Morgunblaðið - 04.04.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Unnið er af fullum krafti að upp-
setningu lýsingar og viðburðabún-
aðar í Laugardalshöll. Það eru
starfsmenn Rafals ehf. sem vinna
verkið.
„Þeir hafa staðið sig fram-
úrskarandi vel,“ segir Birgir Bárð-
arson framkvæmdastjóri Laug-
ardalshallar um starfsmenn Rafals.
Þetta er flókið verk því skrúfa þarf
upphengibúnaðinn upp í kúluþakið
og nota þarf stórar og þungar vinnu-
lyftur, enda lofthæðin 22 metrar.
Verkið er að mestu á áætlun að
sögn Birgis. Eins og margir aðrir
sem standa í framkvæmdum hefur
verktakinn lent í því að erfitt hefur
reynst að fá rétta íhluti erlendis frá
og þá þarf að grípa til annarra ráða.
Stefnt er að því að ljúka verkinu í
næsta mánuði. Þá verður hafist
handa við að leggja parket á gólfið
og stefnt er að því að Höllin verði
tilbúin fyrir æfingar og keppni í
ágúst/september. Hefur verið sér-
staklega bagalegt að engir lands-
leikir í handbolta og körfubolta hafa
getað farið þar fram. Fjölmargir
viðburðir hafa verið pantaðir í Höll-
inni frá og með haustmánuðum, að
sögn Birgis.
Laugardalshöll hefur verið lok-
uð sem íþrótta- og viðburðahús síð-
an 11. nóvember 2020. Þá varð
heitavatnsleki sem eyðilagði park-
etgólfið. Leggja þurfti nýtt parket
og sú ákvörðun var tekin að nota
tækifærið og setja upp lýsingu sem
uppfyllir nútímakröfur við íþrótta-
keppni og notkun hússins sem fjöl-
nota húss. Verkið hefur dregist von
úr viti vegna þess að útboð hafa ver-
ið kærð, tilboð voru svo há að þeim
var hafnað af borginni eða hvort
tveggja.
Búnaður festur upp í kúluþak Hallarinnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnið er af fullum krafti í Laugardalshöll og stefnt að opnun að nýju í haust
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mun fleiri landsmenn áforma utan-
landsferð í ár, samkvæmt skoð-
anakönnun, en þeir sem spurðir
voru á sama tíma á síðasta ári.
Ríflega helmingur áformar utan-
landsferð. Um 35% hafa hug á sól-
arlandaferð og litlu færri borgar-
ferð erlendis. Liðlega helmingur
aðspurðra ætlar í sumarbústaðar-
ferð innanlands á árinu, um 44% í
heimsókn til vina og ættingja og
um 34% í borgar- eða bæjarferð
innanlands.
Koma þessar upplýsingar fram í
niðurstöðum skoðanakönnunar
sem Gallup gerði fyrir Ferða-
málastofu fyrri hluta febrúar-
mánaðar og birtar eru á vef stof-
unnar. Sambærilegar kannanir
hafa verið gerðar á undanförnum
árum.
Fjórðungur hyggst elta veðrið
Þótt ferðaáhugi landsmanna hafi
aukist frá sama tíma á fyrra hefur
hann ekki náð því marki sem var í
byrjun árs 2020, áður en áhrifa
kórónuveirufaraldursins tók að
gæta. Þá höfðu 44% landsmanna
áform um sólarlandaferð og 51%
ætluðu í borgarferð.
Ef litið er á aðra áfangastaði
eða tilefni en nefnd eru í upphafi
fréttar má sjá að 28% áforma ferð
innanlands með vinahópi eða
klúbbfélögum, 26% vilja elta veðrið
eins og sagt er, 25% áforma heim-
sókn til ættingja eða vina erlendis
og 24% hyggja á útivistarferð inn-
anlands. Skíðaferðir lenda mun
neðar á listanum. Þannig eru rúm-
lega 9% opnir fyrir skíðaferð inn-
anlands og 3% skíðaferð erlendis.
