Feykir - 13.10.2021, Blaðsíða 4
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Það er ekki á hverjum degi
sem von er á hasargrínmynd
með sprungulausum Króksara
í aðalhlutverki í bíó. Hljómar
kannski eins og eitthvert bull
en er engu að síður staðreynd
því Króksbíó, líkt og fjölmörg
kvikmyndahús um allan heim,
tekur senn til sýningar
kvikmyndina Leynilögga (Cop
Secret) sem skartar Auðunni
okkar Blöndal í aðalhlutverki.
Myndin, sem er leikstýrt af
Messi-víta-bananum Hannesi
Þór Halldórssyni, er einnig
byggð á hugmynd Audda.
Auk Auðuns, sem leikur löggu-
harðjaxlinn Bússa, eru tveir
aðrir Skagfirðingar í aðalhlut-
verkum í Leynilöggu; Egill
Dýllari Einarsson og Vivian
Ólafsdóttir. Meðal annarra
leikenda eru Steinunn Ólína,
Sveppi, Björn Hlynur, Rúrik
Gísla og Jón Gnarr. Myndin
verður frumsýnd 20. október
næstkomandi en hefur þegar
verið sýnd á kvikmyndahátíð-
um í Locarno og London þrátt
fyrir að hún hafi í raun verið
framleidd fyrir íslenskan
markað og með íslenska
áhorfendur í huga. Það má
kannski segja að flestum að
óvörum hefur myndin fengið
glimrandi dóma, er þegar þetta
er ritað með ríflega átta í eink-
unn á IMDB.com, og er sögð
koma með ferskan blæ inn í
l ö g g u f é l a g a - b í ó s t o f n i n n .
Myndin er í stuttu máli sögð
vera um löggu sem er í afneitun
varðandi kynhneigð sína en
verður ástfanginn af nýjum
félaga sínum á meðan þeir
rannsaka röð bankarána.
Í tilefni af því að myndin verður
tekin til sýninga í Bifröst á
Sauðárkróki hafði Feykir sam-
band við Auðun Blöndal og
byrjaði á að spyrja hvort nú
væri gamall draumur að rætast
eða hvort ímyndunaraflið hefði
hreinlega ekki náð svona langt.
„Þetta er risa draumur að ræt-
ast,“ svarar Auddi að bragði.
„Og sennilega verið draumur
síðan ég steig á svið í fyrsta
sinn, einmitt í Bifröst í 7. bekk,
og mæmaði við lagið I Will
Always Love You með Whitney
Houston.“
Hvaða bíómynd er sú eftir-
Kvikmyndastjarnan Auðunn Blöndal svarar nokkrum laufléttum Feykisspurningum
„Það er víst byrjað að ræða framhald...“
Eitt af plaggötunum fyrir Leynilöggu.
MYNDIR AÐSENDAR
Auðunn og Egill Einarsson fara með tvö af aðalhlutverkum myndarinnar.
VIÐTAL
Óli Arnar Brynjarsson
minnilegasta sem þú sást í
Bifröst eða fórstu kannski
aldrei í bíó á Króknum? „Jú, fór
reglulega í bíó í Bifröst og White
Men Can't Jump og Under
Siege 2 með Seagal-klúbbnum
standa upp úr!“
Hvernig myndir þú lýsa bíó-
myndinni Leynilögga og er
farið að plotta framhald?
„Mundi lýsa henni sem grín/
hasarmynd af bestu gerð. Grín-
ið er soldið að við séum að leika
það með straight face að þetta
sé allt að gerast á Íslandi. Og já,
það er víst byrjað að ræða
framhald...“
Hvað hefur verið skemmtilegast
í þessu ferli og hvað hefur
komið þér mest á óvart? „Þetta
hefur allt verið svo súrrealískt
og skemmtilegt eitthvað. En ég
viðurkenni að það að fá að fara
til Locarno og London á risa
kvikmyndahátíðir getur ekki
annað en staðið upp úr. Að fara
í uppselda sali erlendis og horfa
á fólk standa upp og klappa eftir
sýningu er eitthvað sem mig
hefði ekki getað dreymt einu
sinni!“
Nú eru nokkrir Skagfirðingar í
framlínunni í myndinni, var
ekkert pláss fyrir Skagfirðing-
inn Pétur Jóhann? „Það er alltaf
pláss fyrir Skagfirðinga þar sem
ég er! Við þurfum að eiga ein-
hverja ása í mynd tvö!“
Hvort á fólk að velja Bússa eða
Bond þegar fara á í bíó og er
þetta eins og að upplifa
súrrealískan draum eða er
þetta bara eins og hver annar
dagur í lífi Audda Blö? „Haha,
Bússa allan daginn! Eins svalur
og Daniel Craig er þá hefur
hann aldrei hlaupið nakinn upp
Grænuklauf og farið beint í
djúpsteikta pulsu á Bláfelli eftir
það. Og nei, þetta er ansi langt
frá því að skipta um bleyjur og
láta æla á sig eins og venjulegir
dagar hjá Audda Blö eru í dag.“
Að lokum: Hvernig líst þér á lið
Tindastóls í körfunni? „Þetta er
okkar ár! Finn það. Skulda víst
Arnari flöskuborð fyrir að koma
aftur heim á Krókinn. Hann má
rukka það þegar við erum
orðnir Íslandsmeistarar!“
Leikstjóri Leynilöggu er sem
fyrr segir Hannes Þór Halldórs-
son en hann er einnig handrits-
höfundur ásamt Nínu Petersen
og Sverri Þór Sverrissyni
(Sveppa) en sagan sjálf er eftir
Auðun Blöndal, Egil Einarsson
og Hannes Þór. Það er Pegasus
sem framleiðir myndina.
Það er langt frá því sjálfgefið að
koma myndum á stórar kvik-
myndahátíðir og hátíðirnar í
Locarno og London eru báðar
virtar hátíðir. Í viðtali við Vísi.is
segir Lilja Ósk Snorradóttir,
framleiðandi hjá Pegasus: „Að
frumsýna myndina á virtri hátíð
eins og Locarno er sérstakur
heiður fyrir okkur öll sem
komum að myndinni. Þar sem
lítið hefur verið um kvik-
myndahátíðir vegna Covid er
óvanalega mikill fjöldi mynda
sem reynir að komast að á
hátíðum og því er það mikil
viðurkenning að vera valin.“
Það verður spennandi að fylgj-
ast með framgangi Leynilöggu á
erlendum og innlendum vett-
vangi á næstunni.
Auðunn situr fyrir svörum á kvikmyndahátíð í Locarno.
4 39/2021