Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 1
M Á N U D A G U R 4. A P R Í L 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 79. tölublað . 110. árgangur .
STEFNIR Í
ENDURTEKNA
BARÁTTU
KUSK FÓR
MEÐ SIGUR
AF HÓLMI
SKYLDA VIÐ
SAMFÉLAGIÐ
ER STERK
MÚSÍKTILRAUNIR 28-29 HARPA SKÁTAHÖFÐINGI 10FRAKKLAND 14
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Skelfileg grimmdarverk rússneska
hersins í Úkraínu hafa komið í ljós
síðustu dægur eftir að herlið hans
var dregið frá umsátri um Kænu-
garð, höfuðborg Úkraínu.
Fundist hafa mörg hundruð lík
óbreyttra borgara, sem virðast hafa
verið teknir af lífi eða drepnir af
handahófi á götum úti.
Þar á meðal eru konur og börn, þó
að meirihlutinn séu karlar.
Sum líkanna hafa verið skilin eftir
eins og hráviði á götum bæjarins
Bútsja, skammt norðvestur af höf-
uðborginni, en á einni þeirra fundust
a.m.k. 20 lík á víð og dreif.
Annars staðar hafa fundist lík í
fjöldagröfum, þar sem höfuð eða lík-
amslimir hafa stungist upp úr jörð-
inni, en á öðrum stöðum hefur þeim
verið komið fyrir í kjöllurum. Gerð
hefur verið tilraun til þess að brenna
sum líkanna og allmörg bera merki
þess að fólkið hafi sætt pyntingum.
Fundist hafa lík, þar á meðal af
börnum, sem virðast hafa verið
bundin og síðan tekin af lífi. Aðrir,
sem virðast hafa reynt að komast
undan á flótta, hafa verið afhöfðaðir.
Hernaðarsérfræðingar telja að
um skipulögð ódæði sé að ræða,
Rússaher hafi áður beitt sömu að-
ferðum í Tsjetsjníu.
Pútín ber ábyrgðina
Vestrænir leiðtogar hafa fordæmt
þessi grimmdarverk
„Svívirðilegar árásir Rússlands á
saklausa borgara í Írpín og Bútsja
eru til enn frekari sönnunar um Pút-
ín og her hans fremja stríðsglæpi í
Úkraínu,“ sagði Boris Johnson, for-
sætisráðherra Bretlands í gær. „Við
munum ekki una okkur hvíldar fyrr
en réttlætinu er fullnægt.“
Að sögn Írynu Venediktovu, rík-
issaksóknara Úkraínu, er þegar búið
að finna 410 lík óbreyttra borgara,
en sú tala er ekki staðfest. António
Guterres, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, sagði í gær myndir
frá Úkraínu vera átakanlegar og að
sjálfstæð rannsókn á atburðunum
væri nauðsynleg. Rússar segja
myndirnar sviðsettar.
BLÓÐBAÐ Í BÚTSJA
- Skipuleg fjöldamorð Rússa á óbreyttum borgurum í Úkraínu blasa við - Konur og börn á meðal hinna myrtu
- Rússlandsher sakaður um skipulagða stríðsglæpi - Vestrænir leiðtogar vilja draga Vladímír Pútín til ábyrgðar
M Rússar fremja stríðsglæpi »13
Ronaldi Schemidt/AFP
Úkraína Fjöldi líka af óbreyttum borgurum hefur fundist á víð og dreif í nágrenni Kænugarðs, sum á götum úti en önnur í fjöldagröfum eða staflað upp í kjöllurum. Þar á meðal eru konur og börn.
_ „Við höfum
ekki tekið á móti
einni steinvölu
frá Ölfusi í Bola-
öldu og við höf-
um engar tekjur
af þessari starf-
semi,“ segir Ell-
iði Vignisson,
bæjarstjóri Ölf-
uss, um fyrirhug-
aða lokun Bola-
öldu fyrir urðun jarðvegs frá
höfuðborgarsvæðinu. „Þessi mál
verður að leysa þar sem þau eiga
heima,“ bætir hann við en kveðst
hafa skilning á óvissu verktaka. »2
Sveitarfélögin þurfa
að sjá um sig sjálf
Elliði
Vignisson
Ari Páll Karlsson
Kristján Jónsson
Vesturbæingar í grennd við Hótel
Sögu hafa margir lagst á eitt við að
útvega flóttafólki, sem þangað er
komið frá Úkraínu, ýmsar nauðsynj-
ar og aðrar vörur.
„Samtakamátturinn er ótrúleg-
ur,“ segir Markús Már Efraím, sem
leitt hefur hópinn. Í samtali við
Morgunblaðið segir hann að stjórn-
völd megi gera margt betur þegar
kemur að aðbúnaði fólksins. „Þetta
eru orðnir 92 flóttamenn sem eru
þarna á hótelinu núna. Sumir þeirra
skilst mér að séu ekki einu sinni með
rúm,“ segir Markús.
„Þetta er auðvitað rosalegur fjöldi
að kemur hingað en manni finnst það
auðvitað bagalegt að það geti gerst á
Íslandi að flóttamanneskja sé sett í
herbergi þar sem er ekki einu sinni
rúm.“
Fjöldi fólks hefur boðið fram
krafta sína eftir að Markús stofnaði
til framtaksins. „Það er svo margt
sem vantar. Fólk er ekki með kló-
settpappír eða neitt.“
Opinber fjöldi þess flóttafólks frá
Úkraínu sem komið er hingað til
lands nálgast 600 manns og mun
bætast í þann hóp að sögn Gylfa Þór
Þorsteinssonar, aðgerðastjóra vegna
komu flóttafólks frá Úkraínu.
„Það er nokkuð ljóst að þessi hóp-
ur mun bara halda áfram að stækka,
þótt við höfum ekkert í hendi hvað
það varðar.“ »2
Margt megi gera betur
- Aðbúnaði flóttafólks ábótavant - Nær hundrað á Hótel Sögu _ Á sumum vinnustöðum hefur
orðið vart við togstreitu á milli
þeirra sem vilja halda í fjarvinn-
una og hinna sem vilja vinna aft-
ur með gamla laginu.
Herdís Pála Pálsdóttir segir
marga hafa fundið sig vel í
sveigjanleikanum sem fjarvinnan
veitti í kórónuveirufaraldrinum
og langar ekkert að fara til baka
í hefðbundið skrifstofuumhverfi.
Stjórnendur verða að kunna að
koma til móts við ólíkar þarfir
fólks ella hætta á að missa það
frá sér. » 12
Taka ekki í mál
að geta ekki
unnið fjarvinnu