Feykir - 13.10.2021, Blaðsíða 10
Hvernig nemandi varstu? Bara
svona þokkalegur held ég. Var
sjaldan til mikilla vandræða og
nokkuð klók, lærði t.d. snemma
að lesa í kennarana og segja
bara það sem þeir vildu heyra,
þá gekk allt eins og í sögu.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Sennilega
veisluföngin og gjafirnar enda
bæði sælkeri og nautnaseggur.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Tannlæknir, sem
er eiginlega hálf fáránlegt í
ljósi þess að það er fátt sem ég
á jafn erfitt með og að fara til
tannlæknis.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Við systkinin vorum mikið að
vinna með Playmoið svona á
milli þess sem við djöfluðumst
í útileiktækjum; heimatilbúnu
vegasalti og rólum.
Besti ilmurinn? Angan af gróðri
eftir rigningu.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Ætli það
hafi ekki verið Sálin og Bubbi.
Hvernig slakarðu á? Er frekar
léleg í því, sennilega helst í
pottinum. Alla vega ekki við
prjónaskap!
Hverju missirðu helst ekki
af í sjónvarpinu? Norrænum
þáttaröðum. Annars horfi ég
lítið á sjónvarp í dag en var um
tíma vandræðalega upptekin
á föstudagskvöldum, þurfti að
taka Útsvar.
Besta bíómyndin? Er algjör
sökker fyrir gömlum íslenskum
kvikmyndum en annars er
Gladiator alltaf pínu uppáhalds,
ekki margar myndir sem fá mig
til að grenja og það oftar en einu
sinni.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Körfuknatt-
leiksmanninum M. Jordan.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Sara Ólafsdóttir.
ÁRGANGUR: 1988.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Einhleyp og barnlaus.
BÚSETA: Hvammstangi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Óla Stebba og
Huldu Einars á Reykjum. Er alin upp þar á bæ í hressilegu hrútfirsku
sveitalofti.
STARF / NÁM: Starfandi grunnskólakennari við Grunnskóla Húna-
þings vestra.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Að sigla inn í nýtt skólaár, hefðbundin
hreyfing og hauststörf með tilheyrandi gleði. [Rabbinu skilaði Sara
um miðjan september]
Sara Ólafs
ast til að umgangast mann.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Reyni nú helst að
velta mér ekki of mikið upp úr
öðru fólki og því sem ég get ekki
breytt en hömlulaus frekja og
yfirgangur geta verið þreytandi.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Flæktu ekki líf þitt að
óþörfu.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Ein af mínum elstu
minningum er þegar ég vaknaði
um miðja nótt í stofunni heima
eftir að hafa grenjað mig, ömmu
og afa í svefn. Ástæðan var sú
að ég fékk ekki að fara með
foreldrum mínum á þorrablót.
Þarna hef ég verið u.þ.b. 4 ára.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft
að dúsa þar einn dag. Hver
værirðu til í að vera og hvað
myndirðu gera? Gæti eiginlega
ekki hugsað mér að vera fræg
persóna, hálf vorkenni þeim og
myndi aldrei höndla athyglina.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Íslenskar
skáldsögur, enginn einn
höfundur eða bók.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? ,,Flott mál!"
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöldverð?
Til dæmis æskuvinkonum mín-
um þremur, Guðrúnu Eik, Erlu og
Gróu – kominn tími á það.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Mig
hefur alltaf langað að hitta Einar
afa minn. Myndi því fara aftur til
þeirra ára þegar hann var upp á
sitt besta.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Þar hafiði það... og hana
nú!
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... Alltaf í sól og sumaryl,
best geymd þar.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en
þú gefur upp öndina: Fleiri
samverustundir með fjölskyldu
og vinum, ferðast meira um
heiminn og skoða landið okkar
betur, helst á hlaupum, hjóli eða
hestum.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Er ferlega léleg í
eldhúsinu, sannkallaður viðvan-
ingur þar. Það er kannski einna
helst að ég geti hnoðað í sæm-
ilegt sætabrauð.
Hættulegasta helgarnammið?
Gott súkkulaði og rauðvín.
Hvernig er eggið best? Hrært.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Á það til að of-
hugsa hlutina. Svo get ég verið
andskoti þrá en það bitnar
kannski mest á þeim sem neyð-
Sveitarstjórn Húna-
vatnshrepps hefur skipað
þrjá fulltrúa í samstarfs-
nefnd sem kanna skal
möguleika á sameiningu
sveitarfélaganna í
samræmi við 119. grein
sveitarstjórnarlaga.
Í fundargerð sveitar-
stjórnarinnar, frá 27.
september, segir að stefnt
skuli að því að samstarfs-
nefndin skili áliti sínu til
sveitarstjórna í nóvember
næstkomandi með það
fyrir augum að kynning
tillögunnar hefjist í des-
ember og að kjördagur
verði í janúar 2022.
Samstarfsnefndinni er
ennfremur falið að setja
verkefninu nánari verk-
áætlun og tímaramma
„Tillaga þessi var lögð
fram í kjölfar niðurstöðu
skoðanakönnunar sem
lögð var fyrir íbúa Húna-
vatnshrepps þar sem um
65% íbúa lýstu sig fylgj-
andi sameiningarvið-
ræðum við Blönduósbæ,“
segir í fundargerðinni og
voru Jón Gíslason, odd-
viti, Ragnhildur Haralds-
dóttir og Þóra Sverris-
dóttir skipuð til setu sem
aðalmenn fyrir hönd
Húnavatnshrepps. /PF
Húnavatnshreppur
Þrennt
skipað í
samstarfs-
nefnd
Veðurstofan gerir ráð fyrir
sæmilegasta haustveðri
fram að helgi, sunnanátt
og hita yfir frostmarki og
raunar allt að sjö stiga hita
á föstudag.
Það er spáð björtu á
fimmtudag en síðan
þykknar upp, skúraveður á
föstudag en um helgina fer
veður kólnandi, þá snýst
fyrst í norðanátt en á
sunnudag verður ákveðin
austanátt með rigningu eða
slyddu. Framan af næstu
viku má reikna með hita
um frostmark. /ÓAB
Veturinn nálgast
Ágætt veður
fram að helgi
10 39/2021