Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 4

Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík Costa del Sol ku .A t 20. apríl í 10 nætur Bajondillo Apartments 595 1000 www.heimsferdir.is Flug & hótel frá 97.675 10 nætur Verð frá kr. 99.200 aaaa Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Breska flugmóðurskipið Prince of Wales er væntanlegt til hafnar í Sundahöfn fyrir hádegi í dag. Þetta er stærsta herskip sem komið hefur til hafnar í Reykjavík, upplýsir Gísli Jóhann Hallsson yfirhafn- sögumaður Faxaflóahafna. Prince of Wales er 94.542 brúttó- tonn af stærð. Skipið er 280 metrar að lengd og breiddin er heilir 73 metrar. Það var tekið í notkun árið 2019. Áætlað er að það leggist að Skarfabakka um klukkan 8.30. Bretarnir óskuðu eftir því að fjór- ir dráttarbátar yrðu til taks þegar skipið legðist að bryggju. Faxaflóa- hafnir hafa yfir að ráða tveimur slíkur bátum, Magna og Haka. Því þurfti að leigja dráttarbátana Seif frá Akureyri og Herdísi frá Þor- lákshöfn í verkefnið. Þá verða til taks lóðsbátarnir Leynir og Þjótur. „Það munu allir tiltækir starfsmenn okkar koma að þessu mikla verk- efni,“ segir Gísli Jóhann. Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ís- land og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja. Öðrum aðildarríkjum Atlants- hafsbandalagsins og samstarfs- ríkjum var boðin þátttaka í æfing- unni og staðfestu sjóherir Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Noregs þátttöku. Herskip frá þessum ríkjum æfa varnir siglinga- leiðanna suður af Íslandi og taka þátt í kafbátaleit undan ströndum Íslands ásamt kafbátaleitarvélum og -þyrlum frá viðkomandi þátt- tökuþjóðum. Stærsta herskip sem komið hefur til hafnar Flugmóðurskip Prince of Wales var tekið í notkun árið 2019, en aldrei hefur stærra herskip komið til Reykjavíkur. Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Víða á landinu hafa skólar ákveðið að banna símanotkun. Grunnskóli Snæfellsbæjar og Borgarhólsskóli á Húsavík eru til að mynda nú orðnir símalausir skólar. „Þetta truflaði fyrst og fremst einbeitingu nem- enda, bæði í kennslustundum og eins í frímínútum,“ segir Hilmar Már Arason, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar, í samtali við Morg- unblaðið. „Núna eftir faraldurinn eru þau búin að vera innilokuð í tölv- um og símum þannig að við viljum hvetja þau til að taka þátt í fé- lagsstarfi og eiga meiri samskipti.“ Bæta aðstöðuna í staðinn „Við erum að biðla til foreldra að vera með okkur í þessu og að sím- arnir séu geymdir heima,“ segir Hilmar og bætir við að almenn ánægja ríki meðal foreldra en hún sé minni hjá nemendum. Skólinn fundaði með nemendaráði um hvernig mætti bæta aðstöðu nem- enda í frímínútum. Í kjölfarið voru keyptir nýir sófar, töflum komið fyr- ir á göngum skólans, spilum fjölgað og íþróttahúsið var opnað í frímín- útum. „Það er ekki bara verið að taka símana af þeim og ekkert kem- ur í staðinn heldur þarf að bæta að- stöðu þeirra í frímínútum,“ segir Hilmar að lokum. Síminn bætir litlu við Borgarhólsskóli hefur nú verið símalaus í tæpar tvær vikur. Kol- brún Ada Gunnarsdóttir skólastjóri segir að vel hafi gengið að koma í veg fyrir að nemendur noti farsíma á skólatíma. „Þau komu ekki inn úr frímínútum því þau þurftu að klára eitthvað sem var að gerast í síman- um og ef það var dauður tími voru þau ósjálfrátt farin að teygja sig eft- ir símanum,“ segir Kolbrún. „Við töldum að námslega séð væri síminn ekki að bæta neinu við.“ Var þetta rætt við foreldra og nemendur í foreldraviðtölum og voru flestir jákvæðir fyrir þessu, sérstaklega foreldrar. Mismikil ánægja var þó hjá unglingum. „Fyr- ir suma er verið að hrifsa af þeim ákveðið skjól og voru nokkrir sem nefndu að þeir væru orðnir nokkuð háðir þessu.