Skessuhorn - 23.02.2022, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 19
Vísnahorn
Lárus Salómonsson síðar lögreglu
þjónn gaf út ljóðabók ungur að
árum. Þótti þar margt nokkuð tor
ráðið og þar á meðal þessi staka:
Hælatinda húsdýrin
hafa ómyndarbúning.
Þeirra yndis yfirskin
er með grindarsnúning.
Löngu síðar voru þeir félagar
Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi
í utanríkisráðuneytinu og Sigurður
Hafstað sendifulltrúi, sem var Skag
firðingur að ætt, að velta þessari
vísu fyrir sér á ýmsa vegu. Stuttu
síðar fór Sigurður á ráðstefnu til
Parísar og fékk þá þetta skeyti frá
Bjarna:
Stóli tinda áður und
iðkaði kindarúning,
fer nú blind- með franska hrund
-fullur í grindarsnúning.
Góðvinur Sigurðar Hafstað varð
um líkt leyti fyrir því tjóni að kona
sem hann hafði óskipulega deilt
rúmi með brá staðfastlega af þeim
vana og barst maðurinn lítt af um
hríð uns Sigurður orti í hans orða
stað og sendi Bjarna:
Allt í lyndi lék um stund
uns lostug grindarsnúnings
hælatindagleðigrund
mig glapti án undirbúnings.
Snúnings þindarlausum leik
lauk í synd og trega,
hælatinda bikkjan bleik
brá mér skyndilega.
Trúlega mun þessi líka hafa
orsakast af sama tilefni:
Hælatinda húsdýr enn
hylla syndarnúning,
tæla lyndisljúfa menn,
leika grindarsnúning.
Þennan fróðleik og fleira í lík
um dúr sendu þeir félagar á milli
sín með dulmálskerfi utanríkis
ráðuneytisins og hefur væntanlega
valdið dulmálsfræðingum stórveld
anna nokkrum heilabrotum. En
svo vikið sé aftur að Lárusi þá hafði
hann um hríð þann starfa að skjóta
flækingshunda í Reykjavíkurborg.
Eitt sinn hitti hann Stefán Jónsson
fréttamann og falaðist eftir vísu.
Stefán svaraði hægt og seint og tíndi
orðin út úr sér og þó heldur slitrótt.
Lárus gladdist í hjarta sínu við ljóð
ið og skrifaði niður en eitthvað dró
úr hrifningunni þegar vinnufélagar
hans fóru með vísuna með eðlilegri
hrynjandi:
Langt af sínum bræðrum ber,
betri verka nýtur,
lítið yfir lætur sér
Lárus hunda skýtur.
Einn ágætur vinnufélagi Stefáns
hjá útvarpinu varð fyrir því að detta
af hestbaki og meiddist nokkuð. Var
talað um að hefði blætt inn á heil
ann. Um þá atburði orti Stefán:
Um viðburð þennan aðeins eitt
ég yrkja vil.
Það blæðir aldrei inná neitt
sem ekki er til.
Ásmundur Jónsson frá Skúfs
stöðum var mjög handgenginn
Einari Benediktssyni um tíma og
taldi hann standa flestum mönn
um framar og raunar nær guðlegum
verum en mannlegum. Af því tilefni
ortu þeir í sameiningu, Bjarni Guð
mundsson, Haraldur Á. Sigurðsson
og Morten Ottesen.
Í skáldskap við aðra ég sting
mjög í stúf
af stórbrotnu skáldjöfrakyni,
ég er undarlegt sambland af
Ásmundi Skúf
og Einari Benediktssyni.
Sigvaldi Kaldalóns fékk aftur á
móti þessa kveðju frá Ásmundi:
Þú slegið hefur hörpu þýða
strengi
af hagleik þinnar sálar vel og
lengi.
Svo hátt og djúpt þú hjörtun
drifið getur
að heilagt ljós þeim skín en
gleymist vetur.
Og yrkja skaltu enn á silfur-
strengi
við árdagsroða hárrar göfgi og
snilldar.
Og sólarvætti veldu þér til
fylgdar
svo vorsins tónar ómi frá þér
lengi.
Sveinn Gunnarsson frá Mæli
fellsá var um tíma þekktur maður
og hafði töluverða verslunarþörf í
blóðinu. Man ekki betur en hann
hafi verið með söluturn á Lækjar
torgi um tíma. Dóttur átti hann sem
Gunnþórunn hét og var kaupkona
á Sauðárkróki. Eftir hana er þessi:
Ef það gleður anda minn
enn skal fjúka staka.
