Feykir - 20.01.2021, Blaðsíða 5
Það er ekki nóg með að
körfuboltinn hafi farið í
gang í síðustu viku því Pepsi
Max lið Tindastóls í fótbolta
spilaði á föstudag sinn
fyrsta leik á árinu. Leikið var
í Boganum á Akureyri gegn
b-liði Þórs/KA en þetta var
opnunarleikur Kjarnafæðis-
mótsins. Stólastúlkur gerðu
tvö mörk um miðjan fyrri
hálfleik og þrátt fyrir mý-
mög tækifæri tókst ekki að
bæta við fleiri mörkum.
Jackie Altschuld gerði
fyrsta mark leiksins með
skalla á 18. mínútu en Maður
ársins 2020 á Norðurlandi
vestra, Bryndís Rut Haralds-
dóttir, bætti við síðara marki
Tindastóls á 25. mínútu.
Samkvæmt frétt á Fót-
bolti.net reyndist Sara Mjöll
Jóhannesdóttir, markvörður
Akureyringa, Tindastóls-
stúlkum erfið og varði
ítrekað úr góðum færum.
Lið Tindastóls var mun
sterkara liðið og að mestu
skipað heimastúlkum. Bæði
Jackie og Murielle Tiernan
eru komnar á Krókinn og
tóku þátt í leiknum en Mur
fór af velli í hálfleik. Mark-
vörðurinn, Amber Michel,
markvörður, er síðan vænt-
anleg þegar líður að vori.
Ásamt liðum Tindastóls
og Þórs/KA 2 taka Þór/KA 1,
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir,
Völsungur og Hamrarnir
þátt í Kjarnafæðismótinu.
Næsti leikur Tindastóls er á
sunnudag kl. 15 í Boganum
en þá mæta stelpurnar sam-
einuðu Austfjarðaliði. /ÓAB
Kjarnafæðismótið í knattspyrnu
Tindastólssigur í fyrsta
fótboltaleik ársins
Stelpurnar á æfingu fyrir skömmu í vetrarveðri. MYND: ÓAB
Skin og skúrir eftir endurræsingu
Dominosdeildin í körfubolta | Karlalið Tindastóls
Nú er körfuboltinn kominn á
fullt að nýju eftir um 100
daga kófpásu. Lið Tindastóls
hóf leik í Vesturbænum og
átti síðan heimaleik gegn
sprækum Njarðvíkingum sl.
sunnudagskvöld. Úrslitin
bæði kættu og grættu
stuðningsmenn Stólanna.
KR – Tindastóll 101-104
Í fyrsta leik mættust erki-
fjendurnir KR og Tindastóll
og það var líkast því að
hraðspólað væri yfir pásuna
því bæði lið settu í fluggírinn
en varnarleikur var einhver
eftirþanki sem menn upp-
götvuðu í hálfleik. Þrátt fyrir að lið Tindastóls
væri yfir lengstum þá kom upp gamalkunnugt
skrölt á lokakaflanum en Stólarnir voru seigir og
náðu í stigin tvö í blálokin. Lokatölur 101-104.
„Ég er í fyrsta lagi ógeðslega ánægður með að
hafa unnið leikinn,“ sagði Baldur Þór, þjálfari
Tindastóls, í samtali við Vísi að leik loknum.
„KR-ingar voru mjög góðir í þessum leik með
það sem þeir höfðu. Mér fannst þeir hafa gert
eins vel og hægt var að gera miðað við að þeir
eru ekki með neina stóra leikmenn. Þetta var
náttúrulega stórfurðulegur leikur og ég er bara
ánægður að hafa klárað sigurinn.“ Baldur var
ekki alveg sáttur við varnarleikinn og sagðist
þurfa að skoða hann.
Glover var atkvæðamestur Stóla með 30 stig
og átta fráköst. Tomsick gerði 26 stig og tók
fimm fráköst líkt og Udras sem gerði 20 stig í
leiknum og nýtti skotin sín vel. Pétur átti líka
góðan leik, gerði 12 stig, tók sjö fráköst og átti
sjö stoðara.
Tindastóll – Njarðvík 107-108
Það var boðið upp á háspennu í Síkinu sl.
sunnudagskvöld þegar Njarðvíkingar heimsóttu
Tindastólsmenn í 3. umferð Dominos-deildar-
innar. Því miður þá héldu heimamenn áfram að
Antonio Hester var hæstánægður með nýjan liðsfélaga sinn, Loga Gunn, í liði Njarðvíkur.
