Feykir


Feykir - 27.10.2021, Page 12

Feykir - 27.10.2021, Page 12
Álfur og Alvör Margar eru munnsögur um uppruna álfa. Þessar eru almennastar sem nefndar eru: í Árnaskjali um höfuðþvott barna Evu; önnur um það nær englarnir óhlýðnuðust drottni sínum steypti hann þeim af himnum ofan, féllu sumir í undirdjúpin, en sumir í loftið milli himins og jarðar, sumir í vötnin og þá sumir á jörðina, og eru þeir misjafnir. Sumir vilja sem minnst mönnunum til miska gjöra, aðrir fremur, og er það á misjafnri tröppu. Því heita þeir: loftandar, jarðandar og vatnaandar eða vatnaskrattar. Sýna þeir sig í ýmsum myndum sem bágt er upp að tína enda gjöra sögurnar sjálfar það bezt. Hin þriðja frásaga um uppruna trölla og álfa er þessi: Í öndverðu skapaði guð manninn af moldu og konu handa honum einnig af moldu. Þessi kona hans var svo ókyr hjá honum og stygg að Adam gat engu tauti við hana komið og er guð vildi leiðrétta hana tjáði það ekki. Því skapaði guð henni mann eftir hennar eðli og nefndi hann Álf, en hana Alvöru, og af þeim eru öll tröll og álfar komnir. /PF Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947 1853 Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 41 TBL 27. október 2021 41. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Króksamót Tindastóls var haldið í Síkinu á laugardaginn og var þetta í tíunda skipti sem þetta mót var haldið. Um 150 krakkar, bæði stelpur og strákar, tóku þátt og komu þátttak- endur að þessu sinni frá Þór Akureyri, Samherja Eyjarfjarðasveit, Smáranum Varmahlíð, Fram Skagaströnd, Hvöt Blönduósi og Tindastól Sauðárkróki. Ég þori að fullyrða að flest allir þátttakendurnir hafi verið komnir á yfirsnúning af spenningi rétt fyrir mót því eins og flestir vita þá þurfti að fresta Króksamótinu síðasta haust sökum Covid og lítið verið um körfuboltamót síðasta eina og hálfa árið fyrir þennan aldur. En á þessu móti spiluðu krakkar frá 1. bekk og upp í 6. bekk og var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér vel. Fyrstu leikirnir byrjuðu kl. 9:00 og síðustu leik- irnir flautaðir af um 15:40 og var spilað 2x10 mín- útur. Í tilkynningu frá mótsnefnd kemur fram að áherslan hafi verið lögð á leikgleði og að engin stig hafi verið talin en krakkarnir voru nú alveg með á hreinu hver lokastaðan var í hverjum leik fyrir sig. Þá fengu allir þátttakendur vatnsbrúsa að gjöf frá Steinullarverksmiðjunni og verðlaunapening ásamt því að boðið var í pizzaveislu. Stjórn barna og unglingaráðsins vill þakka öllum þátttakendum kærlega fyrir komuna ásamt því að senda innilegar þakkir til allra sem hjálpuðu til við að manna vaktir og öllum dómurunum og þjálf- urum fyrir frábært samstarf. Án ykkar væri þetta ekki hægt. Sjá nánar á Feykir.is. /SG Sauðárkrókur Ofurspenntir körfubolta- krakkar á Króksamóti Stólastúlkan María Hrönn í layuppi á Króksamóti. MYND: HELGI FREYR Forkeppni um Köku ársins 2022 var haldin dagana 21.-22. október sl. en þar gafst bökurum innan Landssambands bakarameistara tækifæri til að senda inn nýjar og spennandi kökur. Sala kökunnar hefst á konu- daginn 20. febrúar 2022 og eflaust bíða nú þegar einhverjir spenntir með sínar sætu tennur eftir því að fá smakk. Fjórar kökur urðu hlutskarpastar hjá dómnefnd og fer loka- keppnin fram 19. nóvember nk. Karsten Rummelhoff, konditormeistari og bakari hjá Sauðárkróksbakaríi, er einn snillinganna sem bakaði sig í úrslit keppninnar í ár og ekki í fyrsta skipti að sögn Róberts Óttarssonar bakarameistara. Þetta mun þó vera í fyrsta skipti í talsverðan tíma sem Karsten sendir köku í keppnina. Auk Karstens á Rúnar Felixson úr Mosfellsbakaríi tvær kökur í úrslitum og þá á Guðrún Erla Guðjónsdóttir fjórðu kökuna. Á hverju ári leitar Landssamband bakarameistara að stuðningsaðila fyrir Köku ársins og að þessu sinni er það Innbak sem er aðalstuðningsaðili keppninnar og því er gert að skilyrði að kakan innihaldi Créme Brulée frá Debic. /ÓAB Karsten kominn í úrslit um Köku ársins 2022 Sauðárkróksbakarí Karsten Rummelhoff. MYND: FEYKIR Svipmyndir frá Króksamóti. Fleiri myndir má sjá á Feykir.is.. MYNDIR: SUNNA, THELMA, HANNA OG HELGI FREYR

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.