Feykir


Feykir - 03.11.2021, Qupperneq 4

Feykir - 03.11.2021, Qupperneq 4
Það hafa eflaust margir rekið augun í hann Lúðvík Björn sem flatmagar í garðinum á Öldustígnum á Króknum. Lúðvík eða Lúlli eins og hann er oftast kallaður er nefni- lega ekki mikið að kippa sig upp við það að einhver labbi framhjá garðinum hans en eigandi hans er Benjamín Elínór, sjö ára, en foreldrar hans eru Sigurlaug Vordís og Sigfús Arnar. Lúlli er af tegundinni Chow Chow sem minnir einna helst á mjög loðinn bangsa og er eitt af einkennum tegundarinnar tvöfaldi þykki feldurinn og er hann extra þykkur í kringum hálssvæðið. Augun eru möndlulaga og frekar djúpsett en það furðulegasta við þá er tungan því þessi tegund er með fjólubláa eða blásvarta tungu sem þykir skrítið og er talið, út frá henni, að þessi tegund sé komin af úlfum. Hvernig eignuðust þið Lúlla? „Mamma og pabbi fengu hann hjá Dropasteins- ræktun, rétt hjá Hveragerði árið 2012. Lúlli er því tveimur árum eldri en ég.“ Hvað er skemmtilegast við Lúlla? „Það er skemmtilegast að knúsa hann því hann er svo loðinn og mjúkur.“ Hvað er erfiðast? „Stundum þegar ég er að hlaupa, þá eltir hann mig.“ Ertu með einhverja sniðuga eða merkilega sögu af Lúlla? „Lúlli á það til að stelast upp í sófa og þá kallar pabbi hann Sofanius Klemenz og það finnst mér mjög fyndið. Einu sinni hoppaði hann upp á borð og át fullann poka af osta Doritos snakki en upp- áhalds maturinn hans er Lasagne. Lúlla finnst hund- leiðinlegt að horfa á íþróttir í sjónvarpinu en hann elskar að liggja í garðinum og sérstaklega þegar það snjóar. Lúlli þolir ekki að stíga í polla hann heyrir bara það sem hann vill heyra og svo hrýtur hann rosalega hátt. Þá er Lúlli alltaf fyrstur til að taka á móti gestum og er rosalega góður við alla.“ Feykir þakkar Benjamín kær- lega fyrir að svara þættinum Ég og gæludýrið mitt. Benjamín Elínór og Lúðvík Björn í góðu yfirlæti. AÐSENDAR MYNDIR Lúlli horfir ekki á íþróttir! ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is Benjamín Elínór Sigfússon | Hundurinn Lúlli Skákþing Norðlendinga á Kaffi Krók Skákmeistarinn verður að eiga lögheimili á Norðurlandi Skákþing Norðlendinga verður haldið á Kaffi Krók á Sauðárkróki 12. til 14. nóvember og hefst taflmennskan kl. 19.00, föstudagskvöldið 12. og verða þá tefldar fjórar umferðir atskáka með 25 mín. umhugsunartíma. Á laugardeginum verða tefldar tvær kappskákir 90 mín. + 30 sek. á leik og er sú fyrri kl. 10.00 og sú seinni kl. 16.00. Þriðja kappskákin er svo kl. 10.00 daginn eftir og að henni lokinni Hraðskákþing Norðlendinga, sem líklega verður um kl. 14.00, eftir því sem kemur fram á heimasíðu Skákfélags Sauðárkróks. Þátttökugjald er kr. 2000 á skákþingið en ekkert í hrað- skákmótið. Fyrstu verðlaun verða kr. 50.000, önnur 35.000, þriðju 20.000, fjórðu 15.000 og aukaverðlaun til efsta manns undir 1800 stigum, 10.000. Peningaverðlaun skiptast milli þeirra sem fá jafn marga vinninga. Titilinn Skákmeist- ari Norðlendinga getur aðeins hlotið sá sem á lögheimili á Norðurlandi og ræður þá stiga- útreikningur verði menn jafnir að vinningum. Hægt er að tilkynna þátttöku á Skák.is eða hjá jhaym@simnet.is og í 8653827. Að sögn Jóns Arnljótssonar, formanns TS, tók félagið þátt í Íslandsmóti Skákfélaga fyrir skömmu og gekk vel. Eftir fyrri hlutann situr það í efsta sæti fjórðu deildar en seinni hlutinn fer fram í mars. Jón segir að liðið hafi að miklu leyti verið skipað brottfluttum að þessu sinni. /PF Sláturtíð að enda Lömbin talsvert vænni nú en fyrir ári Rúv.is sagði frá því fyrir helgi að sláturtíð væri víðast hvar að enda en í einhverjum sláturhúsum verður þó slátrað fram í nóvember. Hjá sláturhúsinu á Hvammstanga er meðalþyngd dilka talsvert hærri en í fyrrahaust og það þakkar sláturhússtjórinn sífellt betri árangri bænda við ræktun. Í fréttinni var rætt við Davíð Gestsson, sláturhússtjóra Slátur- húss KVH á Hvammstanga, en þar lauk slátrun sl. föstudag. 150 manns hafa unnið við slátrun á Hvammstanga frá því um mánaðamótin ágúst september. Heldur færri voru við slátrun þar nú en í fyrra, að mestu pólskir verkamenn. „Það helgast dálítið af því að fólk var ragt við Sláturhúsið á Hvammstanga. SKJÁSKOT AF VEF RÚV Flottir félagar. að láta bólusetja sig og koma en við mæltumst til þess að fólk myndi koma bólusett. En svona heilt yfir gekk þetta bara nokkuð vel, nokkuð góður mannskapur sem við höfum,“ sagði Davíð. Samtals var 92.500 fjár slátrað á Hvammstanga og yfir 90 prósent af því lömb sem hann segir hafa verið talsvert vænni en í fyrrahaust og meðalvigtin því hærri. „Já, ég held að við séum að fara einhver 400 grömm yfir síðasta ár. Það þykir nokkuð gott.“ /ÓAB Sveitarfélagið Skagafjörður Hvatapeningar hækka um áramótin Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir að sveitarstjórn hafi samþykkt tillögu félags- og tóm- stundanefndar um að hækka hvatapeninga úr 25.000 krónum í 40.000 krónur frá og með 1. janúar nk. Hvatapeningar eru ætlaðir til niðurgreiðslu íþrótta- og tómstundastarfs barna á aldrinum 5-18 ára með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði. Reglur um hvatapeninga verða áfram óbreyttar. Í reglum um hvatapenina segir m.a. að öll börn 5-18 ára með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði eigi rétt á Hvatapeningum. Iðkendur eiga rétt á styrk frá og með því ári sem fimm ára aldri er náð, til og með því ári sem 18 ára aldri er náð. Hvatapeninga er hægt að nýta til að greiða niður æfinga-/ þátttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi og er ætlað að auka jöfnuð í sam- félaginu, fjölbreytileika íþrótta-, lista- og tómstundastarfs og styrkja félagslegt umhverfi og hafa jákvæð áhrif á þroska barna og unglinga. „Eins og bókað var á fundi félags- og tómstundanefndar þá er ástæða til að fagna samstöðu um hækkun hvatapeninga, enda mikilvægt að styðja enn frekar við íþrótta- og tómstundaiðkun barna,“ segir í fréttinni á vef sveitarfélagsins. /ÓAB Frá Sauðárkróki. MYND: ÓAB 4 42/2021

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.