Morgunblaðið - 04.04.2022, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
2022 ÁRGERÐIR
KOMNAR ÍVERSLUN
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
FLEIRI LITIR Í BOÐI
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Lithium Grey Chrome
104.990 kr.
MARLIN5
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
TREK Black
124.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
109.990 kr.
FX2Disc
Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is
Sendum hvert á land sem er fyrir 2.990 (verð fyrir eitt reiðhjól) FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890
Guðmundur Ari
Sigurjónsson
mun leiða lista
Samfylkingar og
óháðra á Sel-
tjarnarnesi, sem
samþykktur var í
gær.
Samfylkingin
bauð fram sér í
síðustu kosn-
ingum, en í til-
kynningu segir að flokkurinn bjóði
nú fram „ásamt óháðum Seltirn-
ingum sem vilja leggja sitt að mörk-
um við að bæta þjónustu við íbúa,“
Athygli vekur að í þriðja sæti
listans er Bjarni Torfi Álfþórsson,
sem kjörinn var í bæjarstjórn fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 2018 og situr
enn í nafni hans. Leiðir hans og
flokkssystkina hans skildi í umfjöll-
un um fjárhagsáætlun bæjarins
seint á liðnu ári, þegar Bjarni Torfi
ákvað að styðja tillögu minnihluta
bæjarstjórnar um hækkun á útsvar-
sprósentu. Hann uppskar ákafa
gagnrýni félaga sinna og tók ekki
þátt í prófkjöri flokksins í febrúar.
Samfylkingin fékk tvo menn
kjörna í bæjarstjórn 2018.
Samfylkingin á Sel-
tjarnarnesi býður
fram með óháðum
Guðmundur Ari
Sigurjónsson
Litlu munaði að íslenska öld-
ungaliðið kæmist í átta liða úrslit á
heimsmeistaramótinu í brids í gær
þegar liðið hafnaði í 9. sæti af 24,
aðeins sex stigum á eftir áttunda
sætinu.
Liðið lauk mótinu með stórsigri á
liði Frakka, 18,09 gegn 1,91. Sá sig-
ur nægði þó ekki til að komast í úr-
slitakeppnina sem hefst í dag. Liðið
tekur nú þátt í sveitakeppni með
liðum sem ekki komust í úrslit.
Íslenska liðið er skipað þeim Að-
alsteini Jörgensen, Ásgeiri Ás-
björnssyni, Birni Eysteinssyni, Guð-
mundi Sv. Hermannssyni, Hauki
Ingasyni og Þorláki Jónssyni og
Júlíus Sigurjónsson er fyrirliði.
Spilað er í fjórum flokkum á
mótinu, sem haldið er í Salsomag-
giore á Ítalíu: opnum flokki,
kvennaflokki, blönduðum flokki og
seníoraflokki en þar geta þeir spil-
að sem eru 63 ára og eldri.
Öldungar komust
næstum í úrslit
Ljósmynd/Aðsend
Ísland Liðið hafnaði í 9. sæti af 24.
Einar Jón Páls-
son, stöðvarstjóri
og forseti bæj-
arstjórnar, mun
leiða D-lista
sjálfstæðismanna
og óháðra í Suð-
urnesjabæ í kom-
andi kosningum.
Framboðslist-
inn var sam-
þykktur í gær og
segir í tilkynningu að hann sé skip-
aður fjölbreyttum hópi, bæði
reynslumiklu fólki sem komið hafi
að farsælli stjórn sveitarfélagins
undanfarin ár, en einnig nýjum
frambjóðendur sem nú stígi sín
fyrstu skref í sveitarstjórn-
armálum.
Í efstu fimm sætum eru Einar Jón
Pálsson, Magnús Sigfús Magn-
ússon, Oddný Kristrún Ásgeirs-
dóttir, Svavar Grétarsson og Eva
Rut Vilhjálmsdóttir.
Einar Jón leiðir D-
lista í Suðurnesjabæ
Einar Jón
Pálsson
2022
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Aðstandendur F-listans á Seltjarn-
arnesi, Fyrir Seltjarnarnes, hafa
rætt það undanfarna daga að bjóða á
ný fram til bæjarstjórnar. Fari svo
kynni það að veikja stöðu sjálfstæð-
ismanna í kosningabaráttunni, en
talið er að F-listinn hafi aðallega sótt
sér fylgi hægra megin miðju.
Að sögn Skafta
Harðarsonar,
sem var í efsta
sætinu síðast,
voru haldnir
fundir í liðinni
viku um hvort
bjóða skyldi fram
og segir hann
áhuga ungs fólks
á því greinilegan.
„Það hefur ekkert verið ákveðið
um það enn, en við létum verða af
þessu með þriggja daga fyrirvara
síðast og við höfum fram á föstudag
núna,“ segir Skafti.
F-listinn var boðinn fram í kosn-
ingunum 2018 og vantaði aðeins 23
atkvæði til þess að ná inn manni á
kostnað 4. manns Sjálfstæðisflokks-
ins og meirihlutinn þá fallinn.
Á Facebook-síðu listans er leitað
áhuga á því að boðið sé fram á ný og
minnt á að umræddur fjórði maður
Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Torfi
Álfþórsson, hafi nýverið samþykkt
tillögu vinstrimanna um útsvars-
hækkun. Hann hefur nú tekið sæti á
framboðslista Samfylkingar.
Margir litu á F-lista sem klofn-
ingsframboð frá Sjálfstæðisflokki,
en megináherslumál hans fólust í
ábyrgari fjármálastjórn bæjarins.
Rætt um framboð F-lista
- Framboð F-listans á Seltjarnarnesi aftur til athugunar - Gæti orðið til að fella
meirihluta Sjálfstæðisflokksins - Finna fyrir áhuga ungs fólks á framboðinu
Skafti
Harðarson