Feykir - 20.01.2021, Side 10
Sigurjón Gestsson var kjörinn
heiðursfélagi Golfklúbbs
Skagafjarðar á aðalfundi félagsins
30. nóvember 2020, á 50 ára
afmæli GSS. Á heiðursskjali sem
honum var afhent stendur:
„Golfklúbbur Skagafjarðar
samþykkti á aðalfundi 2020 að gera
þig, Sigurjón Gestsson, að
heiðursfélaga sínum. Með
virðingarvotti þakkar Golfklúbbur
Skagafjarðar þér fyrir áratuga
sjálfboðavinnu í þágu klúbbsins.
Við þökkum þér fyrir að bæta og
fegra Hlíðarendavöll með
gróðursetningu og umhirðu
gróðursins. Trjágróðurinn er
mikilvægur hluti af vellinum, skýlir
okkur fyrir vindi og skapar fallegt
umhverfi til golfiðkunar og
annarrar útivistar.“
Sigurjón er fæddur í Reykjavík árið
1944. Hann er giftur Svanborgu Guð-
jónsdóttur og eiga þau tvö uppkomin
börn sem búsett eru á Sauðárkróki.
Foreldrar Sigurjóns fæddust í Reykjavík
og hann á tvær systur. Áhugamál
Sigurjóns á yngri árum voru allt milli
himins og og jarðar svo sem útivera,
landbúnaðarstörf og hestamennska.
Formaður GSS brá sér í hlutverk
blaðamanns og spurði Sigurjón nokk-
urra spurninga, fyrst um það hvenær
hann byrjaði að spila golf. „Árið 1986
hætti ég sem sláturhússtjóri hjá KS eftir
12 ára starf. Þá hætti ég einnig í
hestamennsku sem ég hafði stundað
óslitið í tæplega 25 ár. Strákurinn minn
var þá byrjaður í golfi og við hjónin
ákváðum að prófa og erum enn að.“
Hversu oft spilar þú núna?
„Við reynum að fara eins oft og við
getum í golf og förum aldrei neitt án
þess að settin séu með í för. Sem betur
fer eigum við samt fleiri áhugamál og
við sinnum skógrækt, veiði og fleiru.
Við eigum líka draumareit í Hegra-
nesinu, þar sem við unum okkur vel.
Þannig að þó að við vildum fara daglega
í golf þá er það nú kannski ekki alveg
þannig. Við förum líklega 3-4 sinnum í
viku á völlinn“ segir Sigurjón.
Eru einhverjar sérstaklega eftir-
minnilegar stundir við golfiðkun?
„Við hjónin höfum ferðast mikið með
golfsettin. Við förum reglulega erlendis
ásamt vinum og ættingjum til þess eins
að leika okkur í golfi. Á Florida í einni
slíkri ferð lenti ég í því að yfirslá flöt á
par 3 holu. Boltinn fór yfir runna og
rúllaði niður að vatni þar dálítið fyrir
aftan. Þegar ég hafði klofast yfir runn-
ann sé ég boltann. Mér sýndist hann
liggja upp við dökkleitan trjá-drumb.
Ég gekk ákveðinn að boltanum en
þegar ég var kominn mjög nærri reisti
drumburinn sig upp, opnaði skoltinn
og hvæsti á mig. Þetta var þá u.þ.b.
þriggja metra langur aligator!“
Hvernig kom það til að þú fórst að
gróðursetja á Hlíðarendavelli og
segðu aðeins frá því starfi.
„Ég hef alltaf haft áhuga á skógrækt.
Þegar ég byrjaði í golfi þá fannst mér
völlurinn vera ansi berangurslegur,
enda ekki svo gamall og víða var lítill
gróður. Ég sá í hendi mér að það væri
auðvelt að gera völlinn fallegri og auka
skjólið með auknum gróðri. Ég byrjaði
á því að sækja mér stikklingaefnin
niður á hauga og fyrstu skjólbeltin eru
gerð úr þeim. Síðan bætti ég fleiri
tegundum við, birki, lerki, furu, elri og
öspum. Ég safnaði birkifræi og sáði
víða um völlinn. Svo fengum við leyfi
frá garðyrkjufræðing bæjarins til að
sækja trjáplöntur í skógarhlíðina því
þar hafði verið plantað mjög þétt. Naut
ég aðstoðar vallarstarfsmanna, sér í lagi
þeirra yngstu sem komu úr unglinga-
vinnunni hvert sumar. Ég get með engu
móti giskað á hve margar plöntur eru á
vellinum. Nú er farið að bera á sjálf-
sáningu plantna, einkum birki og
stafafuru. Þegar Muggur tók við sem
vallarstjóri varð ég strax var við áhuga
hans á að auka enn frekar við trjárækt á
vellinum. Hann hefur unnið vel að
þessu með mér. Einnig má geta þess að
Rúnar Vífilsson sýndi þessu mikinn
áhuga og kom hann til miklu magni af
öspum sem við Muggur, ásamt Rúnari,
höfum gróðursett.“
Að lokum, hvernig sérð þú framtíð
vallarins fyrir þér?
„Ég vonast til að brautum verði fjölgað
eftir því sem klúbburinn ræður við.
Einnig vonast ég til þess að sú alúð og
sá metnaður sem lagður hefur verið í
hirðingu vallarins, verði áfram aðals-
merki Hlíðarendavallar“ segir Sigurjón
að lokum.
Þess má geta að Sigurjón er enn að uppi
á Hlíðarendavelli og rakst formaður-
inn nokkrum sinnum á hann og félaga í
haust við grisjun.
Sigurjón Gestsson, heiðursfélagi GSS.
AÐSEND MYND
„Förum aldrei neitt
án þess að settin séu með í för“
Sigurjón Gestsson heiðursfélagi Golfklúbbs Skagafjarðar
VIÐTAL
Kristján Bjarni Halldórsson
Braut 1 á Hlíðarendavelli ofan Sauðárkróks. MYND AÐSEND
10 03/2021