Þótt hnútum kasti heimurinn
hendi ég þeim til baka.
Magnús Hjaltason sem er talinn
vera fyrirmynd Halldórs Kiljan að
Ljósvíkingnum Ólafi Kárasyni var
um tíma heimiliskennari að Sæbóli á
Ingjaldssandi. Einn vetur var honum
samtíða nafni hans, óvígður kandi
dat úr Prestaskólanum og kom þeim
nöfnum lítt saman. Eitt sinn ávarp
aði kandidatinn heimiliskennarann:
Fæst við kennslu fyrir mat
finnst ei ræfill slíkur
Magnús Hjaltason svaraði sam
stundis:
en frakkaklæddur kandídat
kjaftar, lýgur, svíkur.
Það er nú svo með blessaða prest
ana að þeir eru þó aldrei nema
dauðlegir menn sem hafa verið
menntaðir og ráðnir til ákveðinna
starfa og sinna því vissulega flestir
með ágætum. Held að þessi sé eftir
Hlymrek Handan:
Víst laginn var lítið til puðs
hann Lárus, sá unnandi stuðs.
Fyrst guðfræði nam hann
því gjarn var á framann.
Svo lærði hann að lokum til
Guðs.
Sagt var að einhvern tímann hafi
hist í leiðindatíð á útmánuðum tve
ir húnvetnskir bændur og tekið tal
saman og annar segir; „Nú líður
mér vel. Allar mínar skepnur standa
við hey á húsi.“ Hinn svaraði; „Ekki
liði mér vel ef svo væri ástatt hjá
mér.“ Páll Guðmundsson frá Holti
á Ásum orti:
Stabbinn grennist, geilar víkka,
gengur senn á heyjaforðann.
Hokurbóndans brúnir síkka
blæs af Grænlandsjöklum
norðan.
Alltaf kemur nú vor aftur þó eitt
hvað þústi að um miðjan veturinn
og eigum við ekki að rifja upp eina
svona snemmvorsvísu eftir Bjarna
frá Gröf:
Hvíta skikkjan ónýt er
alltaf fjölga götin.
Guð má fara að gefa þér
grænu sparifötin.
Og svo mætti reyna að ljúka
þættinum með þessari ágætu vísu
Hindisvíkurklerks:
Ég hef kvæði kveðið hér,
kastað mæði og trega,
og í næði unað mér
óumræðilega.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Tæla lyndisljúfa menn - leika grindarsnúning
Hjúkrunarheimilið Silfurtún í
Búðardal er einn þeirra staða í heil
brigðiskerfinu, þar sem álag hefur
verið mikið að undanförnu. Þetta
hefur með tímanum haft sín áhrif
á starfsfólkið og er það orðið dá
lítið lúið. Guðný Ágústa Skúladótt
ir og Björt Þorleifsdóttir sem vinna
á heimilinu hittust nýlega og ræddu
saman um vinnuna. Þeim fannst sig
vanta smá birtu í daginn og veltu
fyrir sér hvort ekki væri þannig
komið líka með fleiri starfsmenn,
enda orðið langvarandi mikið álag
og erfitt að halda gleðinni og góða
skapinu, þegar svo er komið. Guð
ný Ágústa fékk þá þessa fínu hug
mynd.
Hún var að koma vinnufélögum
þeirra á óvart. Þess vegna höfðu
þær samband við ýmis fyrirtæki,
bæði í Búðardal og annars staðar, til
að athuga hvort þau væru ekki til í
að leggja til eitthvert smáræði, sem
væri hægt að gauka að starfsmönn
um svo þeir gætu gert vel við sig.
Skemmst er frá því að segja að
viðbrögð fyrirtækjanna voru mjög
góð og fengu þær sendingar frá m.a.
Krambúðinni, MS, Body Shop,
Vífilfelli, Vilko og L’Occitane.
Þessu útbjuggu þær pakka úr til
samstarfsmanna sinna og fóru með
upp á Silfurtún. Þá gátu allir farið
glaðir heim af vaktinni og gert sér
dagamun. Þökk sé tveimur hugul
sömum konum.
bj
Tími til að gera gott
Pennagrein
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur
tekið upp stefnumál Heimastjórnar
flokksins um uppbyggingu íbúða
hverfis í Ölduhryggnum vestan við
Borg á Mýrum. Einnig er búið að
setja ótímabæra friðun Borgarvogs
ins á ís. En meðlimir Heimastjórnar
flokksins höfðu ítrekað varað við því
að friðun Borgarvogsins, eins og hún
var boðuð, gæti hamlað eðlilegri upp
byggingu, jafnt í Borgarnesi sem og í
Ölduhryggnum.