Níu prósent aðspurðra hafa engin
áform um ferðalög á árinu.
Ferðahugur í Íslendingum Telja sig munu ferðast meira í ár en í fyrra
Gistiaðstaða sem fólk ætlar að nýta sér á ferðalögum innan-
lands á næstu fjórum mánuðum (febrúar, mars, apríl og maí)
Árið 2021 (skv. könnun í fyrra) Árið 2022
Heldur meira
Mun meira
Hótel Gista hjá vinum og
ættingjum
Sumarhús
í einkaeign
Orlofshús
félagsamtaka
Gistiheimili eða
farfuglaheimili
Í skála, tjaldi eða
húsbíl
Annað
25
7
32%
23
6
29%
21
10
31% 37
18
55%
2021 2022
Erlendis Innanlands
2021 2022
39%
36%
38%39%
34%
37%
28%
36%
12%12%
15%
9%
4%3%
Samkvæmt könnun Gallup fyrir Ferðamálastofu
Yfir helmingur áformar
nú ferðalög til útlanda
- Ferðavilji hefur aukist en er þó enn minni en fyrir faraldur
Fjöldi skjálfta
reið yfir skammt
norður af
Grindavíkurbæ í
gær, en svo virð-
ist sem hrina hafi
farið af stað á
öðrum tímanum
eftir hádegi.
Sterkasti
skjálftinn var 3,3
að stærð, sam-
kvæmt mælingum Veðurstofunnar.
En skömmu áður hafði mælst
skjálfti af stærðinni 3.
Upptök austur af Bláa lóninu
Skjálftarnir áttu upptök sín
skammt austur af Bláa lóninu,
nærri Sundhnúkagígaröð, og varð
þeirra vart í bæjarfélaginu.
„Við urðum flest vör við þetta,
sérstaklega ef fólk sat,“ sagði
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkur, í samtali við mbl.is
eftir að skjálftarnir höfðu riðið yfir
í gær.
Áminning um fortíðina
„Þetta var stutt hrina sem kom á
óvart og ekkert hefur komið svona
óvænt síðan um jólin,“ segir Fann-
ar en þá hafi skjálftarnir verið
stærri.
„Það má alltaf búast við einum
og einum skjálfta eða smá hrinum
ein-hvers staðar á Reykjanesinu.
Þetta var smá áminning um fortíð-
ina en síðan minnkaði þetta,“ segir
Fannar sem kveðst vonast til þess
að Grindvíkingar þurfi ekki í bráð
að upplifa það sama og í kringum
eldgosið í Geldingadölum.
Kraftarnir
minntu
aftur á sig
- Jarðskjálftahrina
skók Grindavíkurbæ
Fannar
Jónasson
Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnar-
son GK-255 er væntanlegur til hafn-
ar í Grindavík í dag eftir skrautlegan
túr sem skilar meira aflaverðmæti
en áður hefur gerst hjá Þorbirni hf
sem gerir skipið út.
„Já það passar. Þetta verður
stærsta löndun sem gerð hefur verið
hjá fyrirtækinu,“ sagði Kristján þeg-
ar Morgunblaðið sló á þráðinn í gær-
kvöldi og spurði hann út í tíðindin.
Aflaverðmætið er að hans sögn áætl-
að 431 milljón króna en heildaraflinn
er 860 tonn. „Uppistaðan í þessum
afla er ufsi og þorskur en svo er
minna af öðrum tegundum. Við erum
einnig með aðeins af ýsu, gullkarfa
og djúpkarfa,“ upplýsti Kristján en
skipið hélt til veiða hinn 3. mars eða
fyrir mánuði síðan. Skipið var mest
allan túrinn fyrir sunnan landið en
var einnig í tæpa viku út af Vest-
fjörðum.
Kristján Ólafsson hefur verið
skipstjóri á Hrafni Sveinbjarnarsyni
í liðlega þrjú ár.
Mesta aflaverðmæti
í sögu Þorbjarnar
- 860 tonn hjá Hrafni Sveinbjarnarsyni