Feykir - 08.09.2021, Page 7
Gestir voru fróðleiksfúsir og
vonandi einhvers vísari á eftir.
Gaman var að sjá sýrlensku
íbúana kynna sér arfleifðina og
takast á við bolina með áhuga
og krafti.
Takk fyrir komuna og sam-
veruna.
Á Byggðasafninu á Reykjum
var sjónum beint að rekavið,
vinnslu, nýtingu og mikilvægi
í búsetusögu landsins. Nem-
endur skólabúðanna fengu
fræðslu þar að lútandi
innifalda í safnakennslu
vikunnar en síðan var sérstök
dagskrá fimmtudaginn 2.
september undir yfirskriftinni
„Rekaviður, bátar og búsgögn“.
Starfsmenn safnsins fóru þar
yfir tilurð rekaviðar, björgun
og vinnslu, og gestir fengu
að spreyta sig. Stórtré var
Myndir frá Evrópskum menningarminjadögum á Reykjum. MYNDIR: GR
Eyjólfur Ármannsson
Oddviti í Norðvesturkjördæmi
Hleypum lífi í
sjávarbyggðirnar!
Leyfum frjálsar handfæraveiðar.
Þær setja fiskastofna aldrei í hættu.
Stórátak í samgöngum.
Bættar samgöngur efla
atvinnulíf og auka hagvöxt.
Útrýmum fátækt.
Afnemum tekjuskerðingar
á elli- og örorkulífeyri.
Krefjumst réttlætis
fyrir alla í ríku landi.
velt með skrúftogi, raftur var
rifinn í girðingarstaura og
lesið í boli. Sértaklega var rætt
um heiti á einstökum stærðum
á rekavið, lengdarmælingum
og sverleika.
Inni var hákarlaskipið
Ófeigur sem smíðaður var úr
rekaviði 1875 norður í Ófeigs-
firði á Ströndum skoðaður,
sem og aðrir minni hlutir og
munir, en Strandamenn og
Húnvetningar voru þekktir
báta- og búsgagnasmiðir, með
efniviðinn innan seilingar.
Mjög mikilvægt er að draga
fram það gríðarmikla erfiði,
tíma og um leið kunnáttuna
sem liggur að baki hverjum
grip frá því að rekaviðarbolur
valt um í fjöru og þar til hann
var orðinn að báti, ausu eða
aski, unnið með frumstæðum
handverkfærum við misjafnar
aðstæður.
Menningarminjadagar á Byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði
Rekaviður, bátar og búsgögn
Fyrstu viku september hafa staðið yfir Evrópskir menn-
ingarminjadagar þar sem markmiðið er að miðla fjöl-
breyttum menningararfi þjóða til sem flestra einstaklinga og hópa
með það fyrir augum að efla vitund og vitneskju um hvað einkennir
bæði áþreifanlega og óáþreifanlega menningu landa.
TEXTI & MYNDIR
Gunnar Rögnvaldsson
34/2021 7