Morgunblaðið - 04.04.2022, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. APRÍL 2022
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Í gær tóku gildi
breytingar á
leiðakerfi
Strætó og mættu
þær að ósekju verða
þeim sem fara með
fjármuni skattgreiðenda til um-
hugsunar. Breytingarnar sem
kynntar voru fela í sér að stytta
þann tíma sem boðið er upp á
þjónustu strætisvagna auk þess
að draga úr tíðni tiltekinnar leiðar
og taka upp pöntunarþjónustu á
öðrum leiðum á ákveðnum tímum.
Í tilkynningu Strætó vegna
þessa segir að kórónuveirufarald-
urinn hafi leikið reksturinn grátt
og að tekjur hafi minnkað um allt
að 1,5 milljarða á síðustu tveimur
árum. Ekki skal efast um að kór-
ónuveiran hefur dregið úr tekjum
Strætó líkt og margra annarra, en
Strætó fékk líka aukið framlag,
bæði frá eigendum sínum, sem að
stærstum hluta er Reykjavík-
urborg, og frá ríkinu, þó að það
hafi ekki dugað til að rétta af
tekjufall upp á 1,5 milljarða
króna. Sú tala er þó afar hæpin
þegar skoðaðir eru reikningar
byggðasamlagsins Strætó, því að
tekjur af fargjöldum á föstu verð-
lagi voru rúmir 1,8 milljarðar
króna að meðaltali á árunum 2020
og 2021 en að meðaltali um 2,2
milljarðar næstu tvö ár á undan.
Tekjutapið samkvæmt þessu er
innan við helmingur þess sem
Strætó heldur fram, nema verið
sé að horfa líka til akstursþjón-
ustu við fatlaða, sem væri óeðli-
legt þar sem tekjur og gjöld henn-
ar vegna jafnast út.
Umfjöllun um tölur vegna al-
menningssamgangna er viðvar-
andi vandamál því af einhverjum
ástæðum er rík tilhneiging til að
halda staðreyndum frá almenn-
ingi, ekki síst þegar kemur að
áformum um framtíðina og þá
einkum svokallaða borgarlínu.
Ein staðreynd um almennings-
samgöngur er til að mynda að
hlutfall fargjalda af rekstr-
artekjum hefur farið mjög minnk-
andi á þessari öld. Hlutfallið var
41% árið 2001 en 25% í fyrra, og
er þá horft fram hjá tekjum af
akstursþjónustu fatlaðra, enda er
hún allt annað mál og ætti ekki að
rugla saman við rekstur almenn-
ingssamgangna þó að hún sé rek-
in undir hatti Strætó. Þegar þró-
un þessa hlutfalls er skoðað fyrir
síðustu tvo áratugi má sjá að
lækkunin er ekki nýtilkomin held-
ur hefur hún átt sér stað yfir
lengri tíma og hefur raunar farið
enn neðar en nú er. Engin leið er
að fullyrða um hvernig þetta hlut-
fall mun þróast en afar ósennilegt
er að það hækki verulega nema þá
mögulega með umtalsverðri
hækkun fargjalda, en þá er vissu-
lega hætt við að mun færri nýttu
sér vagnana.
En fyrst að einungis fjórð-
ungur tekna Strætó kemur frá
notendum, hvaðan skyldi þá hitt
koma? Jú, framlag eigenda var í
fyrra um 56%, eða rúmir fjórir
milljarðar króna, og framlag rík-
isins var 14%, eða rúmur millj-
arður. Samtals er framlag hins
opinbera því um 70% af tekjum
Strætó, en fór hæst í
77% á árunum 2008
og 2009, sem var áð-
ur en framlag rík-
isins kom til árið
2012 með sérstöku
samkomulagi um að flytja fram-
lag til samgöngumála á höf-
uðborgarsvæðinu frá vegafram-
kvæmdum og til Strætó. Síðasta
áratug hefur Strætó fengið vel á
tíunda milljarð króna, á verðlagi
síðasta árs, eða tæpan milljarð á
ári frá ríkinu.
