Feykir


Feykir - 20.01.2021, Blaðsíða 7

Feykir - 20.01.2021, Blaðsíða 7
 Kvennalið Tindastóls í knatt- spyrnu tryggði sér sæti í Pepsi- Max deildinni að ári með því að leggja lið Völsungs á Húsavík að velli með öruggum fjögurra marka sigri. Góður árangur það. Október Geitaostagerð í Fljótum Í 38. tölublaði segir frá því að á Brúnastöðum í Fljótum hefði matarsmiðja verið í smíðum undanfarin misseri og væru fyrstu afurðirnar væntanlegar á markað. Þar er um að ræða skagfirska geitaosta en geiturnar sem spranga um undir fjall- garðinum á Brúnastöðum gefa af sér feita og próteinríka mjólk sem hentar vel til ostagerðar. Sameiningarnefnd sveitar- félaganna í Austur-Húnavatns- sýslu samþykkti að leggja til við sveitarstjórnir sveitarfélaganna fjögurra, Húnavatnshrepps, Blönduósbæjar, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrand- ar, að hafnar yrðu formlegar sameiningarviðræður. Í því felst að sveitarfélögin hefja formleg- ar sameiningarviðræður sem lýkur með kosningu íbúa. Sköruleg kona heiðruð 39. tölublað Feykis var að mestu helgað kvennaknattspyrnu á Sauðárkróki og afrekum Stólastúlkna sem urðu Lengju- deildarmeistarar 2020. Nokkrar almennar fréttir slæddust þó með. Samfélagsverðlaun Skaga- fjarðar voru veitt í fimmta sinn en þau eru árlega veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag. Verðlaunin að þessu sinni hlaut Helga Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri á Sauðárkróki en hún lagði drjúg- an skerf til félags- og fram- faramála í samfélaginu í marga áratugi, bæði í þágu barna á Sauðárkróki en einnig sem öflug kvenfélagskona og formaður Kvenfélags Sauðárkróks um árabil þar sem hún lagði mörgu þörfu málefni lið. Einnig var Helga formaður Félags eldri borgara og virkur meðlimur í fleiri félögum. Helga lést eftir erfið veikindi rúmum tveimur vikum eftir afhendingu verðlaunanna. Sveitarstjórn Húnaþings vestra, ásamt sveitastjórnum Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps, lýstu yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda og seinagangi við birtingu af- urðastöðvaverðs haustið 2020. Í fundargerð sveitarstjórnar Húnaþings vestra sagði að sauð- fjárrækt sé mikilvæg búgrein þessara sveitarfélaga og ein af forsendum búsetu í dreifbýli en rúmlega 21% af framleiðslu kindakjöts í landinu fór fram í þessum sveitarfélögum árið 2019. Bent var á að í heimsfaraldri vegna COVID-19 fengu Íslend- ingar áminningu um mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu og áréttað að skapa þurfi greininni stöðugleika í rekstri til lengri tíma og styðja á öflugan hátt við innlenda matvæla- framleiðslu. Eldsneytissala aflögð hjá Bjarna Har Bensínsölu var hætt hjá Verslun Haraldar Júlíussonar eftir hart- nær 87 ára bensínsölu á vegum verslunarinnar. Kaupmaðurinn síungi, Bjarni Haraldsson sem fagnaði 90 ára afmæli þann 19. mars sl., sagði tilfinninguna vera dálítið óþægilega en hann reiknaði með að hann ætti eftir að jafna sig. „Þetta er langur tími. Ég hef verið þriggja ára þegar bensíndælan kom fyrst. Þetta hefur gengið vel en nú vill heilbrigðisfulltrúi losa okkur við dæluna,“ segir Bjarni í samtali við blaðamann Feykis, ekki fullsáttur. Menntamálastofnun gaf út verkefnabók eftir Berglindi Glæsileg viðbygging er risin við Blönduskóla. MYND: BLÖNDUÓS.IS verkum eða jafnvel tíu gjafabréf í fótsnyrtingu, þannig að ég bað fólk bara að setja pening í kassa því ég vildi gera eitthvað fyrir samfélagið og niðurstaðan var góð,“ sagði Ásta sem ákvað að fjárfesta í tólf fermetra garðskúr og afhenda Skammtímadvöl. Gjöfin var svo afhent formlega í byrjun nóvember. Og fleiri gáfu gjafir. Í októberlok var tilkynnt um að Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfyrirtæki þess í matvæla- framleiðslu ætluðu að gefa fólki í erfiðleikum matvöru, sem svarar til 40.000 máltíða, fram til jóla. „Þetta er alger himnasending,“ sagði Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, í samtali við Morgunblaðið. . „...