Feykir - 20.01.2021, Qupperneq 8
Dagana 8.–10. janúar voru haldin
sveinspróf í húsasmíði í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki og voru
niðurstöður prófa kynntar sl.
miðvikudag. Metfjöldi nemenda
þreytti prófið eða 24 nemendur
sem allir gerðu sér lítið fyrir og
stóðust verklega prófið.
„Aldrei hafa jafn margir þreytt
sveinspróf á sama tíma í sögu skólans.
Þessi frábæri árangur er góður vitnis-
burður um þá starfsemi sem fram fer
í verknámsdeildum skólans," segir í
frétt á vef skólans.
Feykir leit við í trésmíðadeildinni
þegar nemendur unnu að undirbún-
ingi fyrir prófið og má sjá myndir
sem teknar voru þá á Feykir.is. /FE
FNV
24 nemendur
stóðust sveins-
próf í húsasmíði
Alloft verður manni hugsað til fyrri tíðar
manna og í eitt slíkt skipti varð mér að
orði:
Lengi hélt á lífsins braut
lyndisþéttur velli.
Snjallan orðstír snemma hlaut
Snorri á Húsafelli.
Og fyrst minnst er á þann hetjukarl, mætti
auka við kveðskapinn í glettustíl:
Espólín úr frakka fór,
fannst hann vera garpur stór.
Ekki gekk þó allt sem best,
illa gat hann tökin fest.
Loks með mestu herkjum hann
heldur smáan sigur vann.
Upp á hné þar hellu tók,
hafði næstum gert í brók.
Sagði þá með snúið snið
Snorri sína dóttur við:
,,Viltu halda völunni á
svo vaskmennið það fái að sjá!”
Félagi minn einn var eitt sinn hreint ekki
bjartsýnn á ástand þjóðmála og fékk þá
þessa kveðju:
Menn með opna sálarsýn
sigurbogann eygja.
Ljósið er á leið til þín,
láttu það ekki deyja!
Sumir hugsa háleitt og fá orð fyrir að vera
skýjaglópar, aðrir hugsa á lágu plani og
eru kallaðir grasasnar. Best er líklega að
vera þarna einhvers staðar mitt á milli. Eitt
sinn var ég að hugsa eitthvað um þetta
og þá kom þessi vísa sem ég tel réttast að
skýra ekki nánar:
Langt frá hæðum skýjaskyns,
skildi Sókratesar,
sparka á moldum spekingsins
spældir lúsablesar!
Eitt kvöld þegar sjónvarpið var með þátt
um íslenskt mál í umsjón Braga Valdimars
Skúlasonar kom þessi vísa:
Ryður meinum máli frá
meður hreinu lagi.
Hangir greinum heilum á
hreðjasteina Bragi.
Heyrði af manni sem sýndi náunga sínum
fádæma yfirgang og tillitsleysi, kvað þá:
Versna hlýtur verkaspá,
víða lýtin dafna.
Hver sem brýtur öðrum á
ætti í skít að kafna.
Var að hugleiða ævi einnar hetju hvers-
dagslífsins og kvað:
Holl í öllu landi og lýð,
lengi að góðu keppti.
Einhent var þó alla tíð
en engu verki sleppti.
Eftir rökum anda hreins,
efldi sálarblikið.
Ekki gleymist Guðrún Sveins,
gildi bar hún mikið.
Orti eitt sinn vegna svikullar framkomu:
Ekki skilar allt sér rétt,
eyðist staðan hreina.
Mjög eru sumra loforð létt,
lengi má það reyna.
Svaraði manni sem var að tala heldur
neikvætt um kunningja okkar beggja:
Ekki skaltu naga og níða
náungann - en á mig hlýða.
Innri benjar öllum svíða,
á þar hver við sitt að stríða.
Læt ég svo þar með staðar numið að sinni.
Ritað á Skagaströnd 6. janúar 2021.
Rúnar Kristjánsson
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson skrifar
Skorpuendar og skyndibitar!
taki þátt í stóru Evrópuverk-
efni, CENTRINNO, undir
áætluninni Horizon 2020,
ásamt Nýsköpunarmiðstöð
Íslands og Háskóla Íslands.
Verkefnið er ætlað til þriggja og
hálfs árs og hófst 1. september
sl. Verkefnið snýst um að
nota menningararfinn sem
innblástur til nýsköpunar og
blása lífi í fyrrum blómleg
borgarhverfi og landshluta og
er mikil áhersla lögð á að nýta
möguleika stafrænnar tækni,
að því er segir á heimasíðu
Textílmiðstöðvarinnar. Að verk-
efninu standa 26 stofnanir og
fyrirtæki í níu löndum.
