Feykir - 20.01.2021, Blaðsíða 9
í öllum málum, sama hvað
leið konungsbréfum. Ísland
var gullnáma en aðrar þjóðir
en Danir grófu og græddu.
Kaupmannahöfn varð að komast
að Íslandsversluninni og það
gat aðeins gerst ef Hamborg
væri ýtt til hliðar. Gætu danskir
kaupmenn ekki haft í fullu tré
við þýska kaupmenn í frjálsri
samkeppni varð að beita öðrum
aðferðum. Fyrir Dani voru
siðaskiptin tækifæri til þess að
koma fram áætlunum sem þeir
höfðu lengi haft á prjónunum
– að nýta Ísland til þess að efla
Danska ríkið og kaupskap í
Kaupmannahöfn.
Þetta er aðdragandinn að því
að konungur sendi herlið á
Alþingi sumarið 1541 til þess
að láta þingheim samþykkja
siðaskipti og handtaka hinn
blinda Ögmund Pálsson
skálholtsbiskup. Að vísu
sneru Norðlendingar við
og voru ekki á Þingvöllum.
Siðbreytingin náði aðeins til
Skálholtsbiskupsdæmis. En
það var konungi nægjanlegt
í bili. Konungur var sáttur við
að Jón biskup fengi að sitja í
friði á Hólum – sem hinn síðasti
kaþólski biskup Norðurlanda.
Svo lengi sem Danir gætu komið
áætlunum sínum í framkvæmd –
að sölsa undir sig fiskverslunina
á Reykjanesi. Konungur hóf leikinn með
gera báta Hamborgarmanna á
Suðurnesjum upptæka og hefja
konungsútgerð. Og síðan árið
1548 að selja landið á leigu til
borgarráðs Kaupmannahafnar
sem hafði jafnframt stofnað
verslunarfélag. Sú ráðstöfun
leiddi til átaka á milli Dana
og Þjóðverja um aðgang að
Íslandsversluninni – og gerði
Hamborgarmenn sjálfkrafa að
bandamönnum Jóns. Hólabiskup
áleit að með Þjóðverja að baki
sér – gæti hann alveg haft í
fullu tré við Dani. Það sem
hann gerði sér ekki grein fyrir
var hve Hamborgarmenn voru
fljótir að svíkja hann – um
leið og konungur dró áætlanir
sínar til baka um að taka yfir
Íslandsverslunina veturinn
1550-1551.
En aftur að afleiðingum
siðaskiptanna. Vorið 1551
sendi konungur nokkur
herskip til Íslands með þýskum
málaliðum – enda vissi hann
ekki að Jón væri þá þegar
fallinn. Í kjölfarið var Ísland
hernumið. Konungsmenn
rændu kirkjur og tóku yfir jarðeignir klaustranna og
þeirra Hólafeðga. Þá voru
útvegsjarðir Skálholtskirkju
hirtar og brennisteinsnámurnar
í Þingeyjarsýslu teknar
eignarnámi. Marteini Einarssyni
Skálholtsbiskup ofbauð svo
þessar aðfarir að hann sagði
af sér sem biskup 1556. Í
því framhaldi var erlendum
þjóðum smám saman ýtt út úr
verslun hérlendis og loks með
verslunareinokuninni 1602 var
lokað fyrir samskipti við aðrar
þjóðir en Dani.
Frjáls verslun – frjáls samskipti
við umheiminn eru lykillinn
að velmegun Íslands. Þau
tíðindi höfðu gerst árið 1412
að Englendingar hófu beinar
siglingar til Íslands – Þjóðverjar
og Hollendingar komu síðan
ÍSLAND, grát þitt gæfuleysi,
grát það tjón og örlög hörð.
Svo hljóða upphafslínur kvæðis
Páls Jónssonar um aftöku Jóns
Arasonar biskups – þann 7.
nóvember 1550. Kvæðið var
ort í upphafi tuttugustu aldar
– þegar Hólabiskup var orðinn
sjálfstæðishetja og Íslendingar
horfðu fram á fullveldi og síðan
stofnun lýðveldis. En – ef litið er
framhjá sjálfstæðispólitík – hve
mikið er til í því að ástand lands
og þegna hafi versnað eftir fall
Jóns og síðan siðaskipti?
Sá sem hér ritar er
hagfræðingur að mennt og
líklega ekki með þekkingu til
þess að leggja dóm á sálarlíf
landsmanna og andlega velferð
þjóðarinnar almennt – hvað
þá breytingu í þessum efnum
við siðaskipti. Hann getur
hins vegar leitt getum að
breytingum í efnalegri velferð
þjóðarinnar. Þar er málið alveg
skýrt. Konungur náði tökum á
Íslandi eftir siðaskipti – bæði
sem æðsti yfirmaður íslensku
kirkjunnar og með beitingu
vopnavalds. Því valdi var beitt
til þess að sölsa undir auðlindir
landsins – jafnframt því að
einangra landið og stöðva
efnahagslega framþróun með
verslunareinokun.
Tökum aðeins stöðuna:
Kristján III kann að hafa
verið sanntrúaður maður og
viljað af heilum hug siðbæta
Íslendinga en hann hafði einnig
mjög ríka efnahagslega og
pólitíska hagsmuni af því að
ýta katólsku kirkjunni til hliðar
hérlendis líkt og í Danmörku
og Noregi. Danir höfðu aldrei
haft nema veika stjórn á
landinu. Landsmenn voru
vopnaðir, herskáir ef svo bar
undir, og höfðu löngum komist
upp með að drepa danska
umboðsmenn. Herleiðangrar
til Íslands voru dýrir og
hættulegir og danski flotinn
þunnskipaður. Umboðsmenn
konungs höfðu stopula vist
hérlendis og þorðu sig lítið
að hræra frá Bessastöðum.
