Feykir - 03.11.2021, Síða 6
FRÁ BYGGÐASAFNI SKAGFIRÐINGA
Ylfa Leifsdóttir og Berglind Þorsteinsdóttir skrifa
Metfjöldi gesta í ágúst og september
Nú er annað óvenjulegt
sumar með takmörkunum
og grímuskildu, gengið
um garð hjá Byggðasafni
Skagfirðinga. Frá og með
21. október lauk formlegum
opnunartíma safnsins en
safnið verður áfram opið
eftir samkomulagi í vetur.
Sumarið byrjaði rólega
og gestafjöldi í júní var
langt undir meðaltali en
alls komu 3842 gestir í
Glaumbæ og Víðimýrarkirkju
fyrstu sex mánuði ársins.
Heimsóknartölur tóku þó
heldur betur við sér í júlí
og þann 1. október höfðu
35.678 gestir sótt safnið
heim, 31.835 gestir komu
þannig í júlí, ágúst og
september. Þá hafa aldrei
fleiri gestir heimsótt safnið
í ágúst og september. Það
stefnir þannig í aðsókn sem
er næstum sambærileg því
sem við áttum að venjast
fyrir tíma COVID.
VIÐ TELJUM HELSTU skýring-
una á þessari aukningu í
miðasölu vera þá að í vor var
safnsvæðinu lokað og nýtt
miðasöluhús tekið í notkun og
þarf því nú að kaupa miða til
að ganga um grundir safnsins.
Með þessu er verið að reyna að
hlúa meira að gamla bænum
og umhverfi hans með því að
stýra betur umferð fólks á
svæðinu ásamt því að bæta
safnaupplifun gesta og hefur
þessi breyting gefið góða
raun. Rekstrarfyrirkomulagið
á kaffistofunni í Áshúsi
breyttist líka í vor en hún var
nú í sumar í fyrsta sinn rekin af
safninu. María Eymundsdóttir
stóð sig með mikilli prýði í
nýju hlutverki sem verkefna-
stjóri matarupplifunar og
safnverðirnir sömuleiðis sem
þjónar og vakti kaffistofan
mikla lukku meðal safngesta.
Við minnum íbúa
Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar og Akrahrepps á að
þeir þurfa einungis að
fjárfesta einu sinni í miða
árlega, þar sem miðinn
gildir í heilt ár frá kaupum,
og íbúarnir á svæðinu geta
þannig komið í kjölfarið
eins oft og þá lystir á
sýningar, viðburði og
kaffistofu safnsins.
MEÐ COVID HAFA komið
ýmsar áskoranir fyrir söfn og á
sama tíma tækifæri til þróunar
á safnastarfi þegar kemur að
stafrænum lausnum. Starfs-
menn safnsins sóttu nær allar
ráðstefnur þessa árs á netinu
og á Alþjóðlega safnadegin-
um í ár var lögð áhersla á
notkun samfélagsmiðla og var
Byggðasafnið af því tilefni með
rafræna leiðsögn um gamla
bæinn en hana má nálgast á
Facebook-síðu safnsins. Safn-
ið var þó líka með viðburði í
raunheimum en að venju var
Mark Watson dagurinn í
Glaumbæ, sem haldinn er 18.
júlí ár hvert, vel sóttur af bæði
tví- og fjórfætlingum. Í haust
varð síðan breyting á sýn-
ingum á efri hæð Áshússins
Gísli og María á fyrsta opnunardegi kaffistofunnar í Áshúsi.
Blíðviðri lék við gesti á afmælisdegi Mark Watson.
MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA
þegar sett var upp ný sýning
sem stóð í nokkrar vikur í
tilefni af útgáfu bókarinnar
„Sumardagur í Glaumbæ“ en
bókin er samstarfsverkefni
Berglindar Þorsteinsdóttur
safnstjóra og Jérémy Pailler
listamanns. Bókin var gefin út
á fjórum tungumálum og fyrir
áhugasama fæst hún sem
stendur í safnbúðinni í
Glaumbæ, Skagfirðingabúð,
Minjasafninu á Akureyri og
Þjóðminjasafni Íslands.
ÞAÐ ER ÞÓ EKKI BARA nóg að
gera á sýningum safnsins
heldur hefur fornleifadeildin
haft nóg fyrir stafni í skrán-
ingum og rannsóknum. Þessa
stundina er m.a. spennandi
verkefni í gangi þar sem unnið
er að því að skrá öll uppi-
standandi og hálfuppistand-
andi torfhús í Skagafirði. Í
Skagafirði er að finna nokk-
urn fjölda uppistandandi torf-
bygginga, allt frá litlum kofum
og útihúsum til torfkirkna og
stórra torfbæja. Nokkur þess-
ara húsa eru í Húsasafni
Þjóðminjasafns Íslands en
önnur í einkaeigu.
Sem stendur er ekki til
heildaryfirlit yfir þessi hús og
teljum við mikilvægt að ráðast
í skráningu þeirra til að öðlast
yfirsýn yfir málaflokkinn,
hversu mörg hús eru eftir af
hverri gerð og byggingar-
aðferð. Slík yfirsýn getur verið
mikilvægt tæki við forgangs-
röðun í minjavernd og einnig
til að fá betri skilning á raun-
verulegu gildi og fágæti
viðkomandi torfhúsa. Við
skráninguna gefst tækifæri til
að draga fram allar helstu
upplýsingar um torfhúsin
áður en þau falla og hverfa, s.s.
byggingaraðferðir, svæðis-
bundin einkenni o.s.frv.
Í ár tók Fornverkaskólinn
líka aftur upp þráðinn í
námskeiðahaldi en námskeið
síðasta árs féllu niður vegna
aðstæðna í þjóðfélaginu. Vel
heppnað námskeið fór fram á
Tyrfingsstöðum 10.–12. sept-
ember en verkefnið sem
hópurinn tók sér fyrir hendur
á námskeiðinu var að hækka
veggi hlöðunnar sem stendur
norðan við gamla bæjarhúsið.
HEILT YFIR ÞÁ virðist safna-
starfið vera að falla aftur í rétt
horf og við þökkum öllum
safngestum og stuðnings-
mönnum safnsins fyrir
sumarið. Við horfum björtum
augum á framhaldið og
hvetjum heimamenn til að
hafa eyrun sperrt og augun
opin fyrir viðburðum í vetur. Í júníbyrjun kom hópur ungmenna sem vildu fá að smakka mysu, hákarl og tvíreykt
hangikjöt, María galdraði veitingarnar fram á örskotsstundu.
Fornleifafræðingurinn Brenda Prehal að mæla hesthúsið á Syðstu-Grund.
6 42/2021