Feykir - 27.10.2021, Qupperneq 10
Hrútasýning í Hrútafirði
Besti hrútur sýningarinnar
holdfylltur frá nösum til dindils
Þrátt fyrir áföll í sauðfjárbúskap og slaka afkomu
sauðfjárbænda undanfarin ár virðist áhugi á
sauðfjárrækt í engu hafa dalað. Haustið er
uppskerutími þeirra sem unna sauðkindinni
þegar árangur kynbótastarfsins birtist skriflega á
vigtarnótum sláturleyfishafa og dómablöðum
ráðunautanna, en ekki síður við skoðun og áhorf
á lagðprúð og læramikil líflömb.
Í Húnaþingi vestra er sauðfjárrækt undirstöðu
atvinnuvegur enda kjöraðstæður í sveitarfé-
laginu til sauðfjárræktar og ættliðaskipti hafa
tekist vel með áberandi mörgum ungum
bændum í héraðinu.
Miðvikudagskvöldið 20. október 2021 var
vel heppnuð lambasýning haldin að bænum
Bálkastöðum í Hrútafirði þar sem ráðunautarnir
Sigríður Ólafsdóttir og Stella Guðrún Ellerts-
dóttir röðuðu upp til verðlaunaafhendingar
áður stiguðum lömbum.
Mættir voru bændur úr Miðfjarðarhólfi sem
nær frá Fitjárdal að austan til botns Hrútafjarð-
ar í vestri. Margt góðra lamba var til álita og
átöku og áttu dómarar í töluverðum vandræðum
með að skera úr um hvaða lamb væri best.
Keppt var í eftirfarandi flokkum: hyrndir
hvítir hrútar, kollóttir hvítir hrútar, mislitir
hrútar, skrautgimbrar.
ÚRSLIT URÐU EFTIRFARANDI:
Hyrndir hvítir:
1. Urriðaá – Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
2. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
3. Bergsstaðir – Ari Guðmundur Guðmundsson
Kollóttir hvítir:
1. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
2. Sandar – Hanife Agnes Mueller-Schoenau
3. Bálkastaðir 1 – Guðný Kristín Guðnadóttir
Mislitir:
1. Mýrar 2 – Stefán Páll Böðvarsson
2. Urriðaá – Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
3. Bergsstaðir – Elín Anna Skúladóttir
Skrautgimbur:
1. Melar 2 – Jóna Elín Gunnarsdóttir
2. Melar 2 – Guðveig Fanney Jónasdóttir
3. Bálkastaðir 1 – Arnfinnur Guðni Ottesen og
Bryndís Jóna Ottesen
Besti hrútur sýningarinnar var valinn sigur-
vegari mislita flokksins og er hann frá Mýrum
2. Virkilega gerðarlegur grár hrútur, holdfylltur
frá nösum til dindils, fallegur á velli og almennt
góður. Ekki spillti liturinn svo fyrir enda grár
litur með fallegri sauðalitum sem finnast.
Fjárræktarfélögin í Hrútafirði og Miðfirði
veittu verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti í hverjum
flokki og einnig Pakkhúsið á Hvammstanga
sem gaf saltsteina til bragðbætis.
Hrútasýningar á við þessa eru góð
skemmtun, þar sem þær mega eiga sér stað, og
algerlega um að gera að nýta tækifæri sem bjóð-
ast til að koma saman, skoða fallegt fé og hafa
gaman. /Sigríði Ólafsdóttur ráðunautur og Gunnar Rögnvaldsson
Margir lögðu leið sína í Bálkastaði og nutu veitinga eftir að úrslit
lágu fyrir.
Það er viðeigandi listaverk á fjárhúsveggnum á Bálkastöðum.
Efstu hrútar sýningarinnar hver í sínum flokki. Frá vinstri: Grár frá Mýrum 2 og Bjarni Ole Ingason. Kollóttur frá Mýrum og Stefán Páll
Böðvarsson. Hvítur hyrndur frá Urriðaá og Dagbjört Diljá Einþórsdóttir. MYNDIR: GUNNAR RÖGNVALDSSON
Efsti misliti hrúturinn og um leið efsti hrútur sýningarinnar
Efsti kollótti hrúturinn frá Mýrum
Hópurinn frá Mýrum 2
Efsti hyrndi hvíti hrúturinn frá Urriðaá.
Stoltir fjáreigendur á Bálkastöðum með mislitu gimbrarnar sínar. Frá vinstri Þórður
Ármann Ottesen, Arnfinnur Guðni Ottesen og Bryndís Jóna Ottesen
10 41/2021