Vesturbæjarblaðið - dec 2021, Qupperneq 10

Vesturbæjarblaðið - dec 2021, Qupperneq 10
10 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2021 Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur borgar veitir árlega viðurkenningar fyrir fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjöl- býlishúsalóðir og fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum. Nokkrar fasteignir í Vesturbæ og Miðborg hlutu fegrunnar- viðurkenningar Reykjavíkur- borgar að þessu sinni en þær eru veittar á afmælisdegi borgar- innar 18. ágúst ár hvert. Afhend- ing viðurkenninga fór fram í Höfða. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Pawel Bartoszek formaður umhverfis- og skipu- lagsráðs Reykjavíkurborgar veittu viðurkenningarnar. Að þessu sinni var Fríkirkju­ v e g u r 1 1 v i ð u r k e n n i n g a r að njótandi. Húsið var reist á árunum 1907 ril 1908 eftir teikningum Einars Erlends­ sonar fyrir athafnamanninn Thor Jenssen. Húsið er friðlýst og hefur staðið að mestu óbreytt frá upphafi en gengist undir tölu­ verðar viðhaldsframkvæmdir á undanförnum árum. Húsið er eitt besta dæmi Reykjavíkur um framúrskarandi varðveislu hvað byggingarstíl, byggingarefni og handverk varðar. Hátún 8 Hátún 8 er byggt árið 1963 eftir teikningum Sigvalda Thordarson arkitekts og er með þekktari fjöl­ býlishúsum í Reykjavík. Húsið er sjö hæðir auk efri og neðri kjallara. Sigvaldi lagði áherslu á sérbýlið í fjölbýlinu við hönnun hússins. Nýlegar endurbætur á húsinu sem stóðu yfir um árabil hafa miðast að því að varðveita upprunaleika hönnunar Sigvalda. Skólastræti 5 Skólastræti 5 er búðarhús Einars Jónssonar „snikkara“ sem var reist árið 1856 og er meðal elstu húsa í Reykjavík. Í því má lesa hvernig lítil 19. aldar íbúðar­ hús stækkuðu eftir tísku og efnahag er leið á öldina en húsið var lengt til norðurs og byggður á það breiður miðju kvistur 1865. Árið 1889 var það síðan hækkað um eina hæð. Húsið er eitt af elstu íbúðarhúsum í miðbæ Reykjavíkur en það hefur jafn­ framt ótvírætt gildi sem partur af hinni upprunalegu timburhúsa­ byggð sem prýðir brekkuna austan Lækjargötu. Íþaka Íþaka var reist sem bókhlaða Menntaskólans í Reykjavík árið 1867 og er það hlaðið steinhús úr höggnum grásteini. Danski byggingarmeistarinn C Klentz sá um byggingu og líklega hönnun þess. Upphaflega voru útveggir kalkaðir og þak skífulagt. Boga­ dregnir pottjárnsgluggar prýddu allar hliðar hússins. Íþaka er partur af elstu og heillegustu götumynd Reykjavíkur en götu­ myndin einkennist af húsum sem byggð voru á 18. og 19. öld og eru nú friðlýst. Nýlegar endur­ bætur á Íþöku sem gerðar voru eftir teikningum Argos arkitekta miðuðust að því að færa húsið sem næst upprunalegu útliti. Tjarnargata 28 Tjarnargata 28 var byggt fyrir Eggert Briem skrifstofustjóra árið 1907 en hönnuður þess er ókunnur. Upphaflegt hús var reist með porti, risi og kjallara í báru­ járnssveitserstíl sem einkennir byggðina undir Tjarnarbrekkunni. Gildi hússins er því mikið fyrir þá röð friðlýstra timburhúsa sem reist voru í byrjun 20. aldar í sam­ bærilegum byggingarstíl. Suðurgata 12 Suðurgata 12 er stofnanalóð. Um er að ræða gagngera endurnýjun á lóðinni þar sem vel hefur verið vandað til verka. Garðurinn fegrar alla götumynd Suðurgötunnar einnar elstu götu í gömlu Reykjavík. Neðst í lóðinni við gangstétt á Suður­ götu er komið fyrir listaverki eftir Kristin Hrafnsson sem er skemmtileg viðbót við góða hönnun lóðarinnar. Viðurkenningar fyrir fjölbýlishúsalóðir og endurbætur á eldri húsum Þeir sem tóku við viðurkenningum í Höfða ásamt Degi B. Egg- ertssyni borgarstjóra og Pawel Bartoszek formanni umhverfis- og skipulagsráðs. Vesturbær og Miðborg Afgreiðslutími: Mán: 11-16 Þri-fös: 11-18 