Feykir


Feykir - 03.11.2021, Síða 5

Feykir - 03.11.2021, Síða 5
Liggurðu á frétt? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Tap í deild og bikar eftir góða byrjun Hökt á Tindastólsmönnum Eftir fína byrjun í Subway- deildinni hafa Stólarnir mátt sætta sig við tvö töp í Síkinu síðustu vikuna. Fyrst gegn spræku liði Grindvíkinga, 77-86, og nú á sunnudag komu Stjörnumenn og hentu liði Tindastóls út úr VÍS bikarnum í spennandi leik sem endaði 78-79. VÍS bikarinn Það voru of fáir leikmenn sem skiluðu alvöru sóknarframlagi gegn Stjörnunni og í raun makalaust að það var mögu- leiki á sigri í lokasókn Tinda- stóls en liðið var mest 16 stigum undir í þriðja leikhluta. Badmus og Siggi drógu vagn- inn en áfram heldur eyði- merkurganga liðsins utan 3ja stiga línunnar. Settu Stólarnir fjóra þrista í 26 skotum, sum skotin sem klikkuðu voru úr galopnum færum, en nýting gestanna var heldur skárri, tíu niður í 40 skotum! Stólarnir tóku fleiri fráköst en þar var þó mjótt á munum. Badmus var öflugastur í liði Tindastóls, gerði 23 stig og tók átta fráköst en tapaði boltanum fimm sinnum. Siggi Þorsteins náði aftur vopnum sínum eftir erfiðan Grindavíkurleik, tók tíu fráköst og gerði 18 stig og Taiwo Badmus sýndi góða takta í liði Tindastóls gegn Stjörnunni. MYND: HJALTI ÁRNA VÍS bikarinn | Breiðablik 111–53 Stólastúlkur áttu ekki breik í Blika Kvennalið Tindastóls mætti liði Breiðabliks í 16 liða úrslitum VÍS bikarsins sl. sunnudag og var spilað í Smáranum í Kópavogi fyrir framan 32 áhorf-endur. Lið Blika spilar í Subway deildinni og er ansi sterkt þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í vetur. Þær reyndust í það minnsta of sterkar fyrir Stólastúlkur og unnu að lokum stórsigur, 111-53, og lið Tindastóls því úr leik í bikarnum. Það var ekki til að auðvelda verkefnið fyrir gest- ina að í liðið vantaði Ksenju Hribljan sem tók út leikbann eftir að hafa verið vísað úr húsi gegn KR í leik liðanna í 1. deildinni fyrr í október. Maddie Sutton kom liði Tindastóls í 0-2 og síðan í 3-4 áður en mínúta var liðin. En þá skildu leiðir. Heimastúlkur voru yfir, 30-13, að loknum fyrsta leikhluta en Stólastúlkur náðu að saxa aðeins á forskotið í upphafi annars leikhluta, minnkuðu muninn í 33-20, en þá komu þrjár 3ja stiga körfur í röð frá Önnu Soffíu Lárusdóttur og Blikastúlkur brunuðu fulla ferð áfram. Staðan í hálfleik var 64-27. Þriðji leikhluti var sígildur hjá liði Tindastóls sem gerði átta stig á meðan heimastúlkur skiluðu 32 stigum á töfluna. Staðan 96-35 þegar fjórði leikhlutinn hófst og þá tókst gestunum loks að vinna leikhluta, 15-18, og laga stöðuna örlítið. Maddie var atkvæðamest að venju í liði Tindastóls en hún gerði 22 stig og tók 17 fráköst. Eva Rún gerði 14 stig og tók sjö fráköst en aðrir leikmenn skiluðu minna. Blikar voru fremri á öllum sviðum körfuboltans í dag en þó munaði litlu í frákastabaráttunni (45/41), Maddie alveg ólseig þar. Meðalaldur byrjunarliðs Stólastúlkna í leiknum var 19 ár. /ÓAB Bess var með 15 stig og tíu fráköst en skotnýtingin var ekki góð. Bakverðir liðsins voru mistækir og þurfa að gera betur en í þessum leik ef liðið ætlar að vinna leiki á ný. Helgi Rafn var ónotaður vara- maður líkt og í síðasta leik en hann glímir við meiðsli. /ÓAB Subway-deildin Grindvíkingar héldu sigur- göngu sinni áfram í Subway- deildinni í körfubolta og sóttu tvö mikilvæg stig í Skaga- fjörðinn sl. fimmtudag þegar þeir báru sigurorð af