Skessuhorn - 23.02.2022, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2022 23
Íþróttamaður
vikunnar
Íþróttamaður vikunnar er nýlegur
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta
manna úr alls konar íþróttum á
öllum aldri á Vesturlandi. Íþrótta
maður vikunnar að þessu sinni er
körfuknattleiksmaðurinn Marinó
Þór í Borgarnesi.
Nafn: Marinó Þór Pálmason
Fjölskylduhagir? Bý hjá foreldr
um mínum ásamt þremur yngri
systkinum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Íþróttir og bíómyndir.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Er að
vinna alla daga til klukkan 15:30
í Öldunni. Svo kem ég heim að
brasa eitthvað sniðugt í smá áður
en ég fer að þjálfa og svo á æfingu.
Eftir æfingu finnst mér svo gott að
fara í heita pottinn áður en ég fer
heim að hafa það huggulegt.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Myndi segja að helstu
kostirnir væru jákvæðni og iðju
semi á meðan gallinn er frestunar
árátta.
Hversu oft æfir þú í viku? Fimm
sinnum í viku og svo er oftast einn
leikur líka.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Luka Doncic.
Af hverju valdir þú
körfuknattleik? Pabbi minn spil
aði og þjálfaði körfubolta þegar ég
var yngri og það hefur ýtt mér í
rétta átt.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Samstarfsfélagar mín
ir í Öldunni.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast við íþróttina er fé
lagsskapurinn á meðan það leiðin
legasta er að hita upp.
Félagsskapurinn er skemmtilegastur
Fyrsta mótið í KB mótaröðinni hjá
hestamannafélaginu Borgfirðingi
fór fram í reiðhöllinni Faxaborg í
Borgar nesi á laugardaginn. Keppt
var í B flokki; 1. flokki, 2. flokki, ung
mennaflokki, unglingaflokki, barna
flokki og pollaflokki. Einnig voru
veittar viðurkenningar fyrir þrjá efstu
í vali íþróttamanns hestamannafé
lagsins Borgfirðings fyrir árið 2021.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker var
valin íþróttamaður Borgfirðings og
fékk hún farandbikar sem Skáneyjar
búið gaf. Þá var Embla Móey Guð
marsdóttir í öðru sæti og Kolbrún
Katla Halldórsdóttir í því þriðja.
arg/ Ljósm. Hestamannafélagið
Borgfirðingur
Skagamenn tóku á móti liði Selfoss
í 1. deild karla á föstudagskvöldið
og lauk leiknum með öruggum
sigri gestanna, 71:86. Jafnræði var
með liðunum í fyrsta leikhluta,
jafnt nánast á öllum tölum og ÍA
með þriggja stiga forystu þegar
honum lauk, 19:16. Heimamenn
héldu áfram að stríða gestunum
og um rúman miðjan annan leik
hluta var staðan 31:24 ÍA í vil. En
þá tók Selfoss við sér og var kom
inn með þriggja stiga forskot þegar
hálfleiksflautan gall, 35:38.
Spennan hélst áfram í leiknum
og eftir tæplega fimm mínútna leik
í þriðja leikhluta var staðan 40:45
gestunum í vil. En þeir náðu síð
an að auka forskotið það sem eftir
lifði leikhlutans og voru komnir í
góða stöðu fyrir fjórða og síðasta
leikhluta, staðan 48:60. Heima
menn voru aldrei líklegir að ná
að minnka muninn þar, gestirnir
hleyptu þeim ekki neitt og loka
staðan í leiknum, 71:86 fyrir Sel
fossi.
Hjá ÍA var Christopher Clover
stigahæstur með 22 stig, Lucien
Christofis var með 19 stig og Davíð
Alexander Magnússon með 9 stig.
Hjá Selfossi var Gerald Robinson
með 30 stig og 10 fráköst, Gasper
Rojko með 20 stig og 11 fráköst og
Vito Smojver með 11 stig.
ÍA situr á botni deildarinnar sem
fyrr með aðeins tvö stig og Hamar
þar fyrir ofan með sex stig í níunda
sæti deildarinnar. Hrunamenn eru
með tólf stig í áttunda sætinu og
því verður að telja það ansi líklegt
að fall blasi við hjá liðum Hamars
og ÍA þegar deildinni lýkur seinni
hlutann í mars.
