Feykir


Feykir - 03.11.2021, Page 6

Feykir - 03.11.2021, Page 6
FRÁ BYGGÐASAFNI SKAGFIRÐINGA Ylfa Leifsdóttir og Berglind Þorsteinsdóttir skrifa Metfjöldi gesta í ágúst og september Nú er annað óvenjulegt sumar með takmörkunum og grímuskildu, gengið um garð hjá Byggðasafni Skagfirðinga. Frá og með 21. október lauk formlegum opnunartíma safnsins en safnið verður áfram opið eftir samkomulagi í vetur. Sumarið byrjaði rólega og gestafjöldi í júní var langt undir meðaltali en alls komu 3842 gestir í Glaumbæ og Víðimýrarkirkju fyrstu sex mánuði ársins. Heimsóknartölur tóku þó heldur betur við sér í júlí og þann 1. október höfðu 35.678 gestir sótt safnið heim, 31.835 gestir komu þannig í júlí, ágúst og september. Þá hafa aldrei fleiri gestir heimsótt safnið í ágúst og september. Það stefnir þannig í aðsókn sem er næstum sambærileg því sem við áttum að venjast fyrir tíma COVID. VIÐ TELJUM HELSTU skýring- una á þessari aukningu í miðasölu vera þá að í vor var safnsvæðinu lokað og nýtt miðasöluhús tekið í notkun og þarf því nú að kaupa miða til að ganga um grundir safnsins. Með þessu er verið að reyna að hlúa meira að gamla bænum og umhverfi hans með því að stýra betur umferð fólks á svæðinu ásamt því að bæta safnaupplifun gesta og hefur þessi breyting gefið góða raun. Rekstrarfyrirkomulagið á kaffistofunni í Áshúsi breyttist líka í vor en hún var nú í sumar í fyrsta sinn rekin af safninu. María Eymundsdóttir stóð sig með mikilli prýði í nýju hlutverki sem verkefna- stjóri matarupplifunar og safnverðirnir sömuleiðis sem þjónar og vakti kaffistofan mikla lukku meðal safngesta. Við minnum íbúa Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar og Akrahrepps á að þeir þurfa einungis að fjárfesta einu sinni í miða árlega, þar sem miðinn gildir í heilt ár frá kaupum, og íbúarnir á svæðinu geta þannig komið í kjölfarið eins oft og þá lystir á sýningar, viðburði og kaffistofu safnsins. MEÐ COVID HAFA komið ýmsar áskoranir fyrir söfn og á sama tíma tækifæri til þróunar á safnastarfi þegar kemur að stafrænum lausnum. Starfs- menn safnsins sóttu nær allar ráðstefnur þessa árs á netinu og á Alþjóðlega safnadegin- um í ár var lögð áhersla á notkun samfélagsmiðla og var Byggðasafnið af því tilefni með rafræna leiðsögn um gamla bæinn en hana má nálgast á Facebook-síðu safnsins. Safn- ið var þó líka með viðburði í raunheimum en að venju var Mark Watson dagurinn í Glaumbæ, sem haldinn er 18. júlí ár hvert, vel sóttur af bæði tví- og fjórfætlingum. Í haust varð síðan breyting á sýn- ingum á efri hæð Áshússins Gísli og María á fyrsta opnunardegi kaffistofunnar í Áshúsi. Blíðviðri lék við gesti á afmælisdegi Mark Watson. MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA þegar sett var upp ný sýning sem stóð í nokkrar vikur í tilefni af útgáfu bókarinnar „Sumardagur í Glaumbæ“ en bókin er samstarfsverkefni Berglindar Þorsteinsdóttur safnstjóra og Jérémy Pailler listamanns. Bókin var gefin út á fjórum tungumálum og fyrir áhugasama fæst hún sem stendur í safnbúðinni í Glaumbæ, Skagfirðingabúð, Minjasafninu á Akureyri og Þjóðminjasafni Íslands. ÞAÐ ER ÞÓ EKKI BARA nóg að gera á sýningum safnsins heldur hefur fornleifadeildin haft nóg fyrir stafni í skrán- ingum og rannsóknum. Þessa stundina er m.a. spennandi verkefni í gangi þar sem unnið er að því að skrá öll uppi- standandi og hálfuppistand- andi torfhús í Skagafirði. Í Skagafirði er að finna nokk- urn fjölda uppistandandi torf- bygginga, allt frá litlum kofum og útihúsum til torfkirkna og stórra torfbæja. Nokkur þess- ara húsa eru í Húsasafni Þjóðminjasafns Íslands en önnur í einkaeigu. Sem stendur er ekki til heildaryfirlit yfir þessi hús og teljum við mikilvægt að ráðast í skráningu þeirra til að öðlast yfirsýn yfir málaflokkinn, hversu mörg hús eru eftir af hverri gerð og byggingar- aðferð. Slík yfirsýn getur verið mikilvægt tæki við forgangs- röðun í minjavernd og einnig til að fá betri skilning á raun- verulegu gildi og fágæti viðkomandi torfhúsa. Við skráninguna gefst tækifæri til að draga fram allar helstu upplýsingar um torfhúsin áður en þau falla og hverfa, s.s. byggingaraðferðir, svæðis- bundin einkenni o.s.frv. Í ár tók Fornverkaskólinn líka aftur upp þráðinn í námskeiðahaldi en námskeið síðasta árs féllu niður vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Vel heppnað námskeið fór fram á Tyrfingsstöðum 10.–12. sept- ember en verkefnið sem hópurinn tók sér fyrir hendur á námskeiðinu var að hækka veggi hlöðunnar sem stendur norðan við gamla bæjarhúsið. HEILT YFIR ÞÁ virðist safna- starfið vera að falla aftur í rétt horf og við þökkum öllum safngestum og stuðnings- mönnum safnsins fyrir sumarið. Við horfum björtum augum á framhaldið og hvetjum heimamenn til að hafa eyrun sperrt og augun opin fyrir viðburðum í vetur. Í júníbyrjun kom hópur ungmenna sem vildu fá að smakka mysu, hákarl og tvíreykt hangikjöt, María galdraði veitingarnar fram á örskotsstundu. Fornleifafræðingurinn Brenda Prehal að mæla hesthúsið á Syðstu-Grund. 6 42/2021

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.