Lau: 11-16 ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK systrasamlagid.is @systrasamlagid Sími: 511 6367 Dekraðu við þig og þína í Desember Jógadýnur og fylgihlutir allskonar jógadýnur og fylgihlutir. endurunninn ull og korkur frá asanas. klassískar frá manduka. Jóga-og kósýföt Lífrænn og umhverfisvænn dásemdar fatnaður sem þú vilt verja 80% af tíma þínum í. buxur, bolir, samfestingar, túnikur og kjólar. Ripple, Spiritual Gangster, BySirrý. baðdekur af bestu gæðum Fjölbreytt spa- og baðlína: Húðburstar, svampar, hanskar, naglaburstar, hárbönd, augnhvílur og allskyns. Hydréa London hlaut nýlega “good brand award” fyrir umhverfisvitund og sjálfbærni. Leiðandi í baðdekri í heiminum í dag. kyngimögnuð ítölsk kerti umhverfisvæn kerti að fornum ítölskum sið. mynd- og orðaskreytt með háskerpu vaxprentunartækni. einstök í heiminum. kerti er ekki bara vax. kerti er list. Hverjir verða í næstu borgarstjórn? Sveitarstjórnarkosningar eru á komandi vori. Gera má ráð fyrir að fljótlega upp úr áramótum fari framboðsaðilar að setja sig í stellingar hvort sem efnt verður til prófkjöra eða framboð ákveðin með öðrum hætti. Líklegt verður að teljast að margir borgarfulltrúar hyggi á áframhaldandi setu en einhverra breytinga kann þó að vera að vænta. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun ekki búinn að ákveða hvort hann muni gefa kost á sér til þess að leiða framboðslista Samfylkingarinnar og vera borgarstjórnarefni. Ákveði hann að halda áfram er ekki gert ráð fyrir miklum breytingum en ákveði hann að hætta getur komið til þess að tekist verði á um oddvitasætið og ekki enn víst hverjir muni sækjast eftir því. Bæði Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Pavel Bartosek munu hyggja á framhald í borgarstjórn og ekki búist við miklum breytingum hjá Viðreisn. Einhverjar hugmyndir eru uppi um að Þórdís Lóa verði borgarstjóraefni núverandi meirihluta kjósi Dagur að draga sig í hlé. Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur gefið til kynna að hann hyggist leiða lista flokksins og Hildur Björnsdóttir sem er í öðru sæti í dag hyggur einnig á framhald. Minna er vitað um aðra borgarfulltrúa flokksins en engir hafa að minnsta kost enn sem komið er ákveðið að gefa ekki kost á sér. Listi Sjálfsstæðiflokksins gæti því orðið lítið eða ekkert breyttur frá því sem nú er að því gefnu að prófkjör hrófli ekki mikið við honum. Líf Magneudóttir hjá Vinstri grænum hyggst halda áfram og einnig Sanna Mörtudóttir sem situr í borgarstjórn fyrir Sósíalistaflokkinn. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir sem var borgarfulltrúi Pírata er hætt í borgarstjórn og flutt til Húsavíkur en ekki er vitað um fyrirætlanir Dóru Bjartar Guðjónsdóttir eða Alexöndru Briem. Ekki er heldur vitað hverjir hyggja á framboð fyrir Framsóknarflokkinn. Hann hefur ekki átt fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur að undanförnu en í ljósi nýafstaðinna Alþingiskosninga getur hann átt góða möruleika á borgarfulltrúasæti. Það getur þó ráðist af því hver mun leiða lista flokksins og hversu sýnilegir efstu menn hans verða. Miklar lýkur eru á að Flokkur fólksins eigi möguleika á sæti í borgarstjórn og spurning um hvort Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi verði áfram í borgarstjórn á hans vegum. Miðað við niðurstöðu þingkosninganna og skoðanakannana að undanförnu er ekki líklegt að Miðflokkurinn nái manni í borgarstjórn bjóði hann fram. Af öðrum framboðum hafa ekki borist fregnir enn sem komið er enda nóvember og kosningar að vori. Ný framboð gætu því átt eftir að skjóta kollinum upp. Næstu borgarstjórnarkosningar verða 14. maí nk. www.borgarblod.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.