Feykir


Feykir - 20.01.2021, Side 4

Feykir - 20.01.2021, Side 4
Þann 21. desember síðastliðinn færðu eigendur Steypustöðvar Skagafjarðar ehf. Kiwanisklúbbnum Drangey eina milljón króna að gjöf vegna söfnunar klúbbsins fyrir nýjum líkbíl handa sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju til minningar um Pálma Friðriksson. Pálmi Friðriksson var fæddur þann 21. desember árið 1943 á Svaðastöðum í Skagafirði, hann lést þann 8. janúar 1998, nýlega orðinn 54 ára gamall. Hann var meðlimur í Kiwanis- klúbbnum Drangey til margra ára og naut þess að starfa þar með félögum klúbbsins. Hann var einnig fyrstur til að fara með vél inn í Kirkjugarð Sauðárkróks til að taka grafir árið 1971 en áður hafði það alltaf verið gert með haka og skóflu. Fyrirtæki í eigu Pálma og tengd honum hafa sinnt grafartöku í garðinum æ síðan. Í árslok 2019 hóf Kiwanis- klúbburinn Drangey söfnun með 500 þúsund króna fram- lagi til endurnýjunar á líkbíl fyrir kirkjusóknirnar í Skaga- firði. Núverandi líkbifreið er 39 ára gömul, afturdrifin og eyðslufrek, og er bæði dýr og óhentug í rekstri. Reikna má með því að það kosti 9-10 milljónir að endurnýja bílinn með þeim búnaði sem til þarf í slíka bifreið. Kiwanisklúbbur- inn samþykkti á fundi sínum 14. janúar að bæta við 250 þúsund krónum í sjóðinn og sömu upphæð gaf ÓK gáma- þjónusta. Klúbburinn vonast til þess að fyrirtæki, félaga- samtök og klúbbar í Skagafirði verði ekki eftirbátar Steypu- stöðvar Skagafjarðar ehf. og skorar á aðra klúbba og ein- staklinga að styðja við þetta þarfa verkefni sem kemur okkur öllum til góða sem hér búum. Reikningsnúmer söfn- unarinnar er 0310-22-001029, kt. 560269-7659. Það voru félagarnir Ingólfur Guðmundsson og Bjarki Tryggvason frá Kiwanis- klúbbnum Drangey sem veittu gjöfinni viðtöku ásamt Ingi- mar Jóhannssyni og Guðrúnu Sighvatsdóttur frá sóknar- nefnd Sauðárkrókskirkju. Ingimar Jóhannsson formaður sóknarnefndar Sauðárkrókskirkju AÐSENT | Ingimar Jóhannsson skrifar Söfnun vegna kaupa á líkbíl Hnjúkabyggð 33 I 540 Blönduósi I Sími 455 4700 FASTEIGNAGJÖLD 2021 Álagning fasteignaskatts: A-hluti fasteignaskatts (íbúðarhúsnæði) er 0,50% af hús- og lóðarmati. A-hluti fasteignaskatts (hesthús og gripahús í þéttbýli) er 0,50% af hús- og lóðamati. B-hluti fasteignaskatts (opinbert húsnæði) er 1,32% af hús- og lóðarmati. C-hluti fasteignaskatts (atvinnuhúsnæði og annað en að neðan greinir) er 1,65% af hús- og lóðamati. Vatnsgjald á A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúðar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 0,275% af hús- og lóðarmati. Holræsagjald á A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúðar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 0,25% af hús- og lóðarmati. Lóðarleiga fyrir A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúðar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 2,0% af fasteignamati lóðar, fyrir ræktunarlóðir 7.650 kr. á hektara, að lágmarki 10.250 kr. Sorpgjöld: Innheimt á hverja íbúð vegna sorphirðu: kr. 23.500,- Innheimt á hverja íbúð vegna sorpeyðingar: kr. 23.500,- Innheimt á sumarhús, hesthús og gripahús í þéttbýli vegna sorpeyðingar: kr. 23.500,- Reglur um afslátt fasteignaskatts 2021: 1. gr.: Umsækjandi skal hafa átt lögheimili í Blönduósbæ 1. desember 2020. 2. gr.: Rétt til afsláttar hafa elli- og örorkulífeyrisþegar, á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. 3. gr. : Niðurfelling á fasteignaskatti er tekjutengd og getur mest orðið kr. 60.500,- 4. gr.: Tekjumörk á árinu 2019 eru: Einstaklingar með skattskyldar tekjur allt að............ kr. 3.815.000 fá 100% afslátt. Einstaklingar með skattskyldar tekjur yfir................ kr. 5.100.000 fá 0% afslátt. Hjón með skattskyldar tekjur allt að......................... kr. 5.100.000 fá 100% afslátt. Hjón með skattskyldar tekjur yfir..............................kr. 7.000.000 fá 0% afslátt. Tekjur innan skilgreindra tekjumarka veita hlutfallslegan afslátt. 5. gr.: Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur. Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur útreiknaðum afslátti ársins. 6. gr.: Upplýsingar um tekjur vegna útreiknings er sóttur vélrænt á vef Ríkisskattstjóra www.rsk.is í gegnum álagningarkerfi Fasteignaskrár Íslands. 7. gr.: Ekki þörf á sérstökum umsóknum vegna afsláttar. 8. gr.: Athugasemdir vegna útreiknings afsláttar skulu berast skriflega til skrifstofu Blönduósbæjar eigi síðar en 1. júní 2021. Gjalddagar álagðra fasteignagjalda umfram kr. 25.000,- eru: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. sept., 1. okt. og 1. nóv. Gjalddagi álagðra fasteignagjalda undir kr. 25.000,- er 15. maí. Hægt er að óska eftir því að greiða öll gjöld á einum gjalddaga sem er 15. maí. Sækja þarf um gjalddagabreytingu á bæjarskrifstofu fyrir 15. febrúar 2021. Eindagi gjalddaga eru 30 dagar. Álagningarseðlar eru rafrænir og eru aðgengilegir á www.island.is. Greiðsluseðlar birtast í heimabanka viðskiptavina. Hægt er að óska eftir útprentuðum álagningarseðli og greiðsluseðli og skal senda beiðni um þar á netfangið blonduos@blonduos.is. Frekari upplýsingar um álagninguna er hægt að fá á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700. Eftirfarandi gjaldskrá var tekin fyrir og samþykkt á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar 15. desember 2020. Sveitarstjórinn á Blönduósi, 12. janúar 2021 Valdimar O. Hermannsson CMYK% Cyan = 100 / Magenta = 75 / Yellow = 2 / Black = 18 Cyan = 45 / Magenta = 14 / Yellow = 0 / Black = 0 GRÁSKALI Black = 40% Black = 100% PANTONE PANTONE 278 C PANTONE 287 C Logo / merki BJÖRGVIN SIGURÐSSON | GRAPHIC DESIGNER FÍT ÁSVEGI 17 | 104 REYKJAVÍK | ICELAND T: +354 588 3436 | M: +354 663 0677 | E: 2b@internet.is Bæjarskrifstofa Blönduósbæjar Hnjúkabyggð 33 540 Blönduós Sími: 455 4700 blonduos.is www.blonduos. is Frá vinstri: Ingólfur Guðmundsson, Bjarki Tryggvason, Ingimar Jóhannsson, Ásmundur Pálma- son, Frðrik Pálmason, Svala Jónsdóttir og Ásta Pálmadóttir. MYND: GUÐRÚN SIGHVATSDÓTTIR Pálmi Friðriksson. MYND AÐSEND Kaupfélag Skagfirðinga svf. lauk í desember síðastliðnum innleiðingu á jafnlaunakerfi fyrir félagið og öðlaðist í framhaldinu jafnlaunavottun frá iCert vottunarstofu skv. Jafnlaunastaðli ÍST 85. Félagið hefur lagt mikla vinnu í að koma upp metnaðarfullu jafnlaunakerfi, með því meðal annars að móta verkferla, jafnlaunastefnu og jafn- réttisáætlun. Er það gert í þeim tilgangi að innleiða verklag sem tryggir öllum starfsmönnum jöfn laun fyrir sömu og/eða jafnverðmæt störf. Ennfremur tryggir það að ákvarðnir um laun og önnur kjör byggi ávallt á málefnalegum sjónarmiðum og fyrirbyggi þannig beinan og óbeinan launamun kynjanna. Félagið hefur með þessu skuldbundið sig til að viðhalda jafnlauna- kerfinu og ástunda stöðugt um- bótastarf. Með þessari vottun er Kaup- félag Skagfirðinga að framfylgja lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og gildir hún til ársloka 2023. Umsjón með innleiðingu jafnlaunakerfisins fyrir hönd KS höfðu þær Kristjana Jónsdóttir, forstöðumaður reikningshalds, og Helga Jónína Guðmunds- dóttir, deildarstjóri starfsmanna- halds, í samvinnu við Attentus, Mannauður & Ráðgjöf. /Fréttatilk. Skagafjörður Kaupfélag Skagfirðinga hlýtur jafnlaunavottun Björgunarsveitinni Húnum í Húnaþingi vestra barst góð gjöf nú um áramótin þegar Gærurnar, sem eru hópur kvenna sem heldur úti nytjamarkaði á Hvammstanga og lætur ágóðann jafnan renna til þarfra mála í samfélaginu, færðu sveitinni þrjár samanbrjótanlegar sjúkrabörur. Verða börurnar settar í jeppa björgunarsveitarinnar, Húna 1, 2 og 3. „Björgunarsveitin Húnar færir Gærunum bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf og þann hlýhug og velvilja sem þær hafa sýnt sveitinni en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þær fært okkur góðar gjafir," segir á Facebooksíðu Björgunarsveitarinnar Húna. Sjá nánar á vefnum góða, Feykir.is. /FE Húnaþing vestra Gærurnar gefa Húnunum sjúkrabörur 4 03/2021

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.