Feykir - 27.10.2021, Síða 7
sem er mikil viðurkenning í
hestaheiminum. Aðspurður
segir hann það ánægjulegt enda
ekki fengið þá tilnefningu áður.
„Þegar maður horfði á þessa
krakka sem voru að fá þessa
útnefningu þegar ég var að
alast upp sem barn þá hugsaði
maður til þess hvað það væri
gaman að standa einhvern
tímann þarna. Já, þetta er mjög
spennandi og ég er ánægður
með minn árangur og mína
framkomu í sumar, alveg burt-
séð frá því hvort ég hljóti þessa
nafnbót eða viðurkenningu eða
ekki. Það eru aðrir verðugir ein-
staklingar tilnefndir þarna líka
og bara mjög flott hestafólk.“
Guðmar er einnig til-
nefndur til afreksknapa í ung-
mennaflokki hjá Skagfirðingi
en hjá því félagi hefur hann
hlotið margar viðurkenningar
í gegnum tíðina. Meðal annars
var hann valinn skeiðknapi
ársins hjá félaginu á seinasta
ári. Guðmar er þakklátur fyrir
upphefðina en bendir á að
hann sé í stöðugri samkeppni
við aðra knapa félagsins sem
gefa honum ekkert eftir.
Hann er þó pínu uggandi yfir
endurnýjuninni hjá félaginu
sem hann telur ekki nógu góða.
„Það vantar fleira ungt fólk í
hestamennskuna í Skagafirði.
Við stöndum frammi fyrir
þeirri staðreynd að við erum
orðin svolítið fá. Eins og t.d.
með fjórðungsmótið. Ungliða-
hreyfingin er ekki að skila eins
öflugu starfi og var, um og
eftir 2000, þegar 15-20 krakkar
voru að keppa í barnaflokki og
maður var aldrei öruggur með
að komast í úrslit. Þannig að
það mætti eitthvað skoða þetta
betur en kannski er komið
meira sem kallar á krakka en
áður.
Ásamt Guðmari eru fjögur
önnur tilnefnd, þrjár stúlkur og
einn piltur og segir Guðmar þau
hafa veitt sér harða samkeppni.
„Það hjálpar mér mikið
að halda mér á tánum. Það er
nú þannig að við þekkjumst
öll og vitum nokkurn veginn
hvað hvert og eitt okkar höfum
til brunns að bera þannig að
maður gerir sér aðeins grein
fyrir hvað þarf að gera og
leggja á sig til að bera sigur úr
býtum. Ég hef mjög oft þurft
að láta í minni pokann fyrir
þessum einstaklingum enda
mjög flinkir og frambærilegir
hestamenn. Ég segi að við séum
ekki sérlega mörg en þessa
krakka sé ég fyrir mér sem fólk
sem mun starfa við þessa grein
í framtíðinni. Við erum að skila
af okkur hestafólki en það er
spurning hve stór hreyfingin
okkar verður eftir ákveðið
mörg ár.“
Framtíðaráformin ljós
Nú nemur Guðmar reiðlist í
Háskólanum á Hólum en hann
er á öðru ári í hestafræðideild
og segir hann það ganga
prýðilega. Hann var á fyrsta
ári fyrir tveimur árum síðan en
tók sér frí í fyrra þar sem pabbi
hans varð fyrir sambærilegu
áfalli og sonurinn í sumar, og
lá fótbrotinn heima. Þá þurfti
vinnumann í tamningarnar
í hans stað. Eftir áramót er
stefnan sett á verknám og segist
Guðmar ætla að halda sig í
Skagafirði þar sem hann verður
í Þúfum hjá Mette Mannseth og
Gísla Gíslasyni svo segja má að
nokkuð ljóst sé hvert stefnan er
sett.
„Ég myndi alla vega halda
það. Þetta hefur einhvern veginn
alltaf verið stefnan og legið
ágætlega fyrir mér þannig. Það
er þannig að þegar ég hitti hest
er eins og þar sé einstaklingur
sem ég skil sem maður upplifir
ekki alltaf þegar maður hittir
fólk,“ segir Guðmar.
Fyrir þá sem ekki koma kapp-
anum fyrir sig er hann sonur
Magnúsar Braga Magnússonar
á Íbishóli og Valborgar Stein-
unnar Hjálmarsdóttur á Sauðár-
króki. Feykir óskar honum
velfarnaðar á lendum hesta-
mennskunnar og keppnisvöll-
um framtíðarinnar.
fékk í fimmgangi sé sú hæsta
sem ungmenni hefur fengið í
þeirri grein.
