Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Síða 2
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Póstdreifing ehf.
11. tbl. 24. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101.
Um 12 þúsund manns hafa sest að í Reykjavík síðan 2017.
Það er um það bil allur fjöldi íbúa Mosfellsbæjar. Eða
íbúafjöldi Árborgar, Seltjarnarness, Grindavíkur, Hveragerðis
og Ölfus til samans. Þetta kom meðal annars fram í erindi Dags
B. Eggertssonar borgarstjóra á kynningarfundi á uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á dögunum.
L jóst er að svo mikill áhugi á búsetu í Reykjavík kallar á
miklar framkvæmdir í húsnæðismálum. Íbúðir vantar fyrir
yngri sem eldri og verðlag húsnæðis hækkar við vaxandi
eftirspurn.
Á undanförnum árum hefur verið efnt til mikils átak í
þéttingu byggðar í borginni. Þétting byggðar krefst nýrrar
hugsunar í skipulags- og byggingamálum. Hún krefst meiri
nálægðar í borgarumhverfi.
Þess sér þegar merki í Vesturbæ Reykjavíkur og Miðborginni.
Vissir borgarhlutar eru nær óþekkjanlegir frá því áður
var. Hafnartorgið hefur verið byggt á gömlu malarbílastæði.
Hverfisgatan hefur breyst úr brunarústum að hluta í blómlega
byggð. Vestast í Vesturbænum eru blómleg hverfi að rísa.
Þétting byggðar krefst tilkostnaðar þar sem breyta þarf
gróinni byggð. Spurning er þó um hvort sá kostnaður komi
ekki til með að skila sér í formi hagkvæmara umhverfis.
Umræða um þróun borgar er nauðsynleg. Eflaust verða allir
seint sammála. En ytri aðstæður setja þróuninni mörk eins
og vikið hefur verið að.
Þétting byggðar er og verður ekki umflúin.
Þétting byggðar er
nauðsyn
NÓVEMBER 2021
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Fasteignafélagið Reitir huga nú að bygginga
framkvæmdum á Loftleiðareitnum. Gert er ráð
fyrir íbúðum, matvöruverslun og líkamsrækt á
svæðinu. Reitir undirrituðu kaupsamning við
dótturfélag Icelandair um kaup á fasteigninni að
Nauthólsvegi 50, þar sem skrifstofur flugfélagsins
eru til húsa. Kaupverð er 2,3 milljarða króna.
Samkvæmt kaupsamningi verður Icelandair
áfram í skrifstofuhúsnæðinu, sem er 6.474 fer-
metrar að stærð, næstu tvö árin en hyggst svo flytja
höfuðstöðvarnar á Flugvelli í Hafnarfirði árið 2024. Í
hugmyndum Reita er gert ráð fyrir að gamla Hótel
Loftleiðir eða Natura verði áfram á sínum stað. Hins
vegar er til skoðunar að skrifstofurými Icelandair
fari til annarra nota. Er þá gert ráð fyrir svonefndum
„co-living“ íbúðum þar sem íbúar deila rýmum á
borð við þvottahúsi, eldhúsi og vinnuaðstöðu. Þá
eru einnig hugmyndir um að koma upp matvöru-
verslun, líkamsrækt og kaffihúsi á svæðinu. Verði
af þessum hugmyndum mun svæðið taka miklum
breytingum. Þjónustufyrirtæki muni koma á svæðið
auk þess að bílastæðunum fyrir framan innganginn
að hótelinu verður breytt í almenningsrými.
Miklar breytingar fyrirhugaðar
á Loftleiðareitnum
Hugmynd um framtíðarskipulag á Loftleiðareitnum. Myndin var tekin á fundi Reykjavíkurborgar um
grænar samgöngur á liðnu sumri.
Unnið er að breytingum
og lagfæringum á einu sögu
frægasta húsi Reykjavíkur,
Bryggju húsinu Vesturgötu 2.
Í gegnum tíðina hefur byggin
gin hýst margskonar verslanir,
vöruhús, skrifstofuhúsnæði,
blaðaútgáfu, kaffihús, skemmti
stað og var um tíma eitt af
stærstu veitingahúsum Reykja
víkur. Nú fær það nýtt hlutverk.
Verður mathöll í miðbænum.
Bryggjuhúsið á sér langa
sögu. Það var upphaflega reist
af C.P.A. Koch árið 1863. Húsið
var þá aðeins á einni hæð, með
þaki yfir ganginn að bryggjunni,
og var notað sem vöruhús og
skrifstofur fyrir sjópóstþjónustu.
Vegna staðsetningarinnar varð
húsið fljótt að samkomustað
sjómanna og annarra sem áttu
erindi að bryggjunni. Árið 1888
var ákveðið að númera öll hús í
Reykjavík og fékk Bryggjuhúsið
fyrsta númerið Vesturgata 2.
Það var jafnan mikill viðburður
í fábreyttu bæjarlífi þegar póst-
skipið sigldi inn í höfnina á
vordögum. Fólk dreif sig niður á
bryggju til að sýna sig og sjá aðra.
Yfir veturinn var langt á milli
skipaferða frá útlöndum og oft
var það að síðasta vöruflutninga-
skip, sem einnig flutti menn og
póst, sem kom í nóvember og
síðan ekki fyrr en í enda mars eða
byrjun apríl.
Fjölbreytt saga
Saga Bryggjuhússins er fjöl-
breytt. Árið 1917 keypti bærinn
eða tók Vesturgötu eignarnámi.
Þá var ætlunin að framlengja
Aðalstræti niður á bryggjuna.
Ekkert varð þó af þeim áformum.
Á árunum 1913 til 1917 var unnið
að hafnargerð á svæðinu og þá
var gerð uppfylling að Tryggva-
götu og stækkaði lóð Bryggju-
hússins mikið við það. Árið 1939
er gerð virðing á vi ðbyggingu við
húsið og byggt ofan á hana. Um
leið voru þessi tvö hús sameinuð
undir eitt þak. Þar kemur
fram að neðri hæðin sé aðal-
lega notuð undir vöru geymslu
og fataklefa. Árið 1941 reisti
Natan og Olsen vörugeymslu-
hús úr holsteini nyrst á lóðinni
sem Guðmundur Þorláksson
byggingameistari teiknaði.
Gamli hafnarkanturinn
verður sýnilegur
Með breytingunum nú verður
gamli hafnarkanturinn norðan við
húsið sýnilegri} en áður. Það er
hlaðinn grjótgarður sem reistur
var um 1890 og liggur frá vestri til
austurs eftir endilöngum reitnum
norðan við húsið. Þessi hafnar-
kantur er elsta hafnarmannvirki í
Reykjavík. Þetta er stórmerkilegt
mannvirki og er friðað. Upphaf-
legi hluti hússins stendur enn
en það hefur verið stækkað í
gegnum tíðina og byggt við það.
Breytt deiliskipulag
samþykkt
Á fundum skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur á l iðnu hausti
var fjallað um umsókn Davíðs
Kristjáns Chatham Pitt, f.h. Tví-
eykis ehf., um breytingu á deili-
skipulagi Grófarinnar vegna
lóðarinnar nr. 2 við Vesturgötu.
Tillagan var grenndarkynnt frá
16. september 2021 til og með 14.
október 2021. Engar athuga semdir
bárust. Breytt deili skipulag var
samþykkt á fundi skipulagsfulltrúa
18. október síðastliðinn.
Verður mathöll í miðbænum
Bryggjuhúsið við Vesturgötu 2.
Bryggjuhúsið við Vesturgötu 2 lagfært