Skessuhorn - 23.02.2022, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 15
Emil Freyr Emilsson skipstjóri á
beitningarvélarbátnum Lilju SH,
sem gerður er út frá Rifi, seg
ir vertíðina núna vera sannkallaða
draumavertíð, þrátt fyrir tíðarfarið.
Þó er annars slagið farið í víking út
á land. „Það er búið að vera algjört
mok þegar gefið hefur á sjó,“ seg
ir Emil. „Enginn róður hefur far
ið undir tíu tonnin og upp í 18 tonn
á eina lögn. Ótrúlegur afli,“ seg
ir Emil og brosir í kampinn. Hann
bætir við að það er alveg sama
hvar línan er lögð, það sé alls stað
ar mokveiði og lítil innistæða hjá
Hafró að skera aflann svona nið
ur. „Það væri nær að bæta í kvót
ann, eina sem hefur minnkað er að
aflinn á löngu hefur minnkað að
eins hjá okkur, en ýsan hefur auk
ist töluvert, þótt við höfum reynt
að forðast að fá hana. Það skipt
ir engu, ýsan er alls staðar, en ýsu
kvótinn var skorinn niður um 20%
fyrir vertíðina.
„Þrátt fyrir fjölmargar vetrar
lægðir með tilheyrandi ótíð og ekki
marga róðra verðum við að fara að
hægja á veiðunum til þess að klára
kvóta bátsins ekki strax,“ segir
Emil. Hann segir að í febrúar hafi
meðalverð á þorski verið 390 krón
ur og meðalverð á ýsu er rétt um
440 krónur, en það hafi lækkað að
eins að undanförnu.
Leigumarkaðurinn
botnfrosinn
Í sama streng tekur Heiðar Magnús
son útgerðarmaður og skipstjóri á
línubátnum Brynju SH sem er gerð
út frá Ólafsvík. „Það er algjört mok
á miðunum í allan vetur og eins og
allir vita miklar ógæftir. Engu að
síður hefur verið meiri afli á hvern
bala en undanfarin ár og gott verð
á fiskmörkuðum framan af.“ Heið
ar segir að vegna góðs afla og lægra
verðs á mörkuðum hafi hann nú
hægt á veiðunum og ekki róið á
föstudögum og laugardögum. „Svo
er leigumarkaðurinn botnfrosinn
og erfitt að fá leigukvóta og ekki
hægt að fá sporð af ýsukvóta. En
eins og flestir línubátar reyni ég
eftir fremsta megni að forðast að
veiða ýsu. En ég hef reynt að vera
á línuveiðum fram í maí undanfarin
ár en verð sennilega að hætta línu
veiðum fyrir þann tíma og reyna að
fara eitthvað á ufsaveiðar á hand
færum. Mér finnst að eigi að auka
kvótann í ýsu og þorski frekar en
að skerða hann svona mikið. Það
er einfaldlega engin hemja að lækka
þorskkvótann um 13% og svo ýsu
kvótann um 20%,“ segir Heiðar
Magnús son að lokum.
af
Það er sama hvaða veiðarfæri eru
notuð á Breiðafirði þessa dagana,
það er fiskur út um allan sjó. Sjó
menn eru því farnir að hægja all
verulega á veiðunum og menn
rasandi yfir kvótaskerðingunni sem
varð í haust. Fiskverð hefur þó á
móti kætt mannskapinn og segja
sjómenn sem Skessuhorn hefur
rætt við að aflaverðmætið sé gott.
Einn sjómaður sem rætt var við
sagði að meðalverð á þorski á bát
hans væri 120 krónum hærra en á
síðustu vertíð.
Meðfylgjandi myndir eru af
dragnótarbátunum Magnúsi SH
og Rifsara SH þar sem þeir voru að
koma að landi í Rifi á sama tíma.
Báðir höfðu þeir mokfiskað.
af
Oddur Orri Brynjarsson hefur í
vetur verið afleysingaskipstjóri á
dragnótarbátnum Steinunni SH
frá Ólafsvík, en ráðgert er að hann
taki innan tíðar við í brúnni af föð
ur sínum Brynjari Kristmundssyni.
Hann verður þá fjórði ættliðurinn
sem er skipstjóri. Oddur Orri seg
ir í samtali við Skessuhorn að hann
sé nú bara í kennslu hjá föður sín
um Brynjari, sem hefur verið skip
stjóri á Steinunni í áratugi, hokinn
af reynslu. Brynjar er þekktur afla
skipstjóri á landsvísu og hefur hann
og hans áhöfn flutt gífurlegt magn
af fiski í land síðustu ár. Stærsti róð
ur á þessum 150 tonna báti er um
85 tonn á nokkrum tímum. Þegar
rætt var við þá feðga á fimmtu
daginn voru þeir að koma með 31
tonn að landi.
Oddur segir að hann hafi fyrst
í haust farið út sem skipstjóri og
gengið bara ágætlega, en nú sé faðir
hans kominn um borð að nýju hon
um til halds og trausts. Oddur seg
ir skellihlæjandi að hann geti samt
ekki verið mikið í brúnni því áhöfn
in vilji hafa hann á dekki. „Ætli ég
sé bara ekki ómissandi þar, en jú,
jú ég gef mér samt tíma til að kíkja
upp í brú til pabba og læra af hon
um. Það hefur verið góður afli að
undanförnu, að sögn Odds, svo það
er ekki hægt að kvarta. Við hitt
um hann við löndun en hann gaf
sér lítinn tíma til að spjalla, gekk í
að hjálpa strákunum að landa afla
dagsins.
af
Oddur Orri verður
skipstjóri á Steinunni
Landað úr Steinunni á fimmtudaginn.
Feðgarnir Oddur Orri og Brynjar Kristmundsson.
Meðalverðið er
120 krónum
hærra en í fyrra
Emil með stórþorsk. Hann segir
að það sé svo mikið af þorski í
sjónum núna að hann sé farinn
að éta undan sér.
Draumavertíð þrátt fyrir ótíð
Heiðar að landa afla dagsins sem var 13 tonn á 30 bala.
Heiðar að klifra upp stigann.
Línubáturinn Brynja að koma að landi með 13 tonn.
Emil Freyr Emilsson og Hannes Gunnar Guðmundsson, starfsmaður Fiskmarkaðar
Íslands, að landa úr Liljunni. Ljósm. úr safni.