lánlitlu Tindastólsliði. Þriðji leikhlut- inn reyndist heimamönnum erfiður og kostaði þá sigurinn þegar upp var staðið. Loka- tölur 77 - 86. Javon Anthony Bess var sem fyrr öflugur í liði Tindastóls og gerði 30 stig en tók aðeins fimm fráköst og Taiwo Hassan Badmus 13 stig og þrjú fráköst. „Við eiginlega héldum ekki okar plani, sóttum lítið inn, drævuðum lítið í götin en þegar við gerðum það þá setti Bess nokkra þrista í röð. Hefðum við gert það áfram hefði þetta kannski endað öðruvísi en við alla vega gerðum ekki það sem við ætluðum okkur í þessum leik,“ sagði Helgi Rafn Viggós- son í samtali við Feyki. /PF Anna Karen Hjartardóttir gerði sex stig. MYND: DAVÍÐ MÁR Landsamband hestamannafélaga Guðmar Freyr efnilegastur og Þúfur keppnishestabú ársins Fyrir helgi fór fram á Hotel Natura verðlaunahátíð Landssambands hesta- mannafélaga en þar áttu þrír Skagfirðingar möguleika á knapaverðlaunum og tvö skagfirsk bú fyrir keppnis- hestabú ársins 2021. Guðmar Freyr Magnússon var valinn efnilegasti knapi landsins 2021 og Þúfur hlaut nafnbótina keppnishestabú ársins. Guðmar Freyr Magnússon hlaut þann heiður að vera valinn efnilegasti knapi árs- ins 2021 en sumarið var honum heilladrjúgt þrátt fyrir skakkaföll sem næstum komu í veg fyrir að hann næði að keppa á helstu hestamótum landsins eins og fram kom í viðtali við hann í Feyki síð- ustu viku. Í frétt á Eiðfaxa.is má sjá tilkynningu frá LH þar sem segir að Guðmar Freyr hafi staðið sig afar vel á árinu. „Hann varð Íslandsmeistari ungmenna í tölti á Sigursteini frá Íbishóli og vann ung- mennaflokk á Fjórðungs- mótinu í Borgarnesi á Eldi frá Íbishóli. Hann er efstur á stöðulista ársins í tölti ung- menna. Hann náði einnig góðum árangri í fimmgangi á Rosa frá Berglandi og er ofarlega á stöðulista ársins í þeirri grein. Guðmar Freyr kemur vel fyrir með kurteisina að vopni og hann á svo sannar- lega framtíðina fyrir sér, hann er efnilegasti knapi ársins.“ „Þakklæti kemur efst í huga fyrir veittan stuðning frá pabba, mömmu og öllum hinum,“ sagði Guðmar við fyrirspurn Feykis um hvernig honum væri innanbrjósts eftir daginn. Þá hlutu Þúfur viðurkenn- ingu sem Keppnishestabú árs- ins en þar ráða þau Mette Mannseth og Gísli Gíslason ríkjum. „Að Þúfum í Skaga- firði rækta þau Gísli Gíslason og Mette Mannseth afreks- hross í fremstu röð og hafa gert um árabil. Hross frá þeim voru í úrslitum í öllum hring- vallargreinum á Íslandsmót- inu með knöpum sínum en það voru þau Skálmöld, Kalsi, Sólon, Blundur og List. Þá stóð Kalsi efstur í A-flokki gæðinga á Fjórðungsmótinu í Borgar- nesi auk þess að þau List og Blundur voru í A-úrslitum í B-flokki. Frábær árangur hjá búi þar sem að þegar þessi hross voru að koma í heiminn fæddust á bilinu 8-10 folöld á ári. Fleiri hross en þau sem áður hafa verið upp talin standa að baki þessum frábæra árangri og má þar nefna þau Kaktus og Værð. Gísli og Mette temja, þjálfa og sýna langflest af sínum hrossum sjálf og eru fagmenn fram í fingurgóma,“ segir í umsögn LH. Aðrir sem hlutu verðlaun voru Jakob Svavar Sigurðsson sem íþróttaknapi ársins, Daníel Jónsson gæðingaknapi ársins, Konráð Valur Sveinsson skeiðknapi ársins en Árni Björn Pálsson fékk tvenn verðlaun, annars vegar sem kynbótaknapi ársins og það sem allir sækjast eftir; knapi ársins 2021. /PF Eldur frá Íbishóli eftir sigur á Fjórðungsmóti. MYND: BRYNJA GNÁ BERGMANN 42/2021 5

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.