Í verkefninu er lögð áhersla
á að nýta möguleika stafrænnar
tækni og að efla kunnáttu í að
nýta hana til framleiðslu. Stefnt
er að frekari eflingu Textíl-
miðstöðvar Íslands sem miðstöð
nýsköpunar og þekkingar í staf-
rænni textílframleiðslu sem
byggð er á menningararfi og
handverkskunnáttu íslenskra
kvenna með sérstakri áherslu á
ull og umhverfisvæna nýtingu
hennar.
Tveir hestamenn af Norður-
landi vestra, þau Þórarinn
Eymundsson í Skagfirðingi
og Helga Una Björnsdóttir í
Þyt, voru valin í fríðan hóp A
landsliðs Íslands í hestaíþrótt-
um. Í frétt Feykis segir að einnig
fái ríkjandi heimsmeistarar og
tiltilverjendur inngöngu og þar
séu þeir Jóhann R. Skúlason
frá Sauðárkróki, ríkjandi heims-
meistari í tölti, fjórgangi og
samanlögðum fjórgangsgrein-
um og Bergþór Eggertsson frá
Bjargshóli í Miðfirði, marg-
faldur heimsmeistari í skeið-
greinum. Báðir búa þeir og
starfa erlendis.
Íþróttaiðkun eldri borgara og
útrás yngri kynslóðarinnar
Í 44. tölublaði segir frá því að
eldri borgarar í Húnaþingi vestra
láti ekki fjöldatakmarkanir í
ræktinni koma í veg fyrir leik-
fimiiðkun en þeir brugðu á
það ráð að stunda sínar íþróttir
úti á svölum meðan þjálfarinn
leiðbeindi frá gangstéttinni utan
við íbúðir eldri borgara.
Þá segir frá því að ungur
tónlistarmaður á Sauðárkróki,
Ásgeir Bragi Ægisson, hefði
gert plötusamning við útgáfu-
fyrirtækið Twelve Tones í Banda-
ríkjunum.
Fjölbreytt jólablað
Jólablað Feykis var það 45. í
Frjálsíþróttasamband Íslands
valdi ísak Óla Traustason fjöl-
þrautarmann ársins fyrir árang-
ur sinn á MÍ í fjölþrautum
innanhúss.
Hátæknibúnaður
í skóla og ungt
kvikmyndagerðarfólk
Kaupfélag Skagfirðinga færði
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og grunnskólunum
á Hofsósi, Sauðárkróki og í
Varmahlíð, hátæknibúnað að
gjöf. Var þar um að ræða nýj-
ustu útgáfu af háþróuðum
þrívíddarprenturum ásamt þrí-
víddarforritum.
Fimm stúlkur í Höfðaskóla á
Skagaströnd urðu hlutskarpast-
ar í stuttmyndasamkeppni sem
haldin var á landsvísu þar sem
unnið var með ævintýraþema og
hét mynd stúlknanna Gilitrutt.
Þegar þetta síðasta tölublað
ársins fór í prentun voru tveir
aðilar á Norðurlandi vestra í
einangrun og tveir í sóttkví
vegna COVID-19. Þá stóðu
vonir sóttvarnalæknis til að
Íslendingar væru að komast út
úr þessari bylgju faraldursins
en lítið mætti þó út af bera til að
ekki kæmi afturkippur.
Kaupfélag Skagfirðinga færði skólum í Skagafirði háþróaða þrívíddarprentara.
MYND: FE
röðinni og var það stútfullt af
viðtölum, uppskriftum og ýms-
um fróðleik en hefðbundnar
fréttir rötuðu ekki á síður þess.
Desember
Aðentudagatal
kirkjunnar á Facebook
Kirkjan hélt áfram að nýta sér
samskiptamiðlana. Í Skagafirði
var útbúið sérstakt skagfirskt
jóladagatal þar sem einn gluggi
birtist á Facebooksíðu Kirkj-
unnar í Skagafirði á hverjum
degi síðustu vikurnar fyrir jólin,
einn gluggi frá hverri kirkju í
firðinum sem einmitt eru 24
talsins.
Kiwanisklúbburinn Drang-
ey, í samstarfi við VÍS, færði
nemendum yngsta stigs í
Árskóla endurskinsvesti en
vestunum átti einnig að dreifa í
alla aðra grunnskóla á Norður-
landi vestra.
Bjartsýnir bændur
í Miðfirði og
fjölþrautamaður ársins
Útihús eru í byggingu á tveim-
ur bæjum í Miðfirði, Urriðaá og
á Bergsstöðum, og eru bænd-
ur þar bjartsýnir á framtíð
sauðfjárbúskapar, þrátt fyrir lágt
afurðaverð til bænda. Sagt var
frá byggingunum í 47. tölublaði
Feykis.
Vandað til verka. MYND: FE
8 03/2021