Feykir


Feykir - 13.10.2021, Blaðsíða 11

Feykir - 13.10.2021, Blaðsíða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: :Andvari. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Á að skella sér á einhverja góða tónleika í Háa salnum í Gránu? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Já, planið er að skella sér á allavega eina ef ekki tvenna.“ Sigrún Ólafsdóttir Tilvitnun vikunnar Disneyland. Stærsta mannagildra í heimi, byggð af mús. – Bill Murray „Já, það er eiginlega ekki nokkur einasta spurning að það verður gert.“ Steindór Árnason „Já, ég er að hugsa um að fara á einhvern skemmtilegan viðburð á Gránu.“ Þröstur Ingi Jónsson LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Bráðum kemur ekki betri tíð. F „Já, klárlega... helst alla... sjúlluð dagskrá.“ Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir Svepparisotto og bláberjamuffins Matgæðingur vikunnar er Kristín Una Sigurðardóttir en hún ólst upp á Sauðárkróki en býr í Hlíðunum í Reykjavík með Karli Jóhanni, og börnunum þeirra; Brynhildi Hafdísi, Jökli Jóhanni og Þorbergi Karli. „Eitt af öðru hættum við að borða kjöt svo nú eldum við bara fisk og alls konar grænmetisrétti heima við. Mér finnst gaman að elda en ég er ekki góð í að fara eftir uppskriftum, ég les yfir þær og geri svo yfirleitt bara eitthvað svona um það bil. Með árunum verður útkoman æ oftar alveg prýðileg,” segir Kristín. „Ég bý svo vel að á haustin fæ ég þurrkaða lerkisveppi frá mömmu sem hún tínir í skógræktinni á Lóni og rausnarlegar berjasendingar frá pabba. Hvílíkur lúxus! Ég reyni að nota þetta úrvals hráefni í alls konar rétti og hér er uppskrift að sveppa- risotto sem er í uppáhaldi hjá okkur og bláberjamuffins.“ AÐALRÉTTUR Svepparisotto 50 g þurrkaðir sveppir (alls ekki verra ef þeir eru tíndir í Skagafirði) 900 ml soðið vatn 11/2 sveppateningur ólívuolía til steikingar 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, pressuð 1 tsk. timian 250 g ferskir sveppir, niðurskornir 300 g risotto grjón (t.d. arborio) 175 ml þurrt hvítvín salt og pipar að smekk 1-2 msk. truffluolía (má sleppa) 3 msk.+ hnetublanda (sjá uppskrift fyrir neðan) 1-2 lúkur grófrifið grænkál ef maður er svo heppinn að eiga slíkt Aðferð: Leggið þurrkuðu svepp- ina í bleyti í heitt vatnið í amk 20 mín og leysið sveppateninginn upp í því. Takið bleyttu sveppina ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Kristín Una Sigurðardóttir | Króksari í Hlíðunum smekk. Berið gjarnan fram með fersku salati. Hnetublanda: 150 g ristaðar kasjúhnetur 3 msk. næringarger (nutritional yeast) ¼ tsk. hvítlauksduft ¾ tsk. sjávarsalt Smellið öllu saman í matvinnslu- vél og malið fínt. RÉTTUR 2 Bláberjamuffins með stökkum toppi Stökkur toppur: 45 g smjörlíki 100 g sykur 60 g hveiti Aðferð: Bræðið smjörlíki í potti og hrærið sykri og hveiti saman við með gaffli svo grófir kögglar myndist. Setjið til hliðar. Þurrefnin fara í eina skál: 240 g hveiti 200 g sykur (hvítur/púður- eða blanda af báðu) 2 tsk. lyftiduft 1/2 tsk. matarsódi 1 tsk. salt 1 msk. maísmjöl börkur af hálfri sítrónu, fínt rifinn 150 g bláber, fersk eða frosin (best ef þau eru tínd í Skagafirði) Blautefnin fara í aðra skál: 115 g brætt smjörlíki eða bragðlaus olía 1 dl mjólk úr jurtaríkinu 4 tsk. mulin chia fræ (mulin í matreiðsluvél) 125 g afgangssúr 45 g sýrður rjómi eða grísk jógúrt úr jurtaríkinu 1 tsk. vanilludropar Aðferð: Hrærið blautefnin vel saman og hellið þeim út í þurr- efnin og hrærið varlega þar til allt hefur blandast vel. Skiptið deiginu niður í 12 stór muffinsform eða fleiri minni og dreifið stökka toppnum yfir. Gott er að þrýsta honum aðeins í kökurnar. Bakið við 180° í 25-30 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í miðja köku kemur hreinn út. Verði ykkur að góðu! Ég ætla að skora á Rannveigu Einarsdóttur, æskuvinkonu mína frá Sauðárkróki, að vera næsti matgæðingur. úr soðinu (geymið soðið) og saxið þá eða maukið í matreiðsluvél. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir sveppaáferð vilja gjarnan saxa sveppina fínt, aðrir vilja stærri bita. Mýkið laukinn á pönnu, bætið hvítlauknum og timian út á og loks sveppunum, fersku og þurrkuðu, og steikið við mið- lungshita þar til þeir eru orðnir mjúkir. Setjið grjónin á pönnuna og steikið í u.þ.b. mínútu. Hellið þá hvítvíninu saman við og látið það sjóða niður. Hrærið í á meðan. Setjið u.þ.b. einn fjórða af sveppasoðinu út á pönnuna og látið krauma við miðlungshita þar til grjónin hafa dregið í sig mestan vökvann. Bætið þá við öðrum fjórðungi af soðinu o.s.frv. þar til grjónin eru orðin „al dente“ (eftir um 20 mínútur). Hrærið regulega allan tímann svo grjónin festist ekki við pönnuna. Hrærið truffluolíunni saman við og grænkálinu ef vill. Saltið og piprið og hrærið að lokum hnetublönd- unni saman við, magn eftir Fjölskyldan í sumarfríi fyrir austan sl. sumar. MYND AÐSEND 39/2021 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.