Samtals fékk Strætó um fimm
milljarða króna frá opinberum að-
ilum í fyrra og svipaða upphæð
mörg undanfarin ár. Þetta eru há-
ar fjárhæðir sem vitaskuld hafa
gert Strætó kleift að bjóða mun
betri þjónustu en ella, ekki síst
utan annatíma eins og sést á
stórum vögnum fyrirtækisins sem
aka iðulega allt að því tómir
drjúgan hluta dagsins.
Eins og sagði hér í upphafi
hefur Strætó ákveðið að bregðast
við taprekstrinum með því að
draga úr þjónustunni. Það er út af
fyrir sig eðlileg ákvörðun og
sennilega óhjákvæmileg til
skamms tíma litið, en varpar um
leið ljósi á hversu fáránleg um-
ræðan um almenningssamgöngur
hefur verið hér á landi á und-
anförnum árum.
Strætó gengur ekki þrátt fyrir
fimm milljarða árlegt framlag
hins opinbera og fargjöldin skila
aðeins um fjórðungi teknanna.
Þrátt fyrir þessa staðreynd og
það að ekkert bendir til að þessi
auknu framlög og aðrar aðgerðir
sem gripið hefur verið til, svo sem
að útbúa sérstakar hraðakreinar
fyrir vagnana, hafi aukið notkun á
þessum almenningssamgöngum,
hafa sveitarfélögin í samstarfi við
ríkið ákveðið að setja í það
minnsta eitt hundrað milljarða
króna í nýtt strætisvagnakerfi,
borgarlínuna. Í þeirri tölu er gert
ráð fyrir að áætlanir standi nokk-
urn veginn, sem allir átta sig
væntanlega á að er í besta falli
óvarlegt að gera ráð fyrir.
Til viðbótar þarf að standa und-
ir rekstri borgarlínunnar, en ekk-
ert liggur enn fyrir um hvernig
það verður gert eða hversu há ár-
leg framlög hins opinbera þurfa
að vera. Rekstraráætlun liggur
hreinlega ekki fyrir, jafn ótrúlegt
og ábyrgðarlaust og það er.
Augljóst er að rekstrarframlag
hins opinbera verður hátt og al-
veg örugglega hærra en þær
tekjur sem Strætó hefur nú af far-
gjöldum, sem eru um 1,8 millj-
arðar króna. Fyrir skattgreið-
endur blasir við að mun minni
kostnaður, að ekki sé talað um
áhætta, fælist í því að fella niður
fargjöld í Strætó en að ráðast í
borgarlínuverkefnið. Og með því
mætti þá láta á það reyna hvort
hægt er að auka notkun á þessum
ferðamáta án þess að henda í þá
tilraun hundrað milljörðum, að
viðbættum himinháum rekstr-
arkostnaði inn í eilífðina.
Ef ekki er hægt að halda úti
Strætó án skerðinga, hverjum
dettur þá í hug að borgarlínan sé
lausnin?
Fáránleiki
borgarlínu
afhjúpast}
Strætó fækkar ferðum
R
íkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur
hefur nú selt meirihlutaeign rík-
isins í Íslandsbanka. Ríkið er því
komið í minnihluta og aðrir hlut-
hafar ráða för þegar ákvarðanir
eru teknar um stefnu og rekstur bankans,
sem svo sannarlega varðar almannaheill. Og
það sem meira er – við höfum ekki enn fengið
að vita hverjir keyptu hluti í síðasta útboði á
sérstökum vildarkjörum.
Hugtakið einkavinavæðing var á allra
vörum síðast þegar sjálfstæðismenn og Fram-
sókn seldu bankana með alþekktum afleið-
ingum. Nú kemur það hugtak aftur upp í hug-
ann. Þessi leynd er ekki til þess fallin að draga
úr vantrausti almennings í garð fjármálafyr-
irtækja.