Næsti leikur ÍA er gegn Álftanesi
föstudaginn 25. febrúar syðra og
hefst leikurinn klukkan 19.15.
vaks
Laugardaginn 12. febrúar gerðu
þau Magnús Ingi Bæringsson,
æskulýðs og tómstundafulltrúi
Stykkishólmsbæjar, og Sigríður
Ólöf Sigurðardóttir sér lítið fyrir
og sópuðu snjó af svellinu við flug
stöðina í Stykkishólmi. Fjöldinn
allur af Hólmurum nýtti tækifær
ið og dustaði rykið af skautunum í
kjölfarið, en frá þessu er sagt á vef
síðu Stykkishólmsbæjar.
Nú geta gönguskíðagarpar í
Stykkishólmi einnig tekið gleði sína
þar sem búið er að ryðja göngu
skíðabraut á golfvellinum. Eft
ir ábendingu frá íbúa hafði Magn
ús samband við Kristján Auðuns
son sem ruddi brautina með þar til
gerðum búnaði.
Veðrið hefur leikið við Hólmara
undanfarið eins og svo oft áður
að þeirra sögn og gera veðurfróð
ir Hólmarar ráð fyrir að ekkert lát
verði á því á næstu dögum. Því er
um að gera fyrir bæjarbúa að njóta
blíðunnar og spreyta sig á vetrar
sportinu.
vaks
Lið Ármanns og Snæfells mættust á
föstudagskvöldið í 1. deild kvenna í
körfuknattleik og fór leikurinn fram
á heimavelli Ármanns í Kennarahá
skólanum í Reykjavík. Fyrir leik
inn var Ármann í efsta sæti deildar
innar með 26 stig en Snæfell í öðru
sæti ásamt ÍR með 20 stig. Í fyrri
leik liðanna í deildinni sem fram fór
í Stykkishólmi í nóvember vann Ár
mann nauman sigur, 76:79. Leik
urinn á föstudaginn var jafn til að
byrja með en í stöðunni 5:4 skor
aði Ármann næstu sjö stig og hafði
góða forystu eftir fyrsta leikhluta,
20:9. Lítið breyttist stigalega séð í
öðrum leikhluta en Ármann þó enn
með yfirhöndina og leiddi með 14
stigum í hálfleik, staðan 35:21 fyrir
heimastúlkur.
Snæfellinngar reyndu hvað
þær gátu til að komast inn í leik
inn í þriðja leikhluta en lítið gekk
að saxa á forskotið og flest á svip
uðum nótum og áður þegar liðin
lögðu á ráðin fyrir fjórða og síð
asta leikhlutann, staðan 52:40 fyr
ir Ármanni. Heimastúlkur skoruðu
fyrstu sex stigin í honum og lögðu
grunninn að sigrinum. Þó að Ár
mann hafi aðeins skorað tvö stig
gegn níu stigum Snæfells síðustu
fimm mínútur leiksins þá var sigur
inn aldrei í hættu og sanngjarn sig
ur Ármanns, 67:59.
Hjá Snæfelli voru þær Sianni
Martin og Rebekka Rán Karlsdótt
ir sem létu eitthvað að sér kveða í
leiknum. Martin var með 35 stig
og Rebekka Rán með 14 stig og
þá var Preslava Koleva með 17 frá
köst. Hjá Ármanni var Schekinah
Bimpa með 21 stig og 27 fráköst,
Jónína Þórdís Karlsdóttir var með
19 stig og 11 fráköst og Telma Lind
Bjarkadóttir með 10 stig.
Næsti leikur Snæfells er gegn
AþenuUMFK laugardaginn 26.
febrúar í Stykkishólmi og hefst
klukkan 16. vaks
Gönguskíðabrautin á
golfvellinum.
Ljósm. af stykkisholmur.is
Skautasvell og gönguskíðabraut
í Stykkishólmi
Snæfell tapaði gegn Ármanni
Skagamenn töpuðu
áttunda leiknum í röð
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker, Embla Móey Guðmarsdóttir og Kolbrún Katla Hall-
dórsdóttir voru efstar í valinu á íþróttamanni Borgfirðings fyrir árið 2021. Eyþór
Jón Gíslason formaður Borgfirðings afhenti þeim viðurkenningar og verðlaun.
Kristín Eir er íþrótta-
maður Borgfirðings
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker var valin íþróttamaður Borgfirðings 2021. Eyþór
Jón Gíslason formaður Borgfirðings veitti henni verðlaunin.