Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 10
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér finnst mikilvægt að skáta-
starf sé aðgengilegt öllum börn-
um,“ segir Harpa Ósk Valgeirs-
dóttir, nýr skátahöfðingi. „Á
líðandi stundu má segja að und-
irbúningur fyrir lífið sé inntakið í
starfi skáta með börnum og ung-
lingum. Ferðalög, söngur við varð-
eld, að snara saman hnútum og
fleira slíkt. Þetta eru lærdómsrík
ævintýri sem öll fela í sér þjálfun
sem hefur markmið.“
Ábyrgð og krefjandi þálfun
Skátaþing var haldið á Bifröst
í Borgarfirði um helgina þar sem
sjálfkjörið var í öll embættin á
vettvangi Bandalags íslenskra
skáta. Harpa Ósk Valgeirsdóttir
tók nú við af Mörtu Magnúsdóttur
sem hefur verið skátahöfðingi í
fimm ár og gaf ekki kost á sér til
áframhaldandi setu. Á þinginu
voru línur lagðar um rammann
sem starf skáta byggir á; hug-
myndir, áherslur og leiðtogaþjálf-
un. Þá var nú í fyrsta sinn kjörið í
útilífsráð, sem ætlað er að hvetja
til viðburða á vegum skáta sem
fela í sér útiveru og ferðalög.
„Ég hef alltaf tengst skát-
unum. Ragna Rögnvaldsdóttir,
móðir mín, er skáti og 5-6 ára fór
ég með henni að sækja skátamót
og fundi. Byrjaði svo ellefu ára í
Ægisbúum, skátafélaginu í Vest-
urbæ Reykjavíkur. Var fyrst í
stúlknahópnum Sefmeyjum, en fór
svo í gegnum öll stig starfsins.
Fannst starfið spennandi og
ábyrgðin sem fylgdi foringjastarf-
inu var skemmtileg og krefjandi
þjálfun. Fjölbreytnin er mikil og
mér fannst áhugavert að læra
skyndihjálp. Slíkt hafði áhrif til
þess að ég lærði hjúkrun og ljós-
móðurfræði,“ segir Harpa og held-
ur áfram:
„Ég segi líka oft að í skát-
unum geti allir fundið sér við-
fangsefni og lært af þeim. Þannig
eru krakkarnir mínir þrír allir í
skátunum og maðurinn minn er
nýlega farinn að starfa sem fé-
lagsforingi. Við fjölskyldan förum
svo saman í fjölskylduskátana og
njótum þess vel “
Að undanförnu hefur oft verið
rætt um mikilvægi seiglu og þraut-
seigju. Stundum er því haldið fram
að of algengt sé að fólk hlaupi frá
Úthald og þolgæði er mikilvægt, segir Harpa Ósk Valgeirsdóttir ljósmóðir sem er nýr skátahöfðingi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þátttaka „Umhverfismál eru rauður þráður í okkar starfi; að skilja vel
við náttúruna og koma góðu til leiðar,“ segir Harpa Ósk í viðtalinu.
Ævintýri skátastarfs eru lærdómsrík
vandamálum í stað þess að takast á
við þrautirnar og leysa þær. Þessi
umræða var áberandi þegar kór-
ónuveiran mallaði sem mest og
verst, en þá voru uppi aðstæður
sem sannarlega kröfuðust úthalds
og þolgæði.
Halda áfram þótt á móti blási
„Mér þykir vænt um að þú
nefnir þetta, því þrautseigja er
mikilvægur þáttur í allri þjálfun
skáta. Nýlega kom út skýrsla í
Bretlandi þar sem seigla var mæld
– og þar kom fram sá marktæki
munur að börn og ungmenni sem
höfðu verið í skátastarfi stóðu bet-
ur en önnur að þessu leyti. Þetta
eru krakkar sem venjast því að
halda áfram þótt á móti blási.