Haustið 2012 sat ég í stóli fjármálaráðherra
og þá mælti ég fyrir frumvarpi þar sem kveðið var á um
það eftir hvaða ferlum skyldi fara ef tekin yrði ákvörðun
um að selja hlut ríkisins í bönkunum. Mér fannst ekki
nóg að fjármálaráðherra hefði heimild í fjárlögum til að
selja hluti heldur þyrfti að tryggja aðkomu Alþingis og
umsögn Seðlabankans og síðan þyrfti fjármálaráðherr-
ann að gefa út skýrslu um söluna. Tryggja þyrfti
gagnsæi, réttar upplýsingar til almennings og traust.
Haustið 2012 áttum við 5% í Íslandsbanka.
Það var svo árið 2015 sem ríkið eignaðist Íslandsbanka
að fullu með svokölluðum stöðuleikaframlögum. Þar með
hélt ríkið á stærsta hluta bankakerfisins og tækifæri
skapaðist til að breyta kerfinu og vinna gegn fákeppni,
draga úr áhættusækni og auka ábyrgð-
arkennd og þjónustu við almenning.
Frá bankahruni hefur ekki farið fram
nauðsynleg umræða meðal almennings um
hvernig æskilegt sé að bankakerfið þróist hér
á landi og hvað þurfi til að koma til móts við
vilja almennings í þeim efnum. Um fjöl-
breytni, samkeppni, öflugt eftirlit, neyt-
endavernd og örugga ódýra innlenda
greiðslumiðlun.
Nú hefur þetta tækifæri runnið okkur úr
greipum. Svo mikið lá á að einkavæða bank-
anna að nýju. En til að gera bankana sölu-
vænni og gefa nýjum eigendum meiri gróða-
von var bankaskatturinn lækkaður þannig að
minna færi af arði fjármálafyrirtækjanna í
ríkissjóð en meira í vasa nýrra eigenda – sem
við fáum ekki að vita hverjir eru.
Hinir útvöldu fengu afslátt frá markaðsverði. Um
helmingur þeirra keyptu fyrir minna en 50 milljónir
króna. Hverjir eru þetta? Hvernig voru þeir valdir? Eru
þetta vinir og kunningjar þeirra sem ráða? Hafa þeir
fjárhagslega burði til að standa á bak við bankann ef á
móti blæs? Hafa þeir flekklausan feril eins og við hljót-
um að ætlast til af bankaeigendum? Hvers vegna mátti
ekki láta þá bíða og kaupa hluti síðar á markaðsverði?
Almenningur á fortakslausa kröfu á að fá að vita þetta.
Hér var nefnilega verið að selja eign almennings.
oddnyh@althingi.is
Oddný G.
Harðardóttir
Pistill
Vantraust og glötuð tækifæri
Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þ
að er varla að annað hafi
komist að undanfarinn
mánuð en stríðið í Úkraínu.
Það á einnig við í Frakk-
landi, þótt þar standi forsetakosn-
ingar fyrir dyrum. Fyrri umferð
þeirra fer fram næsta sunnudag og
spennan er að aukast, þótt flestir geri
ráð fyrir því að þar verði þau Emm-
anual Macron Frakklandsforseti og
Marine Le Pen leiðtogi Þjóðfylking-
arinnar hlutskörpust. Fari svo mun
seinni umferðin 24. apríl verða bar-
átta þeirra tveggja og flestir veðja á
að Macron beri þá sigur úr býtum.
Fyrir fimm árum vann Macron
glæstan sigur á Marine Le Pen.
Hann var svo að segja nýtt nafn í
frönskum stjórnmálum, bauð fram
undir nýjum merkjum og kjósendur
voru alls ekki vissir um fyrir hvað
hann stæði, svona fyrir utan að vera
ekki hluti gömlu flokkamaskínunnar í
París (sem stóðst þó varla skoðun).
En hann naut þess að vera nýr og
eins hins að andstæðingarnir voru
flestir óvenjuveikir frambjóðendur.
Forsetatíð Macron hefur hins veg-
ar ekki nein sigurganga. Hann hefur
ekki náð þeim tökum á frönskum
stjórnmálum, hvað þá efnahagslífi,
sem heitið var og hefur lent í alls kyns
vandræðum öðrum, bæði á heimavelli
og úti í heimi, þar sem hann hefur án
árangurs reynt að gera sig breiðan.
