Feykir - 27.10.2021, Síða 9
Anton Þorri Axelsson er
Íþróttagarpur Feykis að þessu
sinni, 14 ára Króksari sem fær
sína íþróttaútrás í fjalla-
hjólreiðum í svokölluðu
Downhill fjallabruni. Hann var
einn af þeim sem útbjuggu í
sumar leynilega hjólabraut í
Skógarhlíðinni, ofan Sauðár-
króks, og komst í fréttirnar fyrir
vikið. Sú braut var alls ekki til
einskis gerð því hún hjálpaði
honum að æfa sig fyrir stórar
keppnir í sumar og því til
sönnunar lenti hann m.a. í 2.
sæti á Íslandsmótinu í Skála-
felli. Foreldrar Antons eru þau
Axel Eyjólfsson, vélfræðingur,
og Ósk Bjarnadóttir, kjöt-
iðnaðarmaður.
Hvernig kom það til að þú byrj-
aðir að keppa í fjallahjólreið-
um? -Ég kynntist strák í útilegu í
fyrrasumar sem var að keppa í
fjallabruni. Eftir það keypti ég
notað, fulldempað hjól og var á
því þangað til í vor en þá keypti
ég nýtt hjól fyrir fermingar-
peningana sem hentaði betur
fyrir fjallabrun. Svo hitti ég
þennan strák aftur í sumar en
hann var að fara að keppa og ég
ákvað að skrá mig í keppnina
líka.
Hvernig og hvar hefur þú æft
þig?-Ég er skráður félagi í Hjól-
reiðafélagi Akureyrar og þar eru
æfingar tvisvar í viku og ég hef
reynt að mæta þar þegar ég get.
Við gerðum líka „leynibraut“ í
Skógarhlíðinni þar sem ég gat
líka æft mig.
Hvað getur þú sagt mér um
keppnir sumarsins, keppnis-
búnaðinn, hjól og öryggishlífar?
-Hjólið heitir GT Force Elite og er
með 160 mm fjöðrun að framan
og aftan. Hjálmurinn er 100%,
kjálkahjálmur sem er skylda í
fjallabruni, einnig þarf að vera í
brynju og með hnéhlífar í
keppni.
Ég fór í bikarkeppni sem
samanstendur af fjórum mótum
og var það fyrsta haldið í
Vífilstaðahlíð. Þar lenti ég í 5.
sæti, sem var svo sem allt í lagi
miðað við fyrstu keppni. Næsta
bikarmót var á Akureyri og þar
lenti ég í 3. sæti og svo keppti ég
á Íslandsmóti í Skálafelli og þar
lenti ég 2. sæti. Þriðja mótið í
bikarkeppninni var haldið í
Úlfarsfelli og þar datt ég illa og
eyðilagði hjálminn minn og
fannst erfitt að keppa daginn
eftir og lenti þar 6. sæti. Síðasta
mótið var svo haldið á Akureyri
um miðjan september og lenti ég
í 3. sæti og þar með endaði ég
bikarkeppnina í 3. sæti.
Íþróttafélag/félög: -Hjólreiða-
félag Akureyrar.
Helstu íþróttaafrek: -Að lenda í
2. sæti á Íslandsmótinu í Skála-
felli.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Veit ekki alveg en ætli það sé
ekki þegar ég fattaði að ég hefði
náð 2. sætinu í Skálafelli.
Neyðarlegasta atvikið: -Senni-
lega þegar ég flaug á hausinn
eftir að ég var kominn í mark í
seinni keppninni á Akureyri.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Já ,ég keppi alltaf í bleiku
Pringles brókinni minni – ég
þvæ hana eftir keppni.
Uppáhalds íþróttamaður? -Sam
Pilgrim sem er enskur Freeride
hjólari.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera
og í hvaða grein mynduð þið
spreyta ykkur? -Ætli það væri
ekki pabbi sem ég vildi keppa
við í Downhill.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Við höfum prófað það
og pabbi flaug á hausinn.
Bíður eftir næsta keppnis-
tímabili í fjallabruni
ÍÞRÓTTAGARPURINN | palli@feykir.is
Anton Þorri Axelsson | fjallahjólreiðakappi frá Sauðárkróki
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Ég veit það ekki.
Lífsmottó: -Ætli það sé ekki bara
að gera sitt besta.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Fabio
Wibmer sem er austurískur hjól-
ari og ástæðan er sú að hann er
svo góður í öllum tegundum
hjólreiða.
Hvað er verið að gera þessa dag-
ana? -Bara að græja hjólið fyrir
næsta sumar en það þarf að kaupa
ýmislegt svo sem gjarðir og fleira
sem er ónýtt eftir sumarið.
Hvað er framundan? -Næsta
keppnistímabil er næsta sumar
þannig að það er bara verið að
bíða eftir því.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri? -Bara þökkum til
þeirra sem hjálpuðu mér í sumar.
Það er að ýmsu að huga í fjallahjólreiðum.
Anton Þorri sáttur í mótslok.
41/2021 9