Morgunblaðið - 04.04.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
Halldór Jónsson verkfræðingur
veltir fyrir sér stokka-
hugmyndum Reykjavíkurborgar á
blog.is: „Bara setja í stokk alla um-
ferð á Miklubraut og Sæbraut og
byggja svo blokkir ofan á stokknum.
Lóðirnar borga stokkinn segja menn.
- - -
Þannig komast
fleiri íbúar í
nánd við Miklatún og
Sæbrautarfjöru.
- - -
Hvernig verða
þessir stokkar?
Sjá menn fyrir sér þversnið með
tvær akreinar í tvær áttir?
Þurfa menn ekki að hugsa hvað
gerist ef árekstur verður eða elds-
voði í svona mannvirki. Hlýtur þetta
ekki að kalla á 3. akreinina í hvora
átt?
- - -
Og dygði hún?
Þarf ekki neyðarbíll að kom-
ast fram hjá slysstað? Þriðja akrein
plús eitt neyðarspor?
- - -
Svo koma vandamál við reykræst-
ingu. Og auðvitað stöðuga loft-
ræstingu inn og út úr stokknum.
Mun ekki þurfa beygjuakreinar að
og frá svona stokkum?
- - -
Höfum við hugsað málið til enda?
Hver er kostnaðurinn og
hverjar eru tekjurnar af lóðasölunni
ofan á stokkunum?“
- - -
Fleiri spurninga mætti spyrja, svo
sem þeirrar hvort borgarbúar
vilji þurfa að aka neðanjarðar um
borgina sína. Er það spennandi til-
hugsun í stað þess að njóta birtu og
útsýnis?
- - -
En fólk í fjölskyldubílum er svo
sem ekki í forgangi hjá borg-
inni svo slíkar spurningar skipta lík-
lega ekki máli.
Halldór Jónsson
Fólk sett í stokk
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Styrktarfélag barna með einhverfu,
sem þekkt var sem „Blár apríl“, hef-
ur lagt bláa litinn á hilluna og tekið
upp nafnið „Einstakur apríl“. Á
þessi breyting að endurspegla fjöl-
breytileika einhverfunnar.
Hlutverk félagsins er að stuðla að
velgengni barna á einhverfurófi,
fyrst og fremst með fræðslu fyrir
foreldra og fullorðna sem starfa með
börnum. Nú verður aukin áhersla
lögð á það að einhverfir skuli sjálfir
alltaf hafa sæti við borðið. Þannig
verður fræðsluefni byggt á raun-
verulegri reynslu þeirra sem eitt
sinn voru börn á einhverfurófi. Al-
þjóðlegur dagur einhverfu var hald-
inn hátíðlegur með listasýningu og
lifandi dagskrá þar sem listafólk á
einhverfurófi var í aðalhlutverki.
Listafólk á einhverfurófi í aðalhlutverki
- Einstakur apríl - Áhersla á fjöl-
breytileika og raddir hlutaðeigandi
Morgunblaðið/Óttar
Sýning Á laugardag voru verk listamanna á einhverfurófi í sviðsljósinu.
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Fulltrúar á Búnaðarþingi segja að
Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður
Framsóknarflokksins, hafi vísað for-
manni Bændasamtakanna á dyr í mót-
töku flokksins eftir setningarathöfn
Búnaðarþings á fimmtudag. Í ár var
þingið haldið undir yfirskriftinni
Framsýnn landbúnaður. Um kvöldið
héldu þingflokkarnir, Sjálfstæðis-
flokkurinn, Framsóknarflokkurinn og
fleiri stjórnmálaflokkar, móttökur fyr-
ir bændur, stjórn og framkvæmda-
stjórn Bændasamtakanna.
Kærði sig ekki um faðmlag
Þegar Gunnar Þorgeirsson, for-
maður Bændasamtakanna, kom í
veisluhöld Framsóknarflokksins tók
Lilja á móti honum með spurning-
unni: „Gunnar, hvað ert þú að gera
hér?“ Þá gerði Gunnar tilraun til að
faðma Lilju en hún stoppaði hann af.
„Móttakan í anddyrinu var þannig
að ég sá ekki ástæðu til að vera þar
áfram. Ég ætlaði bara að heilsa
henni,“ segir Gunnar en eftir stutt
orðaskipti við Lilju ákvað hann að
fara aftur á hótelið sitt í stað þess að
ganga inn í veislusalinn. Upplifun
hans var sú að Lilja hafi í raun vísað
honum á dyr. „Hún gaf engar skýr-
ingar á því hvers vegna hún vildi
ekki hafa mig þarna. Ég ætlaði ekki
að fara að munnhöggvast við hana.“
Rótin í Garðyrkjuskólanum
Lilja telur Gunnar hafa móðgast
óþarflega mikið. Hún sé gjörn á að
gantast og það hafi hún verið að gera
þegar hún heilsaði Gunnari með
þessum hætti. Þá kveðst hún lítt gef-
in fyrir faðmlög, sérstaklega sem
kona í stjórnmálum. Hún játar að
þótt Gunnar hafi fagnað því að sjá
hana, hafi hún ekki verið jafn glöð að
sjá hann.
„Ég hef ekki verið hrifin af hans
framgöngu varðandi Garðyrkjuskól-
ann á Reykjum,“ útskýrir hún.
Gunnar var, sem formaður Sam-
bands garðyrkjubænda, ötull í gagn-
rýni vegna reksturs Garðyrkjuskól-
ans á Reykjum, eftir að hann var
settur undir Landbúnaðarháskól-
ann. Beindist gagnrýnin að mennta-
málaráðherra á þeim tíma, en því
embætti gegndi Lilja. Gunnari þótti
málaflokkurinn afskiptur en Lilja er
á öðru máli.
Fleiri atvik eru sögð hafa borið við
á Búnaðarþingi, sem meðal annars
verða rædd á stjórnarfundi Bænda-
samtakanna í dag.
Lilja kærði sig
ekki um knús
- Viðburðarík veisluhöld á Búnaðarþingi