Feykir - 13.10.2021, Blaðsíða 9
Takk Ármann! Takk
fyrir áskorunina.
Þetta verður geymt
en ekki gleymt.
Nú þegar styttist í
komu erfingjans á
Neðri-Torfustöðum
þá fannst mér
tilvalið að ræða við
verðandi foreldrana
um upptöku
eftirnafnsins
Ármann, það var
hlustað en ég
veit ekki hvort
samtalið hafi skilað
ætluðum árangri
og hugmyndin sé
gleymd.
Eitthvað þarf nú að
rita hér og ætla ég að
hlífa ykkur við því að
taka fyrir titringinn á
Vatnsnesi. Hins vegar
finnst mér við hæfi
að minnast á það að
Kormákur er með
lið í yngri flokkum
í körfuknattleik
aftur eftir sex ára
hlé, þegar stelpur
og strákar í 8. bekk
léku sína fyrstu
leiki á Íslandsmóti í
september. Það er
fagnaðarefni og er
ég þakklátur fyrir að
fá að taka þátt í því
verkefni sem þjálfari.
Fyrsta mótið hjá
strákunum var á
Vestfjörðum, nánar
tiltekið á Þingeyri.
Ég rúllaði um
Vestfirðina hljóðljóst
á rafmagnsbíl
og var mættur í
höfuðborgina á
sunnudeginum að
fylgja stelpunum
eftir. Ferðalagið fór
eitthvað yfir 1000
km en gekk engu að
síður snurðulaust
fyrir sig. Það hjálpaði
til að hleðslustöðvar
voru á stöðunum
sem ég kom við á
og það vildi svo
skemmtilega til að ein
var við íþróttahúsið
á Þingeyri, sem
ég gat nýtt mér án
endurgjalds. Ég velti
fyrir mér af hverju við
hér á Hvammstanga
erum ekki komin inn
í framtíðina í þessum
málum?
Framtíðin kom
nefnilega fyrir
tveimur til þremur
árum síðan og er
ekkert að fara.
- - - - - -
Næsti áskorandi
er hinn gáskafulli
Patrekur Óli
Gústafsson.
Himnasending sem
okkur barst hingað
í Húnaþing vestra.
Það verður gaman að
fylgjast með honum í
framtíðinni en honum
eru allir vegir færir!
Ég er spenntur að sjá
hvað hann hefur að
segja.
ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is
Þorgrímur Guðni Björnsson Hvammstanga
Framtíðin er komin
Þorgrímur Guðni. MYND AÐSEND
Landnáma minnist á bæinn:
„Þórir (Ingimundarson)
hafði goðorð ok bjó at
Undurnfelli“ (132).
Vatnsdæla (66) veit betur:
„Þórir hafrsþjó bjó at
Nautabúi; þat heitir nú at
Undunfelli.“ Þar hefir því
verið nautabú Ingimundar
goða. Forliður nafnsins
brenglast svo á ýmsa vegu, en
bendir þó furðumikið á
upprunanafnið: Árin 1344:
Undon- (DI. IV. B.). 1360:
Undan- (DI. III. B.). 1394:
Unden- og Undin- (DI. III.
B.). Á 16. öld mun fyrst fara
að votta fyrir Undir- en fyrri
ekki (sbr. DI. II. 477, 489
[l429] o. v.). Undorn (eða
undurn) var eyktamarksheiti
í fornmáli.
Í þessu bæjarnafni merkir það
vafalaust tímann, um 3-leytið
e. hád., því að sjálfsögðu hefir
fellið heitið nafninu upphaf-
lega, en af því, að bærinn stóð
undir fellinu, færðist nafnið á
bæinn fljótlega, en Nautabú
hvarf úr sögunni. Eins og
mönnum er vitanlegt, stendur
Undornfell að vestanverðu í
dalnum, og á hálsinum syðst,
sjeð frá bænum, er hátt fell í
rjettri stefnu við sól um kl. 3
e. hád. Hlýtur það að vera
Undornfell hið forna, því ekki
hefði bærinn verið kendur við
fjöllin að austanverðu.
6. erindi í Völuspá:
„Morgin hjetu
ok miðjan dag
undorn ok aptan“
getur frekar bent á þennan
tíma, en dagmálaleytið (kl. 9),
því eyktanöfnin eru talin í röð:
morgunn, miður dagur (há-
degi), undorn kl. 3, aptan og
miðaptan. Orðið undurn er
þekt í Naumudal og Þelamörk
í Noregi og þýðir (einmitt)
Undornfell í Vatnsdal
TORSKILIN BÆJARNÖFN | palli@feykir.is
RANNSÓKNIR OG LEIÐRÉTTINGAR MARGEIRS JÓNSSONAR
Undirfell er eyðibýli, kirkjustaður og áður prestssetur í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu og stendur undir samnefndu felli. Á heimasíðu
Héraðsskjalasafns Austur Húnavatnssýslu segir að Ingimundur gamli á Hofi í Vatnsdal hafi haft nautabú sitt þar sem Undornfell er nú.
Þar kemur einnig fram að þegar jörðin Undirfell var auglýst til sölu í blöðum 1984 var tekið fram í auglýsingunni að öllum tilboðum
frá sjálfstæðismönnum yrði hafnað, svo og framsóknarmönnum sem kosið hefðu þann flokk eftir 1978.
MYND: HÉRAÐSSKJALASAFN AUSTUR HÚNAVATNSSÝSLU/BJÖRN BERGMANN.
miðdegisverð (um kl. 3) og
sænskan undarn merkir mið-
degis- (milli-) máltíð. Hefir því
þessi merking orðsins geymst
þarna furðu lítið breytt. (Í
forn-þýzku merkja orðin und-
arn og undern einnig miðdegi
([kl. 3]). Hvort rjett er að
engilsax. undern og gotn. und-
aurni-mats hafi táknað dag-
mál, læt jeg ósagt (sbr. A. Torp
Etym.l. Ordb., bls. 837), en
afstaða hins umrædda bæjar
við fellið virðist ákveða rjetta
merkingu orðsins undorn hjer
á landi. Mætti ekki láta svo
merkilegt nafn niður falla.
Laus eru til umsóknar embætti
byggingafulltrúa og embætti
skipulagsfulltrúa á nýrri skrifstofu í
Húnavatnssýslum auk annarra starfa á
skrifstofunum tveimur en á heimasíðu
Blönduósbæjar kemur fram að
starfsstöðvarnar verði á Hvammstanga
og Blönduósi.
Það eru sveitarfélögin Húnaþing vestra,
Húnavatnshreppur, Blönduósbær og Skaga-
byggð sem auglýsa eftir áhugasömum
einstaklingum í stöðurnar en fulltrúarnir
munu þjóna öllu svæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð byggingar-
fulltrúa er að sjá um skipulags- og
byggingarmál sveitarfélaganna, gerð áætl-
ana og eftirfylgni, mælingar og úttektir,
undirbúa fundi skipulags- og umhverfisráðs
sveitarfélaganna og fylgja eftir niðurstöðum
þeirra.
Meðal þess sem skipulagsfulltrúi þarf
að annast er yfirumsjón með skipulagsmál-
um sveitarfélaganna, rekstur skipulagsmála
ásamt upplýsingagjöf og ráðgjöf við m.a.
íbúa, kjörna fulltrúa, hönnuði og verktaka
um skipulagsmál. Umsóknarfrestur er til og
með 25. október nk. /PF
Ný skrifstofa skipulags-
og byggingamála í
Húnavatnssýslum
Auglýst eftir
fulltrúum
39/2021 9