MYND: HJALTI ÁRNA
vera ósannfærandi þrátt fyrir að hafa á að skipa
flottum leikmönnum sem virðast enn ekki hafa
áttað sig á að það þarf að spila varnarleik til að
vinna leiki. Framlengt var í Síkinu og svo virtist
sem Antanas Udras hefði tryggt Stólunum sigur
þegar tæpar tvær sekúndur lifðu leiks. Njarð-
víkingar eru hins vegar með Loga Gunnars í
sínu liði og þá er leikurinn ekkert búinn fyrr en
lokaflautið gellur. Hann setti þrist í andlitið á
heimamönnum um leið og leiktíminn rann út.
Lokatölur 107-108.
Stólarnir tóku fleiri skot, hirtu miklu fleiri
fráköst og áttu fleiri stoðsendingar. Þeir töpuðu
hins vegar fleiri boltum og skoruðu einu stigi
minna en gestirnir úr Njarðvík.
Varnarleikurinn var ekki til staðar og jafn-
vægið innan liðsins ekki í lagi. Var Baldur
þjálfari afar ósáttur að leik loknum. Shawn
Glover var stigahæstur með 39 stig og er öflugur
leikmaður. Það vita allir hvað Tomsick getur en
hann hitti úr níu af 26 skotum, gerði 27 stig.
Pétur og Brodnik voru aðeins með þrjú stig hvor
í leiknum sem er auðvitað ekki normal.
Næsti leikur er hér heima gegn Val annað
kvöld en síðan fylgja þrír útileikir gegn Hetti,
Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
1. deild kvenna í körfubolta | Tindastóll – Hamar/Þór 70–45
Uppörvandi sigur Stólastúlkna
Tindastólsstúlkur spiluðu
fjórða leik sinn í 1. deild kvenna
í körfubolta sl. laugardag þegar
þær tóku á móti liði Hamars/
Þórs Þ. Lið Tindastóls náði
undirtökunum strax í byrjun
þar sem mikill hraði og dugn-
aður einkenndi leik liðsins.
Grunnurinn að sigri Stóla-
stúlkna var lagður í fyrri hálfleik
en lokatölurna voru 70–45.
Eva Wium var stigahæst í
liði Tindastóls með 23 stig,
Marín Lind setti 15 stig og
Karen Lind gerði 11 stig og tók
9 fráköst. Eva Rún var með
þrefalda sjöu, skilaði 7 stigum,
7 fráköstum og 7 stoðsending-
um. Enginn Kani var í liði
Tindastóls en Dominique
Toussaint fór heim eftir leikinn
gegn Grindavík í október.
„Hún var ekki það sem okkur
vantaði að þessu sinni og við
óskum henni góðs gengis á
nýjum vettvangi,“ tjáði Árni
Eggert þjálfari Feyki. Sjá nánar
á Feykir.is. /ÓAB
Lið Tindastóls ánægt að leik loknum. MYND AF FB-SÍÐU TINDASTÓLS
Pepsi Max deildin
Þjálfarateymi Tindastóls
Guðni Þór til vinstri, Rúnar Rúnnarsson formaður knattspyrnudeildar Tindastóls í
miðjunni og Óskar Smári. MYND: ÓAB
Eins og sagt er frá á forsíðu Feykis í dag þá hefur verið gengið
frá samningum við Guðna Þór Einarsson og Óskar Smára
Haraldsson um að þjálfa kvennalið Tindastóls í sumar en
liðið leikur í Pepsi Max deildinni í fyrsta sinn.
Guðni er Króksari en Óskar frá Brautarholti. Þeir segjast
farnir að skoða leikmannamál en hyggjast byggja áfram á
kjarna heimastúlkna. Það er ljóst að styrkja þarf liðið fyrir
átök sumarsins. „Hins vegar viljum við fá réttu týpurnar af
leikmönnum og karakterarnir þurfa að vera réttir. Við erum
að horfa á gæði framyfir magn,“ sagði Óskar í samtali við
Feyki en viðtal við þá félaga birtist á Feykir.is í dag. /ÓAB
03/2021 5