjá öllum iðnaðarmönnum þessa
dagana sé allt of mikið að gera og
verkefnastaðan afar góð og nái inn
í næsta ár. „Næsta stóra verkefnið
hjá okkur er upp á Dvalarheimil
inu Höfða þar sem miklar endur
bætur eru í gangi og þar á að rífa
út úr gömlu húsnæði og endurbæta.
Það verkefni er hafið en fer á fullt
í byrjun mars og á að ljúka í maí
2023. Svo er einnig í startholun
um hjá okkur fjórbýli á Suðurgötu,
alls fjórar lóðir í kringum gamla AA
húsið.“
Alltaf hægt að bæta
við verkefnum
Þráinn E. Gíslason hjá Trésmiðju
Þráins segir að veturinn sé búinn
að vera fínn hjá þeim og nóg hefur
verið að gera. „Við vorum að vinna
við færanlegu skólastofurnar í
Grundaskóla og svo tókum við þátt
í að reisa blokkirnar upp á Aspar
skógum. Núna upp á síðkastið hafa
flestir hjá okkur verið að vinna á
Korputorgi þar sem verið er að
breyta Bónus versluninni sem var
þar í lager og skrifstofur og höfum
við verið á kafi í því verkefni síðustu
þrjá mánuði.“
Þráinn segir að þeir séu nánast í
öllu sem tengist smíðavinnu nema
að smíða innréttingar, en hvernig
eru horfurnar fram á vor og sum
ar? „Það er allt í ágætis gír, þegar
snjóinn tekur upp þá er hægt að
fara í útiverkefni og þá er það bara
mjög gott. Það er aldrei svo mik
ið að gera að það sé ekki hægt að
bæta við verkefnum og við reynum
hiklaust að taka þátt í öllum útboð
um.“
Þráinn segir að veltan hjá þeim í
fyrra hafi verið helmingi meiri en
árið áður en nafni fyrirtækisins var
breytt um áramótin úr GS Import í
Trésmiðju Þráins Gíslasonar en er
á sömu kennitölu. Varðandi hvort
hann sé ekki bjartsýnn á fram
haldið, svarar Þráinn: „Ef ég er það
ekki hver á þá að vera það?“
vaks
Þráinn E. Gíslason í Trésmiðju Þráins.
Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi
Halldór Stefánsson hjá Trésmiðjunni Akri.
Heimir Einarsson er annar eigandi Sjamma ehf.
Bræðurnir Sturla og Fannar eru eigendur SF Smiða.