Skessuhorn - 23.02.2022, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 202216
Það var margt um manninn í versl
uninni Módel á Akranesi á sunnu
daginn, þegar blaðamaður leit þar
við skömmu eftir hádegi. Konu
dagurinn er jú þennan dag og fjöl
margir sem vildu færa elskunni
sinni eða nákomnum ættingja eða/
og vini glaðning af því tilefni. Að
sögn Guðna Tryggvasonar kaup
manns byrjaði konudagsumferðin
strax á laugardagsmorgun og þurfti
að fara aukaferð eftir meiri blóm
um þegar líða tók á daginn. Opn
að var að nýju klukkan 9 á sunnu
daginn og var stöðugur straum
ur allan daginn, að sögn Guðna og
útlit fyrir að þetta yrði ein stærsta
konudagshelgin í versluninni frá
upphafi í þrjátíu ára sögu hennar.
mm
Snæbjörn Gíslason á Akranesi er
elstur núlifandi karlmanna á Ís
landi. Hann varð 104 ára í gær,
fæddur 22. febrúar 1918. Snæbjörn
er hógvær og vill helst ekki gera
mikið úr þessum áfanga, en starfs
fólk á Hjúkrunarheimilinu Höfða,
þar sem hann býr, fékk leyfi hans
til að senda Skessuhorni mynd og
smá frétt í tilefni dagsins. Snæbjörn
fagnaði deginum með afmælisköku
og kaffi og gestir litu við. Starfsfólk
Höfða vill senda Snæbirni innilegar
hamingjuóskir í tilefni dagsins.
Snæbjörn er fæddur á Litla
Lambhaga í Skilmannahreppi 22.
febrúar 1918, sonur Gísla Gísla
sonar bónda og kennara og Þóru
Sigurðardóttur. Hann átti sjö systk
ini sem sum hafa náð háum aldri.
Kristín systir hans náði 100 ára
aldri, Elísa varð 96 ára og Þórður 97
ára. Snæbjörn giftist ekki og á ekki
börn, en systkinabörn hans fylgj
ast með honum. Snæbjörn starfaði
við byggingavinnu en var lengstan
sinn starfsaldur í fiskvinnslu hjá
HB&Co. Síðastliðin átta ár hefur
Snæbjörn búið á Hjúkrunarheimil
inu Höfða á Akranesi.
Það eru ekki margir Íslendingar
sem hafa lifað jafnmarga stórvið
burði á ævi sinni. Snæbjörn er fædd
ur frostaveturinn mikla, nokkrum
mánuðum áður en Katla gaus og Ís
land fékk fullveldi. Hann hefur lif
að tvær heimsstyrjaldir svo ekki sé
talað um allar þær miklu breytingar
á lifnaðarháttum Íslendinga sem
orðið hafa á þessum 104 árum. mm
Í dag fara Vegagerðin og Strætó
af stað með þjónustu þar sem
boðið er upp á að panta ferð fyr
ir hjólastóla með leið 57 á Vestur
landi og leið 51 sem fer á Suður
land. Landsbyggðarvagnarnir hafa
hingað til ekki verið aðgengileg
ir fyrir hjólastóla en það eru að
eins ákveðið margir vagnar með
lyftu fyrir hjólastóla og nú verður
hægt að panta slíkan vagn ef þörf er
á. „Það þarf að panta vagn með að
gengi fyrir hjólastól deginum áður
en til að byrja með verður þetta að
eins í boði í ákveðnum ferðum og
því miður eru bara ákveðnar bið
stöðvar sem hægt verður að nota,
hjólastólaaðgengi er ekki nógu gott
við þær allar,“ segir Guðmundur
Heiðar Helgason upplýsingafull
trúi fyrir verkefnið. Þær biðstöðvar
á leið 57 sem eru aðgengilegar fyrir
hjólastóla eru í Mjódd, Akratorgi á
Akranesi, Borgarnesi, Staðarskála,
Blönduósi, Sauðárkróki og Hofi
Akureyri. arg
Verðlaun voru veitt í síðustu viku
í eldvarnagetraun Landssambands
slökkviliðs og sjúkraflutings
manna. Sigurður Þór Elísson
eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkvi
liði Akraness og Hvalfjarðar fór þá
í Grundaskóla og afhenti Laufeyju
Svanbergsdóttur nemanda í 3. bekk
verðlaun. Nafn hennar hafði verið
dregið út og fékk Laufey að laun
um viðurkenningarskjal og gjafa
kort í Spilavinum. mm
Í gær, þriðjudaginn 22.02.2022,
voru áætluð alls fjórtán svoköll
uð „drop in“ brúðkaup í Akranes
kirkju. Í þeim hópi voru meðal
annars nýgiftu hjónakornin Har
aldur Valtýr Hinriksson og El
ísabet Sæmundsdóttir sem tóku þá
ákvörðun fyrir stuttu að gifta sig
á þessari flottu dagsetningu. Þess
má geta að þau trúlofuðu sig fyrir
tveimur árum, nánar tiltekið þann
20.02.2020. Það var Þóra Björg
Sigurðardóttir prestur sem gaf þau
saman.
Í gær voru alls þrír prestar í Akra
neskirkju á vaktinni fram á kvöld
en Akraneskirkja annaðist athöfn
ina án endurgjalds með presti, org
anista og kirkjuverði. Hver athöfn
tók ekki lengri tíma en 30 mínútur
og var þetta tilvalinn dagur til að
ganga í heilagt hjónaband. Því fyr
ir utan þessa flottu dagsetningu þá
var allt kapp lagt á að þetta yrði há
tíðlegt, skemmtilegt og ástin blóm
strandi yfir öllum þeim brúðhjón
um sem létu verða af því að gifta
sig á þessum Drottins dýrðar degi
í gær. vaks
Bræðurnir Þórður t.v. og Snæbjörn Gíslasynir að undirbúa síldarsöltun á eyrinni
árið 1965 – en Snæbjörn var á þessum tíma 47 ára. Ljósm. Haraldarhús.
Snæbjörn Gíslason fagnaði
104 ára afmæli í gær
Snæbjörn Gíslason á afmælisdaginn.
Ljósm. Höfði.
Halli og Ellý innsigla hjónabandið með kossi.
Ástin blómstraði í Akraneskirkju
Haraldur Valtýr og Elísabet alsæl eftir athöfnina.
Var dregin út í
eldvarnagetraun
Þær Aldís Petra Sigurðardóttir og Hlín Sigurðardóttir að binda blómvendi og
pakka fyrir viðskiptavini.
Lífleg sala í blómum
alla helgina
Strætó fyrir hjólastóla
á landsbyggðinni
Strætó á leið 57 framan við N1 í Borg-
arnesi. Ljósm. úr safni.