Annar veikleiki Dana fólst
í því að hér lágu stærri og
sterkari þjóðir, Englendingar,
Hollendingar og Þjóðverjar,
með skip sín kringum landið.
Danskir kaupmenn stóðust
þeim einfaldlega ekki snúning.
Loks hafði íslenska kirkjan, í
bandalagi við þá norsku, lengi
verið ofjarl konungsvaldsins
hérlendis þar sem biskuparnir
virtust ávallt hafa síðasta orðið
ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is
Ásgeir Jónsson brottfluttur Skagfirðingur
Um hnignun Íslands eftir siðaskipti
Ásgeir Jónsson. MYND AÐSEND
í kjölfarið. Fiskverð hækkaði
verulega – þjóðin var eiginlega
rík á einni nóttu og efnaleg
velmegun birtist alls staðar
í heimildum. Mögulega var
ábatanum misskipt. Mögulega
urðu ákveðnar höfðingjaættir
ofsaríkar. Ljóst er þó að þegar
dró að lokum fimmtándu
aldar var kirkjan búin að ná
undir sig töluverðum hluta
af þessum gróða. Mögulega
kunna kirkjunnar þjónar að
hafa stungið hluta af þessum
ábata undan eða notað til þess
að útbúa herflokka. Staðreyndin
er samt sú að kaþólska
kirkjan var með gríðarlega
öflugt endurdreifingar – og
samhjálparkerfi þar sem
þessum ábata var deilt
út. Fornleifarannsóknir á
Skriðuklaustri sýna skýrt fram
á þetta – en það klaustur virðist
fyrst og fremst hafa verið spítali.
Þessari endurdreifingu eða
velferðaraðstoð var að miklu
leyti hætt eftir siðaskipti enda
tapaði kirkjan jarðaeignum
klaustranna. Það sem mestu
skiptir er þó að sjávarútvegur
hætti að mala gull fyrir
landsmenn – eftir tilkomu
verslunareinokunar. Konungur
ákvað nú einhliða á hvaða
verði fiskur skyldi keyptur
af landinu. Þótt lágt fiskverð
hafi að einhverju leyti verið
bætt upp með háu verði á
landbúnaðarvörum breytir
það engu um þá staðreynd
að í tæp tvö hundruð ár,
meðan einokunin varði, þurftu
landsmenn að selja Dönum
fisk á verði sem var aðeins
10-20% af heimsmarkaðsverði.
Þetta leiddi til þess að útgerð
hérlendis fór sífellt aftur – allt
fram til loka átjándu aldar
hérlendis og þjóðarhagur fór
sömu leið. Staðreyndin er sú að í kjölfar
siðaskiptanna fór fram gífurleg
eignaupptaka og frelsissvipting
sem, þegar fram í sótti, gerði
Ísland að einni fátækustu þjóð
Evrópu. Það versta er þó að
konungur einangraði landið þar
sem Íslendingum var bannað
að eiga samskipti við aðrar
þjóðir. Fram að siðaskiptum
höfðu Íslendingar farið til náms
í Þýskalandi, Hollandi, Englandi
og víðar en nú komu fáir aðrir
staðir en Kaupmannahöfn til
greina. Einokunin þjónaði vel
því markmiði Dana að afla
tekna af landinu og efla um leið
verslun í Kaupmannahöfn – en
það fól í sér gríðarlegan kostnað
fyrir Íslendinga.
Það var ekki fyrr en eftir
Móðuharðindin eða 1787 sem
konungur sá að sér og afnam
verslunareinokunina að hluta
þar sem öðrum þjóðum en
Dönum var bannað að stunda
verslun hérlendis. Það kom í
hlut Jóns Sigurðssonar forseta
að berjast fyrir fullri fríverslun –
sem fékkst loksins árið 1854.
Þeirri spurningu má alveg
velta upp hvort Jón Arason hafi
raunverulega haft afl til þess
að standa á móti framgangi
þessarar áætlunar Dana að
taka yfir auðlindir landsins
– en það er samt alveg skýrt
að siðaskiptin voru ákaflega
slæm efnahagsleg tíðindi fyrir
Íslendinga.
- Ásgeir skorar á Björn Z.
Ásgrímsson að taka
við pennanum.
Slökkvilið Skagastrandar og Björgunarsveitin Strönd festu á
haustdögum kaup á nýjum bifreiðum og hafa þær verið
teknar í notkun. Nýi slökkvibíllinn var keyptur frá Feuerwehr-
technik Berlin og er af
gerðinni MAN TGM,
árgerð 2020. Bíllinn
er hinn glæsilegasti,
með 3000 lítra
vatnstanki og 300
lítra froðutanki ásamt
því að vera búinn
öllum helsta búnaði
sem nauðsynlegur er
til slökkvistarfa.
Á vef Sveitarfélagsins Skagastrandar kemur fram að nýja
bifreiðin leysir af hólmi gamlan slökkvibíl af gerðinni Mercedez
Benz, árgerð 1977, svo um mikilvæga endurnýjun er að ræða.
Slökkvilið Skagastrandar er rekið af Sveitarfélaginu Skagaströnd
og Skagabyggð sem tók þátt í kaupunum.
Björgunarsveitin Strönd fjárfesti í bifreið með styrk frá
Sveitarfélaginu Skagaströnd. Er hún af gerðinni Land Cruiser
2007 árgerð sem hefur verið breytt fyrir 44" dekk. Bíllinn er búinn
öllum nauðsynlegum búnaði sem þarf til leitar og björgunar. /FE
Slökkvilið Skagastrandar og Björgunarsveitin Strönd
Nýir bílar teknir í gagnið
Nýju bifreiðarnar. MYND: SKAGASTRÖND.IS
03/2021 9