Þegar skyndilegur vandi af þessari stærðargráðu steðjar að finnst okkur það einfaldlega vera skylda okkar að leggja okkar af mörkum til þeirra sem verst standa. Okkur hefur gengið vel á undanförnum árum að skapa verðmæti úr þeim miklu auðlindum þjóðarinnar til sjávar og sveita sem okkur er treyst fyrir og við viljum með þessu framlagi sýna samstöðu með þeim vanda sem öll þjóðin, og ekki síst þeir sem mest eiga undir högg að sækja, horfist í augu við um þessar mundir,“ sagði Þórólfur Gíslason við Feyki. Líf færðist í endurbyggt húsnæði Ámundakinnar við Húnabraut 4 á Blönduósi þegar þrír aðilar tóku þar til starfa en undanfarin tvö ár hefur verið unnið að gagngerum endurbótum á húsinu og lóðinni í kring. Það voru Ungmennasamband Austur- Húnavatnssýslu (USAH) og Ungmennafélagið Hvöt, brauðgerðin Húnakaffi og Hárgreiðslustofa Bryndísar Braga sem fluttu í húsið en einnig mun ÁTVR flytja verslun sína í húsið og opna þar á næstunni, segir í fréttinni. Nýr skagfirskur geisladiskur var gefinn út en hann gerðu þeir félagar Guðmundur Ragnarsson og Róbert Óttarsson á Sauðár- króki með fulltingi Helga Sæ- mundar (Úlfs Úlfs), sem sá um hljóðfæraleik, útsetningar fjögurra af fimm lögum. Þetta er annar diskur þeirra Guðmundar og Róberts og ber hann heitið Tíminn flýgur. Öflug Textílmiðstöð og knáir knapar Í 43. tölublaði segir frá því að Textílmiðstöð Íslands og Þekkingarsetur á Blönduósi Ouse, ungur tónlistarmaður á Sauðárkróki, gerir það gott í músíkinni. AÐSEND MYND Tindastólsstúlkur fagna sigri í Lengjudeildinni og sæti í efstu deild eftir sigur á liði Völsungs á Húsavík. MYND: GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR Björnsdóttur, kennara í Blöndu- skóla. Verkefnabókin heitir Auðlesnar sögur og inniheldur hún fjölbreytt verkefni með auðlesnum sögubókum, eink- um ætluð nemendum á ungl- ingastigi. Verkefnin eru á rafrænu formi til útprentunar og hægt að velja á milli sex bóka. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hafnaði í þriðja sæti í könnun Sameykis á Fyrir- myndarstofnunum árið 2020 í flokknum Stofnun ársins með 50 starfsmenn eða fleiri og hlaut fyrir vikið sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnun. Fram kom á heimasíðu FNV að starfsfólk skólans væri „soldið pínu stolt“ eins og sagt er upp á hreinræktaða króksku. Útflutningsmet slegið Met var slegið í útflutningi þegar Hoffell, skip Samskipa, lestaði 75 gáma til útflutnings, alls 1331 tonn en aldrei fyrr höfðu svo margir gámar eða þyngd farið um borð í eitt skip frá Sauðárkróki. Daginn eftir fóru 19 gámar um borð í Selfoss, flutningaskip Eimskips, alls 277 tonn. Aðspurður sagði Dagur Þór Baldvinsson, hafnarstjóri, að ástæða umsvifanna væri margþætt, það væri sláturtíð, frystitogarar að landa, Steinull að senda framleiðslu sína er- lendis líkt og Dögun og Flokka sem væri að koma flokkuðu rusli til sinna kaupenda sem endurvinna það. Sveitarstjórn Húnavatns- hrepps hafði miklar áhyggjur af ástandi Kjalvegar og skoraði á Vegagerðina að ráðast í undirbúningsaðgerðir til að bæta ástand vegarins. Í bókun sveitarstjórnar sagði að vegur- inn væri á stórum köflum niðurgrafinn sem gerði það að verkum að vatn rynni eftir veginum og hefði haft þær afleiðingar að allt efni væri farið úr honum. Lagði sveitarstjórn jafnframt áherslu á að vegur- inn yrði settur á 1. tímabil samgönguáætlunar. Riðusmit var staðfest á fjór- um bæjum í Tröllaskagahólfi í Skagafirði en þar hafði ekki greinst riða í 20 ár. Bæirnir sem um ræðir voru Stóru-Akrar og Grænamýri í Blönduhlíð, Syðri Hofdalir í Viðvíkursveit og Hof í Hjaltadal. Nóvember Gjafir voru gefnar Ásta Ólöf Jónsdóttir á Sauðár- króki sýndi forsjálni og hélt upp á 60 ára afmæli sitt í september í hléi milli kórónuveirubylgna þó afmælisdagurinn væri ekki fyrr en 1. nóvember. Ásta þáði ekki gjafir í tilefni tímamótanna en bað fólk að leggja í púkk til að gefa til Skammtímadvalar á Sauðárkróki. „...sextugar kerlingar þurfa ekki mikið á afmælisgjöfum að halda. Mig langaði einhvern vegin ekki að fá fullt af blómavösum, mál- 03/2021 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.