Vesturbæjarblaðið - des. 2021, Blaðsíða 14
14 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2021
Nú eru liðin 150 ár frá því sjómenn á opnum
árabátum við Kollafjörð: í Reykjavík, Engey og
á Framnesinu, sem við nefnum nú Seltjarnarnes
tóku afgerandi forystu í fiskveiðum og útgerð á
Suðvesturhorni landsins. Þetta gerðu þeir með
miklu stærri og breyttum bátum (Engeyjarlag)
bættum stýrisbúnaði, voldugri siglu og betri
seglabúnaði. Þeir lærðu að sigla. Í kjölfarið sóttu
þeir miklu lengra út á Flóann, öfluðu betur og
oftar og seldu aflann úr landi með mun meiri
hagnaði en áður tíðkaðist. Þessir fullhugar
lögðu grunninn að hinni miklu þilskipaútgerð
við Faxaflóann, frá 1880 til 1910, sem aftur
varð nauðsynleg forsenda fyrir vélvæðingu
bátaflotans, togaraútgerð og tröllauknum
hafnarframkvæmdum í Reykjavík frá 1913.
Nú er þessi merka saga ekki oft rifjuð upp. En hún
má ekki gleymast.
Fátt er nú til marks um þá sögu sem hér hefur
verið drepið á. Norðurstrandlengja Reykjavíkur, frá
Ánanaustum að Elliðaánum er nú löngu gjörbreytt
og manngerð og hinar gömlu varir þessara merku
sjómanna, löngu horfnar. En Grásleppuskúrarnir
við Ægisíðu, sem standa þar enn eru í raun
okkar einu minjar um smábátaútgerð í Reykjavík.
Útgerð grásleppubáta var við Grímstaðavör langt
fram eftir 20. öldinni og þegar mest var voru
sextán bátar gerðir út frá Ægisíðunni. Skúrarnir
þar og vörin eru því okkar einu kennimörk um
smábátaútgerð í Reykjavík. Ef við viljum í raun
vera menningarsamfélag
sem kann einhver skil á sinni
atvinnusögu verðum við að
standa vörð um þessar minjar.
Það er því dapurlegt að
horfa upp áhugaleysi borgar
yfirvalda þegar kemur að
þeirri viðleitni að varðveita
og viðhalda þessum merku
minjum. Grásleppuskúrarnir
og umhverfi þeirra hafa
verið í niðurníðslu svo árum
skiptir. Í meirihlutatíð okkar
sjálfstæðismanna var hafist
handa við endurgerð þeirra
á árunum 2006 til 2010 í góðu samstarfi við íbúa
og borgarminjavörð. Þá var unnin tillaga um
varðveislu skúranna af Ögmundi Skarphéðinssyni
arkitekt og hugmyndir settar fram um hvernig hægt
væri að nýta þá og halda sögu þeirra til haga. Um
var að ræða metnaðarfullar tillögur sem myndu
auka möguleika á nýtingu skúranna og svæðisins í
heild með auknum tækifærum til náttúruskoðunar
og fræðslu. Þannig yrði saga smábátaútgerðar þar
varðveitt og henni gerð skemmtileg skil, t.d. með
opnu margmiðlunarsafni og jafnvel stuttum ferðum
með árabátum út á Skerjafjörð. Auk þess var gert
ráð fyrir að nýta skúrana sem útikennslustofur fyrir
leik og grunnskóla.
Lítið hefur þokast síðan árið 2006 í að ljúka
við endurgerð skúranna fyrir utan að búið er að
gera vestasta skúrinn upp en enn á eftir að ljúka
við endurgerð hinna skúranna og varðveislu
þeirra minja á svæðinu sem tengjast sjósókninni
frá Grímstaðavör. Í liðinni viku samþykktu
borgaryfirvöld enn eina menningarstefnuna en hún
kveður á um að hlúa eigi að og færa menninguna
út í hverfin. Þessum sömu borgaryfirvöldum
hefur hins vegar ekki tekist að ljúka við endurgerð
þessara mikilvægu menningarminja. Væri ekki
nær að tala minna um menninguna en láta þess í
stað verkin tala.
Höfundur.
Marta Guðjónsdóttir.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
BÍLAVIÐGERÐIR
GRANDA
FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK
S: 562 5999 S: 669 5999
Söguminjar við Grímstaðavör
Bílastuð Eignaumsjónar - þrjár þjónustuleiðir í boði:
» Bílastuð 0 - úttekt á hleðsluaðstöðu og framkvæmdaáætlun
» Bílastuð 1 - sérhæfð innheimta fyrir húsfélög vegna rafbílahleðslu
» Bílastuð 1+1 - heildarumsjón með rafbílahleðslu í húsfélögum
Er hleðslukerfi rafbíla
hausverkur
í húsfélaginu?
STUÐ
1
Við aðstoðum við að leysa málin með hagsmuni
húsfélagsins að leiðarljósi! Allt frá úttekt á fyrirkomulagi
til heildarumsjónar með rafbílahleðslukerfi húsfélagsins.
thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is
2x14 = 99 mm x 140 mm
STUÐ
0
Marta
Guðjónsdóttir
borgarfulltrúi.
Við setjum upp hleðslustöðvar á 60 stöðum
í borginni næstu þrjú árin. Hjálpaðu okkur
að finna réttu staðina.
Sendu okkur tillögu á reykjavik.is/hledsla
Hvar vilt þú
hlaða batteríin?
Bas rinn
nytjamarkaður
austurveri
Háaleitisbraut 68
sími 562 6700
Opið virka daga 12-18
Basarinn
nytjamarkaður
austurveri
Háaleitisbraut 68
sími 562 6700
Opið virka daga 12-18