Marine Le Pen beið afdrátt-
arlausan ósigur í forsetakosning-
unum 2017, en hún hefur haldið vin-
sældum sínum og náð til nýrra hópa,
einkum ungs fólks og láglaunafólks,
sem áður fyrr hefði hallað sér til
vinstri. Bæði er að vinstriflokkarnir
eru hálflaskaðir, en eins að stefnumál
hennar eru mörg vel til vinstri við
miðju, einkum í efnahagsmálum.
Fleiri frambjóðendur setja svip á
kosningabaráttuna svo sem vinstri-
maðurinn Jean-Luc Mélenchon,
hægripópúlistinn Eric Zemmour og
miðhægrimanninn Valerie Pécresse.
Margir litu á forsetakosningarnar
2017 sem uppgjör við gömlu stjórn-
málin, sem þrjóturinn Nicolas Sar-
kozy og liðleskjan François Hollande
voru verðugir fulltrúar fyrir. Þar tók-
ust á ný öfl, Macron hin nýja ásjóna
hófsemi og Evrópusinna, en Le Pen
hið pópúlíska svar Frakklands við
Trump og Brexit.
Í fyrri umferðinni 2017 fékk Mac-
ron ekki nema 24% og Le Pen 21%,
en í hinni síðari fékk hann 66% at-
kvæða. Macron hefur ekki aukið á
vinsældir sínar og tilraun hans á dög-
unum til þess að tileinka sér útlit Vo-
lodymyrs Selenskís Úkraínuforseta
vakti aðhlátur. En hann er samt sem
áður forseti á stríðstímum og það
kann vel að duga, sérstaklega ef and-
stæðingurinn er Le Pen, sem margir
vilja allt til vinna að komist ekki í Ély-
sée-höll.
Síðast gekk Marine Le Pen lítið að
vinna kjósendur annarra frambjóð-
enda á sitt band. Hún á samleið með
kjósendum Zemmour, en hann legg-
ur fæð á hana og kynni að fá þá til að
sitja heima. Eins kynni hún að fá eitt-
hvað af kjósendum Pécresse og
mögulega eitthvað frá Mélechon af
vinstri vængnum.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Macron lengi siglt mjög lygnan
sjó í námunda við 25% atkvæða. Í
fyrra komst Le Pen í um 27% en dal-
aði svo mjög og er nú aðeins með um
17%. Zemmour og Pécresse eru bæði
í 14% og Mélenchon með 11%. Vana-
lega ætti áskorandinn að fá meira af
þeim atkvæðum en forsetinn, en það
á ekki endilega við um Le Pen. Má
þar minnast kosninganna þegar faðir
hennar atti kappi við hægrimanninn
Jacques Chirac. Þá gerðu vinstri-
menn út um kosningarnar þegar þeir
héldu um nefið og kusu frekar Chirac
undir slagorðinu „Frekar þjófinn en
brjálæðinginn“.
Forsetakosningar í
skugga stríðs og kreppu
Philippe Lopez/AFP
Frakkland Veggir Parísarborgar eru nú þaktir veggspjöldum forseta-
frambjóðenda, en þar eru þau Macron og Le Pen fremst meðal jafningja.
Forsetakosningar í Frakklandi
fara fram í tveimur umferðum.
Fyrri umferðin fer fram á sunnu-
dag, 10. apríl. Fái einhver hrein-
an meirihluta er hann réttkjör-
inn, en það er sjaldnast, enda
sægur frambjóðenda; aðeins
þarf 500 meðmælendur til
framboðs í fyrri umferð. Því er
haldin seinni umferð tveimur
vikum síðar, sunndaginn 24.
apríl, en þá eru aðeins á kjör-
seðlinum tveir efstu frambjóð-
endur úr fyrri umferðinni og
mikil hrossakaup fyrrum fjenda.
Tvær um-
ferðir for-
setakosninga
FRAKKLAND
AFP
Kosningar Aðdáandi Macron veifar
frönskum fána á kosningahátíð.