“ Kolbrún segir að börnin séu nú farin að eiga meira í samskiptum sín á milli í frímínútum og að útivera hafi aukist. Starfsfólk skólans ræðir reglulega við nemendur um stöðuna. „Við reynum að vera í stöðugu samtali við þau um þetta svo þau upplifi að þau séu líka þátttakendur.“ Þessi leið hefði ekki endilega ver- ið farin ef ekki væru önnur tæki til að bjóða upp á í náminu, en nem- endur skólans geta bæði fengið Chromebook-tölvur og spjaldtölvur. Skólarnir taki eigin ákvarðanir Morgunblaðið ræddi við Helga Grímsson, sviðsstjóra skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkurborgar, um hvort skólar í höfuðborginni væru í sömu hugleiðingum. „Einhverjir skólar í Reykjavík hafa stigið þessi skref en þetta er ákvörðun hvers skóla fyrir sig,“ seg- ir Helgi. Þá hafi sumir skólar tak- markað símanotkun. Helgi segir að margar hliðar séu á málinu og mis- munandi umræður í skólum. „Sumir líta á farsímana sem nauðsynleg tæki til náms, en aðrir ekki,“ segir Helgi. Mestu máli skipti að skólarn- ir taki eigin ákvarðanir. Grunnskólar banna notkun farsíma - Nemendur geymi símann heima Morgunblaðið/Eggert Nemendur Lagt hefur verið bann við notkun farsíma í sumum skólum. Kristinn Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is, tók íþróttamynd ársins hérlendis í fyrra að mati dómnefndar Blaðaljósmynd- arafélags Íslands. Greint var frá úrslitunum á laug- ardaginn en myndina tók Kristinn að loknu Íslandsmótinu í körfuknatt- leik í júní. Þór Þorlákshöfn varð Ís- landsmeistari karla í fyrsta skipti með sigri á Keflavík í úrslitarimm- unni. Þórsarar tryggðu sér sigurinn í Þorlákshöfn og þar er myndin tek- in. Á henni má sjá Deane Williams, leikmann Keflavíkur, og unnusta hans reynir að hughreysta leik- manninn. „Með því að beina athygli sinni frá hinu augljósa myndefni, þar sem sig- urvegarar fagna ásamt stuðnings- fólki sínu, nær ljósmyndarinn að stöðva tímann mitt í allri óreiðunni. Hann nær að frysta tilfinninga- þrungna stund; rólegt, fallegt og einlægt augnablik sem vekur sterka samlíðan hjá áhorfandanum. Óvenjuleg íþróttamynd sem minnir sterkt á hve mikilvægan sess íþróttir skipa í lífi margra,“ segir meðal ann- ars í umsögn dómnefndar. Veitt voru verðlaun í sjö flokkum en Vilhelm Gunnarsson átti mynd ársins og fréttamynd ársins. Páll Stefánsson átti portrett ársins, Sig- tryggur Ari Jóhannsson umhverf- ismynd ársins, Hörður Sveinsson tímaritamynd ársins og Heiða Helgadóttir myndaröð ársins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stöðvaði tímann mitt í óreiðunni - Kristinn tók íþróttamynd ársins Þeir eru strax orðnir kjassgefnir litlu kiðlingarnir, sem fæddust fyrir nokkrum dögum á Rauðá í Þingeyj- arsveit. Þeir hoppa og skoppa um geita- húsið og eru mannelskir í meira lagi. Nú þegar hafa fæðst átta kið- lingar og von er á fleirum. Kennir kiðlingunum kúnstir Vilhjálmur Grímsson, sem búið hefur með geitur í áratugi, segir það alltaf jafn skemmtilegt að fá ungviðið því þá lifnar yfir öllu og verður vorlegt um að litast. Hann gefur kiðlingunum góðan tíma og spjallar við þá auk þess að kenna þeim kúnstir. Þá elta þeir hann á röndum og vilja fá athygli sem hann gefur þeim með gleði. Vilhjálmur er bjartsýnn á vorið eftir léttan vetur í Þingeyjarsýslum og vonar að kiðlingarnir geti farið snemma út til þess að bíta gras og leika sér í sólinni. Nýfæddir kiðlingar á Rauðá koma með vorið Morgunblaðið/Atli Vigfússon Dýravinur Vilhjálmur Grímsson segir alltaf jafn skemmtilegt að fá kiðlinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.