Feykir - 03.11.2021, Page 10
Alex Már Sigurbjörnsson,
veitukall hjá Skagafjarðar-
veitum, er fæddur og
uppalinn á Króknum en flutti
sig fram í Varmahlíð og býr
þar í dag með fyrirliða
meistaraflokksliðs Tindastóls.
Ekki fer miklum sögum af
afrekum Alex á völlum
fótboltans á síðu KSÍ annað
en að hann hafi skipt úr
Tindastól í Drangey og fengið
leikheimild um miðjan júlí
2017. Alex er þekktari fyrir
fimi sína á bassagítarinn þar
sem hann er m.a. meðlimur
Hljómsveitar kvöldsins. Hann
vill þakka Halldóru frænku
sinni fyrir þessa áskorun og
dembir sér í spurningarnar.
Hvert er uppáhalds liðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Ég er búinn að halda með
Liverpool frá því að ég man
eftir mér. Líklega hefur rauði
liturinn heillað mig þegar ég
mátti kaupa fyrsta gallann.
Hvernig spáir þú gengi liðsins
á tímabilinu? -Þeir munu lík-
lega eiga ágætis tímabil í ár. Sé
þá fyrir mér í topp fjórum. Enn
er líklega fullsnemmt að fara að
koma með einhverjar titilóskir
þar sem það hefur nú komið í
bakið á manni stundum.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í
dag? -Já, mjög svo. Vel þjálfað
og mannað lið sem spilar
skemmtilegan sóknarbolta.
Mættu samt kannski bæta við
einum framherja.
Hefur þú einhvern tímann lent
í deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði? -Það
vill nú þannig til að ég vinn á
þannig vinnustað að meiri-
hlutinn heldur með Júnæted.
Þar af leiðandi er það eiginlega
óumflýjanlegt að lenda stund-
um í rifrildi við þá, en maður
veit svo sem að þeir vita ekki
betur og leyfir þeim því oft bara
að pústa.
Hver er uppáhaldsleikmað-
urinn fyrr og síðar? -Væri
auðvelt að segja Gerrard, en ég
hef alltaf haldið mikið upp á
danska varnartröllið Daniel
Agger. Einnig var ég líka alltaf
mjög hrifinn af Bendtner, leik-
manni Arsenal. Svoleiðis slútt-
arar sjást ekki oft í dag.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? -Hef ekki enn gerst svo
frægur að fara á leik með þeim
og skammast mín þokkalega
fyrir það. Það er samt búið að
vera á stefnuskránni síðustu ár,
vantar bara kjarkinn.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? -Á nokkrar treyjur og
trefla og þess háttar dót.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðn-
ingi við liðið? -Náði nú bróður
mínum með mér í samfélagið,
þó að foreldrarnir séu Arsenal-
fólk. Einnig á ég einn frænda
sem heldur með Arsenal sem
er farinn að suða um inngöngu
í klúbbinn.
Hefur þú einhvern tímann
skipt um uppáhalds félag?
-Aldrei dottið það í hug.
Uppáhalds málsháttur? -Illt er
að kljást við kollóttan.
Einhver góð saga úr bolt-
anum? -Maður lenti nú örugg-
lega oft í einhverju skemmtilegu
í boltanum, en annars stendur
alltaf upp úr hjá manni þegar
við í 3. flokki karla fórum út til
Danmerkur að keppa á móti þar
og enduðu í 2. sæti. Þar vorum
við alltaf að snáðast og lentum í
ýmsum uppákomum.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið
fyrir? -Maður hefur nú ekkert
mikið verið að hrekkja en það
kemur svona annað slagið fyrir
að maður er plataður í eitthvað,
misgóðir hrekkir að sjálfsögðu
og kannski ekki allt prentvænt.
Spurning frá Halldóru Andrés-
dóttur: -Ef þú gætir farið aftur í
tímann og farið á hvaða leik
sem er í ensku, hvaða leik
myndir þú velja og af hverju?
Yrði líklega að velja Liverpool-
AC milan 2005, það var einn
stórgóður leikur.
Hvern myndir þú vilja sjá
svara þessum spurningum?
-Arnór Guðjónsson.
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi? -Kann Tommi
Tuchel ekki að nota Lukaku eða
er þetta sprungin blaðra ?
Alex Már.
MYND AÐSEND
Leyfir illa upplýstum
vinnufélögum bara að pústa
LIÐIÐ MITT | palli@feykir.is
Alex Már Sigurbjörnsson | Liverpool
Lagfæringar við Laxárvatnsvirkjun
Nauðsynlegt að
þétta stífluna
Húnahornið segir frá því að
steypuskemmdir eru í vegg
Laxárvatnsvirkjunar við Laxá á
Ásum og hefur RARIK óskað
eftir heimild frá Húnavatns-
hreppi til viðgerða á stíflunni.
„Að mati RARIK er nauð-
synlegt að þétta stífluna og
styrkja og verður það gert með
því að klæða hana að innan með
dúk og fylla þar að með möl og
kjarnaefni. Að framan verður
stíflan styrkt með grófum kjarna
og grjóti. Leyfi hefur fengist frá
Fiskistofu vegna framkvæmdar-
innar, sem og frá landeigendum
báðum megin ár og frá þremur
stjórnarmönnum í veiðifélagi
Laxár á Ásum,“ segir í fréttinni á
Húni.is. /ÓAB
Siglufjarðarvegur
Aldrei verður hægt að laga
veginn almennilega
Á Vísi.is er sagt frá því að
Vegagerðin hafi í byrjun október
lýst yfir viðvarandi óvissustigi á
Siglufjarðarvegi vegna
jarðskriðs og hættu á grjóthruni
allt árið um kring. Fyrrverandi
eftirlitsmaður telur að aldrei
muni vera hægt að laga veginn
almennilega, finna verði
varanlegri lausn.
Allur hluti vegarins sem
liggur um Almenninga er flokk-
aður sem skriðuhættusvæði og
þegar því lýkur við Mánárskriður
tekur við grjóthrunssvæði alla
leið inn í Siglufjörð. Ástandið á
veginum er að sjálfsögðu afar
bagalegt fyrir þá sem þurfa að
fara um svæðið; Siglfirðinga
sem heimsækja eða fara um
Skagafjörðinn og til dæmis
Fljótamenn sem þurfa að sækja
þjónustu á Sigló. Þá hefur
umferð um Tröllaskaga aukist
með tilkomu Héðinsfjarðar-
ganganna enda spennandi og
fallegt svæði sem höfðar til
ferðalangsins.
Í frétt Vísis.is kemur fram að
í viðbragðsáætlun Vegagerðar-
innar vegna hættu á veginum
segi að þar aki að meðaltali 295
bílar á sólarhring. Þeir eru mun
fleiri yfir sumartímann; 510 að
meðaltali á dag en 130 á veturna.
Þær eru ófáar fréttirnar sem
hafa birst í Feyki síðustu árin
þar sem sagt er frá skriðuhættu
á veginum, bæði vegna grjót-
hruns, jarðsigs, skriðuhættu og
vegurinn ósjaldan ófær vegna
snjóa eða snjóflóðahættu yfir
veturinn. Vitað er til þess að fólk
veigri sér við að fara veginn
vegna ástands hans. Það er í
raun ekki eftir neinu að bíða
með að bora göng úr Fljótum í
Siglufjörð. /ÓAB
Stífla Laxárvatnsvirkjunar í Austur-Húnavatnssýslu. MYND AF VEF RARIK
Frá Siglufjarðarvegi 5. febrúar 2021. MYND: ÓAB
10 42/2021