Augljóst er að meirihlutinn stekkur
á hugmynd Heimastjórnarflokksins
og að um kúvendingu er að ræða, því
stuttu áður var allt annað upp á ten
ingnum, sveitarstjórnin var nýbúin að
bjóða Skotfélagi Vesturlands Öldu
hrygginn til afnota sem útiskotsvæði.
Vonandi sér meirihlutinn í Borgar
byggð að sér í fleiri málum og fer eftir
nýrri hugsun og sýn Heimastjórnar
flokksins í fleiri stórmálum er varða
íbúa Borgarbyggðar.
Til að lesendur geti metið sjálf
ir hversu augljóst sé að meirihlut
inn hafi stokkið á hugmyndir
Heimastjórnarflokksins er hér birtur
hluti greinar eftir undirritaðan sem
birtist í Skessuhorni þann 8. desem
ber 2021 er fjallar um málið.
„Þróun byggðar
Af nógu er að taka þegar byrjað er
að ræða um framtíðarmöguleika upp
byggingar í Borgarbyggðinni. En líta
verður til lengri tíma en gert hefur
verið til þessa. Í Borgarnesi verður
að taka ákvörðun um hvort að þétta
eigi byggðina eða láta hana þróast
„upp í sveit“, jafnvel allt að Einars
nesi. Ölduhryggurinn, svæðið vestan
við Borg á Mýrum er í eigu Borgar
byggðar og það hefur oft komið til
greina sem íbúðabyggð. Rétt fyr
ir hrun var verktaki í viðræðum við
Borgarbyggð um að reisa þar nokkurs
konar sjálfbært þorp, íbúðarbyggð
með verslun og leikskóla. Í dag er
Borgarbyggð búin að gæla við frið
un Borgarvogs sem girða myndi fyrir
möguleika á að byggja í Ölduhryggn
um.“
Hugmyndir Heimastjórnarflokks
ins koma eins og ferskur andblær inn
í staðnaða og andlausa flokkspólitík
gömlu flokkanna í Borgarbyggð. Við
viljum vekja athygli fólks á heimasíðu
flokksins og Facebooksíðu, þar sem
áhugasamir geta kynnt sér stefnuna
betur og jafnvel skráð sig í flokkinn.
Á stjórnarfundi Heimastjórnar
flokksins í sl. viku var samþykkt að
stjórn flokksins skipi fólki á fram
boðslistann. Stjórnina vantar tilnefn
ingar um fólk á lista flokksins. Fólk
sem þorir að hugsa út fyrir boxið og
hefur skoðanir og trú á framtíðarupp
byggingu Borgarbyggðar. Nú þegar
er ljóst að Heimastjórnarflokkurinn
kemur til með að hafa mikil áhrif á
gang mála í Borgarbyggð í framtíð
inni.
Varðandi önnur mál Heima
stjórnar flokksins má meðal annars
nefna heitustu kartöfluna í skipulags
málum Borgnesinga til áratuga sem
er hvort að þjóðvegurinn eigi að
liggja í gegnum bæinn til allrar fram
tíðar með tilheyrandi slysahættu
og síauknum umferðartöfum. Aðr
ir möguleikar eru að þjóðvegurinn
verði lagður upp með landinu eða að
gerð verði vegleg mislæg gatnamót
inni í bænum svo að akandi, hjólandi
og gangandi umferð geti farið örugg
lega um í bænum án þess að þvera sí
vaxandi þjóðvegarumferðina.
Heimastjórnarflokkurinn vill leysa
klúður meirihlutans í Brákareyjar
málinu í samvinnu við félagasamtök
in sem rekin voru út úr gamla Slátur
húsinu. Okkur er sama hvaðan góð
ar hugmyndir koma og tökum því
undir með ritstjóra Skessuhorns um
að stofnuð verði hagsmunasamtök
eða eitt sameinað félag þeirra sem í
húsinu voru, sem verði samnings
aðili við sveitarstjórnina. Ein hug
myndin er sú að sveitarfélagið gefi
því félagi hluta hússins (burstirnar
þrjár) til enduruppbyggingar og láti
rífa það sem er ónýtt af öðrum hús
um. Einnig kæmi til greina að fela
slíku félagi að rífa ónýtu húsin í stað
þess að bjóða það út.
Eiríkur Þór Theodórsson
Höf. er formaður Heimastjórnar-
flokksins í Borgarbyggð
Stefna Heimastjórnar-
flokksins hefur strax áhrif!