Læra að bjarga sér við alls konar
aðstæður og vita að mistök eru í
eðli sínu lærdómur,“ segir Harpa
Ósk og bætir við:
„Úr ferðalagi í skálann Arn-
arsetur í Bláfjöllum fyrir nokkrum
árum minnist ég stúlku sem treysti
sér ekki út í vont veður sem þá
gekk yfir. Hópurinn sem hún fór
fyrir var á heimleið og þurfti að að
ganga í veg fyrir rútuna sem beið
okkar. Þegar henni var bent á að
sem flokksforingi þyrfti hún að
sýna gott fordæmi tók hún skyndi-
lega á sig rögg og lagði af stað með
hópinn sinn. Þarna yfirsté hún
hræðslu, tók forystu og leysti við-
fangsefnið með sóma. Fyrir mér
var þetta opinberandi stund, sýndi
hvað þjálfun í anda skáta er frá-
bær og þroskandi.“
Skylda við samfélag
sterkur boðskapur
Til næstu missera litið segist
Harpa sem skátahöfðingi áfram
um að gera starfið öllum aðgengi-
legt, svo sem ungmennum með
með ólíkar þarfir, börn á flótta og
svo framvegis. Hún vilji einnig efla
starfið úti á landi. Á einstaka stöð-
um úti á landi sé raunar mjög öfl-
ugt starf og tæpast sé ofmælt að
tala um skátabæinn Akureyri. Þá
sé margt spennandi fram undan í
starfinu á næstunni. Í sumar verði
til dæmis á Úlfljótsvatni og á
Hömrum við Akureyri haldin fjög-
ur landsmót skáta, hvert fyrir sinn
aldurshópinn, það er dreka-,
fálka-, drótt- og rekkskáta. Ró-
verskátar – fólk beggja vegna við
tvítugt – ætlar síðan að mætast í
Landmannalaugum enda allt þjálf-
að í útivist og ögrunum sem henni
fylgja.
„Skylda við samfélagið er
sterk í boðskap hinnar alþjóðlegu
skátahreyfingar sem hefur frið í
veröldinni sem æðsta markmið.
Umhverfismál eru líka rauður
þráður í okkar starfi; að skilja vel
við náttúruna og koma góðu til
leiðar. Flöskumóttakan er til dæm-
is stór þáttur í okkar starfi og
stendur undir rekstri þess að
stórum hluta. Hjá Grænum skátum
vinna alls um 35 manns, gjarnan
fólk með skerta starfsgetu, sem
þarna fær tækifæri til virkrar og
ábyrgrar þátttöku – sem er í raun
kjarni starfs okkar.“
- Harpa Ósk Valgeirsdóttir er
fædd 1981 og menntuð hjúkr-
unarfræðingur. Bætti svo við
sig námi í ljósmóðurfræðum
og lauk því árið 2009. Í kjölfar
þess starfaði Harpa á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað en vinnur í dag hjá Björk-
inni í Reykjavík sem sinnir
fæðingarhjálp og þjónustu við
barnshafandi konur.
- Ferill Hörpu í skátunum er
langur. Hún varð flokksforingi
í Ægisbúum árið 1994, þá
þrettán ára gömul, og hefur á
síðustu áratugum komið að
flestum þáttum í starfinu.
Hefur sótt margvísleg nám-
skeið á vegum skáta. Formað-
ur dagskrárráðs Bandalags ís-
lenskra skáta frá 2017-2020,
aðstoðarskátahöfðingi Íslands
frá 2021 og nú skátahöfðingi
Íslands.
Hver er hún?
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
STOFNAÐ 1953
Við hreinsum sparifötin
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
Skátar Líf og fjör á Úlfljótsvatni þar sem skátar starfrækja útilífsmiðstöð
og halda fjölmenn mót, þangað sem þúsundir mæta til leikja og starfs.
Ölgerðin hefur tekið í notkun nýja
verksmiðju á lóð fyrirtækisins við
Grjótháls í Reykjavík. Aðeins tíu
mánuði tók að reisa verksmiðju-
húsið og hefur það þegar verið
skreytt með dósum úr framleiðslu
fyrirtækisins. Hús Ölgerðarinnar
hafa sem kunnugt er verið skreytt
með dósum og flöskum í gegnum
tíðina og hafa þær skreytingar
ekki farið fram hjá vegfarendum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Gunnari B. Sigurgeirssyni, aðstoð-
arforstjóra Ölgerðarinnar, er nýja
verksmiðjan búin afar öflugum
tækjabúnaði sem geri fyrirtækinu
meðal annars kleift að bjóða upp á
fyrstu háu og mjóu dósirnar sem
framleiddar eru á Íslandi.
„Nýja framleiðslulínan opnar á
fjölmarga möguleika til fram-
leiðslu og var vinsælasti cola-
drykkur landsins, Pepsi Max,
fyrsta varan sem framleidd var
með þessum hætti. Þá bætast nýj-
ar og afar handhægar pakkningar
í vöruúrval landsmanna og eru
bæði Pepsi Max og Collab komin í
þann búning. Neytendur munu svo
á næstu vikum og mánuðum sjá
fjölmargar nýjungar birtast í
verslunum í tengslum við nýju
framleiðslulínuna,“ segir Gunnar.
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verksmiðja Vörur Ölgerðarinnar eru áberandi á veggjum verksmiðjunnar.
Ný verksmiðja
tekin í gagnið
- Gosið fer nú í háar og mjóar dósir