Góður stuðningur
fjölskyldunnar
Það er óhætt að segja að
sumarið hafi verið viðburðaríkt
hjá Guðmari og árangurinn
kannski framar vonum ef litið
er til fótbrotsins sem hann
hlaut og þeirra hamla sem
það hefði getað orsakað. En
Guðmar segist heppinn með
fólkið sem að honum stendur
og er þakklátur því.
„Það hefði verið auðvelt að
gefast upp á þessu öllu og leggja
árar í bát og hætta. Fjölskyldan
mín og tengdafjölskylda hjúkr-
uðu mér og sáu til þess að mað-
ur sykki ekki í svartsýni í þessu
broti. Ég man að það var einn
dagur sem var mjög svartur
en þá vaknaði ég í einhverju
svakalegu stemmuáfalli og
svartsýniskasti. Ég skráði
mig út úr landsliðshópnum á
Facebook, síðasta árið mitt í
ungmennaflokki og hugsaði
að ég myndi ekki keppa framar
sem landsliðsmaður. Svo bless-
aðist það nú heldur betur.
Maður þurfti á stuðningi að
halda í þessu ferli og maður
fékk hann, bæði andlegan
og verklegan stuðning til að
framfylgja því öllu sem búið var
að leggja grunn að í vetur og
búið að undirbúa. Ég gæti ekki
verið þakklátari og ánægðari
með mitt fólk sem að mér
stendur.
Uppáhalds hesturinn
Verandi með slíkan hestakost
sem Guðmar hefur aðgang
að er kannski ósanngjarnt
að spyrja hver uppáhalds-
hesturinn sé en ekki stendur
á svari hjá kappanum. „Uppá-
haldshesturinn minn er Sigur-
steinn frá Íbishóli. Hann er
einn allra besti hestur á tölti
sem ég hef sest á, alveg ótrúlegt
geðslag og samvinnufús og
mjög sporlangur. Það er
ótrúlega kraftmikið spor í
honum og er algerlega eins og
hugur manns. Hann komst í
gegnum þetta Íslandsmót með
alveg ótrúlega lítilli hjálp frá
knapanum sínum,“ segir Guð-
mar sposkur á svip.
Guðmar viðurkennir að
hann búi einstaklega vel þegar
kemur að hestakosti og kannski
betur en aðrir. „Já, þetta er
betra en maður þorði nokkurn
tímann að vona. Sem krakki,
þegar ég hugsaði til þess hvað
ég myndi gera þegar Fjölnir
Snillingur frá Íbishóli í gæðingafimi Meistaradeildar KS.
MYND: BJARNEY ANNA ÞÓRSDÓTTIR
Fræknir feðgar í verðlaunaafhendingu í flokki 7 vetra og eldri hesta á
Fjórðungsmóti Vesturlands. MYND: EIÐFAXI
Eldur frá Íbishóli á Fákaflugi. MYND: INGUNN INGÓLFSDÓTTIR.
Eldur frá Íbishóli eftir sigur á Fjórðungsmóti.
MYND: BRYNJA GNÁ BERGMANN
frá Sjávarborg og Frami yrðu
gamlir, hélt ég að þá yrðu
ákveðin tímamót. En ég hef
alltaf verið svo heppinn að um
leið og einn hestur fer kemur
annar í staðinn og núna síðast,
til að mynda, er annar af mín-
um aðalhestum í sumar að fá
nýtt heimili, Eldur frá Íbishóli.
Ég hef fulla trú á því að hans
skarð verði fyllt fljótlega. Það
er alveg einstaklega magnaður
einstaklingur sem slíkur sá
hestur. En auðvitað get ég ekki
annað en þakkað fyrir. Pabbi sá
líka til þess að ég gæti keppt á
Íslands- og Fjórðungsmóti en
hann hélt hestunum mínum
við þann mánuð sem ég var
frá.“
Efnilegasti knapinn
Eins og fram kemur í
inngangi viðtalsins er Guðmar
tilnefndur sem efnilegasti
knapi ársins 2021 af valnefnd
Landssambands hestamanna,
Glymjandi frá Íbishóli þar sem slaktaumatölt vannst í Meistaradeild KS.
MYND: BJARNEY ANNA ÞÓRSDÓTTIR
41/2021 7